Þegar ég skoða síðustu færslu sé ég ekkert nema bull........kannski ekki bara en allavega hluti af henni er "rangur". Ég fór EKKI með strákana í Legoland, fannst það of dýrt enda innileikvöllur og meira svona fyrir rigningardaga. Bärbel vinkona kom með þá hugmynd að fara í "Naturwildpark" í Haltern sem er í svona 20 mín. fjarlægð. Aldeilis góð hugmynd í þessu líka fína veðri. Myndir er hægt að sjá á síðum strákanna. Á eftir að setja þær inn sem link hérna.
Önnur rangfærsla var þetta með jógúrtið. Ég var ekkert með cevapcici í matinn heldur eitthvað allt annað. Svona er þetta MJÖG oft hjá okkur, allt voða "spontan". Hvað kallar maður það á íslensku? Með stuttum fyrirvara kannski, passar samt ekki alveg við það sem ég er að meina.
Ég er ekki mikið fyrir að plana fram í tímann heldur gera bara það sem mér dettur í hug þann daginn. Sumt verð ég að plana eins og viðtöl í leikskólanum eða læknisheimsóknir. Reyndar eru margar okkar læknisheimsóknir (sem eru ekki margar á ári) oft "spontan" eins og t.d. í dag þegar Henrik vaknar með bólgin augu. Það lagaðist þegar leið á daginn og læknirinn sagði að þetta væri ekki vírus. Hjúkk segi ég bara. Hann er víst búinn að fá vírusa í augun nógu oft.
Í gær fann ég plagg sem hafði leitað dauðaleit í nokkra daga.........alveg frábært. Nú get ég gert skattaskýrsluna mína og skilað á tíma (fyrir 31.maí). Ég er alltaf á síðustu stundu með hana, eins og hún sé rosa flókin!
Dagurinn endaði náttúrulega FRÁBÆRLEGA. Ísland komst í úrslit Eurovison. Ég viðurkenni að ég bjóst ekki við því, vonaði það auðvitað innst inni. Og uppáhaldið mitt, Tyrkland, komst líka áfram. Alveg snilld bara.
Efast um að við fáum pössun annaðkvöld svo að það endar örugglega með því að Seydi fer einn í afmæli hjá tveimur fótboltafélögum. Kannski er það bara betra, þá getur hann skemmt sér án þess að eiga hættu á því að konan hans drekki og mikið og verði sér til skammar :D:D:D Já og ég horfi þá á Eurovision í friði og hringi fyrir Ísland og Tyrkland :)
Góða helgi, sólin skín og í dag er 23°. Er ekki fínt veður á Íslandi líka?
Ég fór einmitt að hugsa um leið og ég las orðið "spontan" hjá þér hvaða orð við notum yfir þetta hér á Íslandi... kannski skyndilega eða óhugsað... finnst samt skyndilega ekki endilega vera orðið... má sjálfsagt velta þessu fyrir sér lengi.
SvaraEyðaViðtalið við Adda er í sama þætti og Unnur, bara seinna í þættinum, einhverntíman rétt eftir 10 í þættinum held ég.