Hvernig er hljóðið í fólki? Eru ekki allir að fíla sigurlagið? Ekki ég, finnst það leiðinlegt og viðlagið stolið úr "You are Everything" með Diana Ross og Marvin Gaye. Þetta lag á sennilega eftir að gleymast fljótt.
En ég veit ekki hvað ég er svo sem að röfla, er ekki einu sinni búin að horfa á keppnina...... Veit samt að Þýskaland skeit á sig sem oftar. Án stiganna frá Búlgaríu hefðu "ekki englarnir" verið aaaaaaaleinar neðst. Sennilega fengu þær þessi stig þar sem Lucy (þessi rauðhærða) er búlgörsk og situr í dómnefnd IDOL þar í landi.
Ég legg til að Ísland sendi Túpílakana eða Ljótu Hálfvitana næst..........
En allavega, Seydi kom hérna heim um hálf sjö í gær og sagði "taktu þig til, við erum að fara í afmæli, strákarnir fara fyrst til ömmu og afa. Sultan sækir þá þangað og þeir sofa hjá henni" ÓKEI. Mér tókst að koma upp spenningi hjá strákunum með því að segja þeim að þeir mættu nú pakka einhverju dóti í töskurnar sínar til að fara með. Þeir voru nefnilega alveg óvissandi um þetta afmæli enda bjóst ég ekki við að við fengjum pössun.
Akkúrat þegar Seydi er að skella sér í sturtu kemur Timor (sem vinnur hjá Seydi) með dóttur sinni (sem túlk) til að spjalla við Seydi útaf vinnu, pening osfrv. Nenni ekki að tíunda það hér. Ég gat ekki skilið gestina eina eftir svo ég sat hjá þeim þar til Seydi var búinn í sturtu en þá fór skutlan að taka sig til. Það er svo langt síðan að ég hef farið út að skemmta mér hér að það hálfa væri nóg. Var nú samt ekkert lengi að taka mig til frekar en vanalega. Valdi mér svartar buxur og bleikan bol og sléttaði á mér hárið. Hugsaði "ætli ég sé nógu fín fyrir þessa fótboltakalla?" Strákarnir voru EINS OG LJÓS og kvöddu okkur. Allt gekk vel og þeir hinir ánægðustu.
En að mér aftur. Seydi var í því þegar við komum að kynna mig fyrir þessum köllum. Frekar pínlegt á stundum en allt í lagi. Þeir spurðu nokkrir hvort ég væri virkilega frá Íslandi.....kannski búist við ljóshærðri bombu. Nei grín, þeim bara finnst það merkilegt. Hitti líka einn sem hafði verið á Íslandi í nokkra daga og langar svoooooooooo aftur.
Þetta afmæli var alveg frábært. Hlaðborð, grill, diskó og áfengi. Ég hef ekki dansað alltof lengi en hrikalega var gaman að dansa. Seydi dansaði nú ekki við mig nema einn dans eða svo enda lítið fyrir að dansa. Við vorum komin heim um hálf fjögur held ég. Annar sem hélt afmælið, voru sko 2 sem höfðu orðið fertugir, spurði nú hvort ég vildi ekki verða eftir og senda Seydi bara einan heim.........neeee ég hélt nú ekki. Þegar við komum heim sagði Seydi mér að ég hefði komið köllunum skemmtilega á óvart! Ég veit ekki við hverju þeir bjuggust, ekki ljóshærðri bombu greinilega, hahaha. Einn þeirra (Tyrki) hélt að Seydi ætti feita konu! Leist þessvegna svona líka vel á mig eins grönn og ég nú er, hahahaha. Konan hans er miklu grennri (og eldri).
Allt í allt skemmtilegt kvöld, nema kannski úrslitin í júró en það kemur júró eftir þetta.
Spáð allt að 35° hita í næstu viku og raka = þrumuveður. Unnur mín, þetta á vera búið í lok vikunnar.........verður ekkert rosa heitt þegar þú kemur, segir spáin í dag.
Jæja, nóg í dag. Ætla að horfa á mynd í sjónvarpinu "The Geisha".
Gleymdi að segja frá því að auðvitað var ég með timburmenn í dag en ekkert lengi. Drakk s.s. ekkert rosalega of mikið!
SvaraEyðaÞér hefur semsagt alveg tekist að heilla þessa gaura upp úr takkaskónum;)
SvaraEyðaÞað var rosa flott stemmning yfir keppninni og allir þvílíkt spenntir þegar stigagjöfin hófst, byrjaði vel, fengu 6 stig frá Bretlandi en svo tók við "booooring" tími þar sem þau fengu engin stig í langan tíma... þá var okkur orðið ljóst að Ísland yrði ekki meðal 10 efstu þetta kvöldið... en eins og u segir þá kemur Eurovisison eftir þetta... bara krossa fingur og vona að okkur gangi betur þá:D Samt langt síðan það hefur verið svona gaman að fylgjast með keppninni á aðalkvöldinu:D
Til hamingju med nýja bloggið þitt, kíki af og til á þig. Bið að heilsa í hitann. Það er nú ekki í lagi með þetta veður.
SvaraEyðaKnús og kram
Helga
Ég á enn eftir að horfa á Júró :/ Hef ekki gefið mér tíma í það.
SvaraEyðaHefði alveg verið til í að horfa á það beint en það var fjör í afmælinu og fyrst að Ísland vann ekki (eða Tyrkland) er mér eiginlega smá sama.....
Já Helga, ég get ekkert bloggað almennilega á blog.is. Ákvað því að prófa hér þar sem ég þekkti þetta system smá.
Kveðja á ykkur báðar (sem mér finnst svo líkar)