Jibbí, Armenía komst áfram. Var líka ánægð með að Noregur kæmist áfram. Mér var sama um hitt. Nú er vona að Ísland og Tyrkland komist áfram á fimmtudaginn :) Ég get ekki hringt en get horft, vonandi, á pólskri, tyrkneskri eða einhverri annari stöð (ERT).
Seydi var að koma heim en hann var hjá systur mömmu sinnar. Eitthvað útaf bíl sem hann "á víst" að kaupa af þeim. Hann var að sleppa orðinu "Inga, fólkið mitt er svo flókið". Segist ALDREI aftur ætla að gera við bíla fyrir vandamenn........bara vandræði sem fylgja því. Þetta er orðið svo flókið allt saman að það hálfa væri nóg. Seydi minn hefur ekki gert neinum illt en þetta "pakk" stimplar hann sem ræningja, gróðapúka, nískupúka og ég veit ekki hvað. Hann á þetta ekki skilið!
Ætla að horfa á House MD, missti af því í kvöld. Var auðvitað að horfa á Eurovision eins og góðum aðdáanda sæmir. Hvað segir Unnur? Ertu sátt?
Góða nótt
Engin ummæli:
Skrifa ummæli