...styttast buxurnar! Sem þýðir að ég þarf að raka lappirnar reglulega til að líta ekki út eins og api nýsloppinn úr dýragarði! Rökun er ekki beint í uppáhaldi en bráðnauðsynlegt eins og að "afsminka" sig á kvöldin. Það finnst mér ógurlega leiðinlegt.
Ég reyni nú að ganga ekki í of stuttum buxum, 7/8 er fínar, sést mátulega mikið/lítið í leggina. Það er ekki eins og ég sé með þessa svaka geggjuðu kálfa, ó nei, fótboltakálfar heita þetta nú....... Ég man svooooooooo vel eftir bláum samfesting sem mamma saumaði (eins og margt annað) og hann var ekki alveg síður. Ég var því alltaf að reyna að passa það að það sæist alls ekki í fótboltakálfana! Það er til mynd af mér í þessum samfesting, ég sit og það sést einmitt í annan kálfann :O Hryllingur fannst mér, get hlegið að þessu í dag. Það er vandlifað :)
Sólin skín jú núna og hitinn að nálgast 20° aftur. Spáð fínu veðri um helgina. Frídagur á morgun. Ætla með strákana í Legoland Duisburg. Ekki alvöru Legoland heldur innileikvöllur með ýmsu úr Lego osfrv. http://www.legolanddiscoverycentre.com/Duisburg/en/home?
Seydi var að hringja. Er á leiðinni heim og klukkan er hálf fimm! Hann hlýtur að vera veikur..... Æi greyið, hann segist vera með hausverk og illt í bakinu. Ég get þá farið í búð og keypt nokkra hluti sem vantar. Vantar t.d. hreina jógúrt til að hafa með "Cevapcici" (kjötrúllur). Er samt ekkert svöng ennþá, var að úða í mig vöfflum a la Inga. Með rabarabarsultu og alles :)
Sólarkveðja
Best að kvitta á nýja blogginu þínu sæta:) OMG hvað ég skil þig í sambandi við raksturinn... ég er orðin svo löt við þetta... fór m.a.s. í sund áðan og fattaði þegar ég var á leið í sturtuna að ég var ekki með rakaða leggi... ákvað bara að láta slag standa og fara svona ofaní laugina og held það hafi ekki gert neinum mein... a.m.k drukknaði enginn og mér fannst enginn horfa neitt sérstaklega viðbjóðslega á mig hehehehe... en mér leið ekki vel þegar ég fattaði þetta. En maður verður sennilega að raka sig áður en haldið er í sólina;)
SvaraEyðaÉg gafst upp á blogcentral í vetur, alltaf eitthvað vesen á því en það er eitthvað búið að laga það núna. Ég fór til bloggar.is og það er alveg ok.
Ha ha ha Maja, drukknaði enginn? :D
SvaraEyðaEn hey, þú ert ljóshærð, ekki api eins og ég! En ég var dugleg áðan og nennti að raka.
Þú verður nú að vera slétt á ströndinni, kemur ekki annað til greina ;)
Ég ætla að vera hér eitthvað, kannski sé ég til seinna. Vil ekki rugla of mikið í þessu. Sumir gætu ruglast....
ertu alveg flutt frá mogganum? ja ég allavega breytti tengingunni til þín á mínu bloggi......
SvaraEyðatalandi um kálfa, þú ert nú heppin, ert þó með ökkla, ég er með kálfana áfasta tærnar við, svo að 7/8 sídd, er ekki við mitt hæfi......
Nei, ég er ekki hætt á mogganum. Reyndar gat ég nú ekki einu sinni loggað mig inn í gær. Nota það kannski til að blogga um fréttir eða eitthvað stutt. Sem sagt, verð með 2 síður í gangi :)
SvaraEyðaHeppin já.....ég myndi nú ekki kalla þetta heppni en sitt sýnist hverjum.
Það er alveg týpískt hjá mér að ef ég hef ekki rakað leggina lengi og er í einhverju stuttu að maður hittir einhvern sem má alls ekki sjá mann þannig...það er líka eins og þegar allt er í hrikalegu drasli á heimilinu, einhver kemur í heimsókn sem maður er hálfviðkvæmur fyrir því að sjái það allt....
SvaraEyða