þriðjudagur, 27. maí 2008

Mynd ofl.

Ætli maður verði ekki að setja inn mynd skötuhjúunum á djamminu, við erum svo skemmtilega bleik :)

Þarna var ég bara búin með svona 7 (litla) bjóra........hafði ekki tölu á þeim á endanum!

Jæja, kominn þriðjudagur. Ég skutlaðist til Dortmund í morgun að sækja krók sem Seydi setti svo á bíl fyrir kúnna. Gerði nú mest lítið í vinnunni, skúraði gólfið á skrifstofunni og þurrkaði af. Keypti líka pappír í prentarann og ruslapoka. Seydi er í hreingerningarhug.........eða hreingjörningar eins og mamma orðaði það á msn :) :) :) Fyrirgefðu mamma en ég bara varð, þetta kom svo skemmtilega út. Ég spurði hana hvort að hún hefði verið með gjörning!? Æi, það misskilst svo margt á msn, alveg óþolandi stundum. Ég er nú svo löt að logga mig inn. Geri það helst ekki nema hafa virkilega tíma til að tala við einhvern. En hver nennir að tala við einhvern sem loggar sig aldrei inn!!!!!!!

Jeminn, það er ekki vika þangað til að Unnur og Hlynur koma. Ég ekki enn búin að hringja í BVB í Dortmund til að kanna hvernig hægt sé að fá miða til að skoða völlinn hjá þeim! Geri það á morgun.

Í dag fann ég hvernig hitinn helltist yfir landið. Ryk frá Sahara var komið alla leiðina hingað og var því nokkuð mistur. Þegar ég fór í vinnuna um níu var 15° hiti en um tvöleytið komið í 23°. Og það er spáð enn meiri hita en hann var þó enn meiri í S-Þýskalandi, allt að 32° og hækkandi!! Þessu fylgir þó nokkur raki svo það er ekki eins þægilegt að vera úti eins og um daginn þegar hitinn var sem mestur. Þvotturinn þornar líka hálf illa. Sem minnir mig á að ég á eftir að hengja upp þvott. Best að gera það núna, hef hvort eð er ekkert merkilegt að segja. Strákarnir eru að horfa á "Cars" sem Henrik valdi í bókasafninu. Ég hlusta á einhverja tónlistarstöð í imbanum, núna er Meatloaf kallinn.

Jæja, þvotturinn bíður. Farið vel með ykkur.

6 ummæli:

  1. bara algert "pepto bismol" meðal að mæta hér til þín, allt bleikt á bleiku!! þið eruð flott saman!!!!

    bestu kveðjur

    SvaraEyða
  2. Ég ekki skilja "pepto bismol"??? Er það eitthvað hóstameðal?
    En takk annars, við náumst ekki oft saman á mynd.

    SvaraEyða
  3. ég man ekki hvernig maður segir bleikt á þýsku! Gat illa sofnað í gær, þuldi upp alla aðra liti en man ekki bleikan! Er maður bilaður eða?
    kv. Helga

    SvaraEyða
  4. æi hvað þið eruð sæææææææææt!!!!
    Alva

    SvaraEyða
  5. Helga, ekki gera allt flókið. Yfirleitt er notað "PINK" yfir bleikan hér í Þýs. stundum líka "ROSA" :) Vonandi geturðu sofið núna ;)

    SvaraEyða
  6. Aaaaa- Rosa er það sem ég var að leita að :-)
    kv Helga

    SvaraEyða