þriðjudagur, 20. maí 2008

Prufa


Ég ætla að vita hvort ég get bloggað almennilega hér. Vil samt eiginlega vera hjá íslenskum bloggþjón en ætla samt að ath þetta. Það má vel vera að ég get ekkert bloggað almennilega þar heldur. Hverju er mælt með? Blogcentral kannski? Æi ég veit ekki. Hér get ég ekki haft þetta á íslensku, nema það sem ég skrifa auðvitað.

Er ekki aðalatriðið að ég komi því á "blað" sem mér dettur í hug þá stundina? Ég held það nú. Mér er alveg sama þó að ég sé þá ekki á blog.is. Er fyrst og fremst að blogga fyrir vini og ættingja. Já og fyrir sjálf mig.

Jæja, það er best að horfa á úrslitin í Eurovision, 1. Semifinal.
Kveðja

6 ummæli:

  1. hæ, flott síða veit ekki hvað er best en ein kunningjakona mín var að fara yfir á world press og þar er hægt að hafa allt á íslensku og svona, ég ætla að skoða það, svo er 123.is fínt hef ég heyrt.

    Alva.

    SvaraEyða
  2. Já Alva, ég sá einmitt ath.semdina hennar Önnu hjá þér. Ég er svona að skoða þetta. En aðalatriðið er að ég GET skrifað meira en 2 línur hér! Þú lætur mig vita hvað þú gerir. 123.is kostar, kemur ekki til greina fyrir mig.

    SvaraEyða
  3. líst vel á þetta....ég kann vel við 123.is en jú það þarf að borga 3000kr í ársgjöld en þar get ég geymt ótakmarkað magn af myndum og þjónustan er virkilega persónuleg, og hægt að fá ráðleggingar fram og til baka....

    það er ein af mínum bloggvinkonum sem er á blogspot, og hún er með alla tenglana á íslensku, svo það er greinilega einhver leið til að alíslenska svæðið, hver leiðin er, hef ég ekki hugmynd um, en það er leið.....

    ég veit ekki afhverju, en ég finn eitthvert öryggi í því að vera á íslenskri síðu, ekki það að nokkur erlendur maður skilji, hvað þá vilji vita, hvað ég er að bulla með mínu rausi!

    bestu kveðjur

    SvaraEyða
  4. hæbbs,
    þú þarft að breyta í template-inu minnir mig til að fá þetta á ísl. Getur kíkt á gamla bloggið mitt og séð, ég var með þetta á íslensku http://gudnythora.blogspot.com/ Láttu mig vita ef þig vantar aðstoð :)

    Ég var mjög ánæðg með blogspot, skipti bara afþví ég vildi læsa.

    Takk fyrir afmæliskveðjuna :)

    SvaraEyða
  5. Já Stella, það getur vel verið að ég fari á íslenska síðu. Þessi er flóknari en t.d. blog.is eða blogcentral.
    Ég get haft "Um mig" á íslensku og dagatalið. Það er fínt.
    Fékk mér Picasa albúm í tölvuna, voða fínt. Er hvort eð er með barnaland síður og flickr. Nóg af myndasíðum.

    SvaraEyða
  6. Takk fyrir ráðleggingarnar Guðný. Ég leita til þín ef mig vantar hjálp.
    Farðu vel með þig og bumbubúa.

    SvaraEyða