föstudagur, 30. maí 2008

Veðurspá

Ekki lítur spáin vel út.........spáð rigningu næstum því alla dagana sum Unnur og Hlynur verða hjá okkur! Helvítis..........setur allt úr skorðum. Ætlaði nú að fara með mæðgin í skemmtigarða og horfa á fótboltaleiki á stórum skjá niðrí bæ! Ég VONA innilega að þessi drulluspá rætist EKKI. En við látum nú smá vætu ekki stoppa okkur alveg er það nokkuð Unnur mín?

Í dag er svo yfirþyrmandi rakt loftið að ég er með hausverk, reyndar búin að vera með verk í nokkra daga. Rykið frá Sahara gerir allt svo skítugt og mettað. Allir bílar ógeðslega skítugir, oj. Ég held ég fari með strákana á leikvöllinn, þeir eru órólegir og uppstökkir.

Til hamingju með afmæli Stella mín.

Góða helgi

1 ummæli:

  1. hvað er smárigning milli vina, það er hægt að hafa það svo notalegt í rigningu og ef svona ekta "útlensk" þá er nú bara að halda sínu striki með góða regnhlíf...

    takk fyrir kveðjuna, nú er ég búin að ná þér!

    SvaraEyða