Í dag á besta vinkona mín afmæli. Hún Helga Dóra er 29+ í dag :) Búin að ná mér eins og á hverju ári. Við höfum þekkst síðan 1974, það er laaaaaaaaaaaaaangt síðan. Og það er laaaaaaaaangt á milli okkar. Samt erum við sálufélagar. Það hefur nú oft sannað sig. Það besta við afmælið hennar í dag er að pakkinn sem ég sendi til hennar á miðvikudaginn eftir hádegi* er kominn!!!! Kom á föstudaginn. Segiði svo að pósturinn standi sig ekki.
Best að hringja í gelluna :)
2 dagar í heimsóknina!
skilaðu kveðjum frá mér þegar þú hringir í gelluna......
SvaraEyðaÆÆ, of seint elsku Stella. Var búin að hringja þegar ég sá kommentið. Geri það næst ;)
SvaraEyða