...nýtt blogg. Smá allavega. Er orðin nokkuð þreytt enda klukkan að ganga ellefu. Var svo þreytt í gær að ég lá við sofnaði í sófanum. Náði nú samt að horfa á stórskemmtilega Spánverja mala Rússa. Nú verður spennandi að sjá hvað Þjóðverjar gera nú á móti svona góðu liði eins og Spáni.........kemur í ljós á sunnudagskvöldið.
Ég held að ég taki pabba gamla með í bæinn til að sjá stemminguna. Ekki myndi það skemma fyrir ef við ynnum en það stendur í stjörnunum eins og sagt er hér.
Veðrið var svo frábært í gær að við fórum að tína jarðarber. Pabbi ekkert smá ánægður með það. Höfðum farið í íþróttabúðina Decathlon í Herne um morguninn. Síðdegis löbbuðum við svo á "fjallið" ógurlega. Enn var pabbi ekkert smá ánægður með þetta allt saman. Útsýnið frábært, veðrið yndislegt, umhverfið fallegt og allt bara snilld.
Í dag skrapp ég smá í vinnuna en á eftir fórum við á nýja leikvöllinn bakvið ráðhúsið og við mamma skildum pabba þar eftir með gaurana. Ekki hægt að vera með karlmenn þegar kaupa á nærföt!
Mamma gerði svo pizzu í kvöldmatinn og er hún búin, heil plata en Henrik borðaði alveg helling.
Nú eru allir sofnaðir, mamma er kannski að lesa. Seydi hrýtur hérna á sófanum. Hann var nú sofnaður fyrir fótboltaleikinn í gær!!!! Ég held ég verði að sprauta í hann vítimíni, svona án þess að hann taki eftir því ;)
OH, ég er þreytt. Er þetta ekki bara orðið nokkuð gott hjá mér. Var að setja inn myndir hjá Henrik. Fleiri eiga eftir að koma, þær eru enn ekki komnar inn í tölvuna.
Góða helgi nær og fjær.
föstudagur, 27. júní 2008
miðvikudagur, 25. júní 2008
Spenna í lofti
Það er svo mikil spenna í loftinu hérna í Þýskalandi að það er alveg ótrúlegt. Akkúrat í dag eru skólafríin hér í mínu fylki að byrja og svo er jú stórleikurinn Þýskaland-Tyrkland í kvöld. Ekki talað um annað í fjölmiðlum, allir vona að allt fari fram með ró og spekt. Sumir hræddir við slagsmál og læti, sama hvernig fer. Útbreiddustu dagblöðin hér og í Tyrklandi, (Bild og Hürryet)lofuðu bæði að skrifa ekkert niðrandi um hvort annað, þ.e. löndin. Búist er við hálfri milljón manna við útiskjáinn í Berlín. Hjá mér var svæðið stækkað og komast allt að 8000 manns þar fyrir núna.
Ég er að hugsa um að vera ekki niðrí bæ í kvöld. Við Seydi vorum að gæla við það að fara út að borða fyrir leikinn, sjáum til hvort að Seydi nær að sleppa sjálfum sér úr vinnunni á skikkanlegum tíma.
Það er svo frábært að hafa mömmu og pabba hérna og þau njóta þessa svooooooooo að vera með okkur. Sérstaklega strákunum held ég nú samt. Það var svo gaman í útskrift Julian úr leikskólanum í gær að það hálfa væri nóg. Pabbi fór á hopppúðann með krökkunum og vakti mikla lukku! Ég set inn myndir hjá strákunum fljótlega. Allt í ljúfu standi bara.
Við mamma eigum nú samt eftir að fara eitthvað í bæinn, bara við tvær sko. Reyndar er evran svo hrikalega há að það bara borgar sig varla fyrir þau að kaupa sér neitt hérna. Ömurlegt fyrir þau en ef ég færi til Íslands núna myndi allt vera voða billegt, þannig. Ég meina, ég fæ 125 kr. eða meira fyrir 1 evru!!! Í fyrrasumar fékk ég um 80 kr. og um 90 kr. um jólin. En ég er ekkert á leiðinni þangað. Við ætlum kannski til Tyrklands í júlí. Nema það að það er svo ógeðslega dýrt að fljúga í fríinu að það er bara rán! En við þurfum hvort eð er að venjast því þar sem Julian er að byrja í skóla. Kannski við keyrum bara þrátt fyrir hátt bensínverð. Komum við í Króatíu hjá Luka (vini Julian) og fjölskyldu. Aldrei að vita hvað við gerum............
Er í vinnunni í dag. Verð nú aðeins að sýna lit þó að það séu gestir. Þau eru með lykla svo þau geta alveg gert það sem þau langar. Ég er að reyna að fá þau til að flytja bara hingað. Gott veður, fínt heilbrigðiskerfi, sterk evra osfrv. osfrv. Fínt að vera hérna........Þau er nú ekki alveg á því enda skiljanlegt. Pabbi fer bara beint á elliheimilið þegar hann hættir að vinna þar (GRÍN) og mamma er nú svo heimakær (ekki GRÍN). Þeim líður allavega vel hérna. Kannski ég geti lokkað þau með því að segja að þau geti sko alveg farið í Rínarsiglingu á hverju ári ef þau ættu heima hérna :):):)
Jæja, komið nóg í bili. Hvernig spáið þið leiknum í kvöld? Ég kann ekkert að spá svo ég ætla að sleppa því. Vona bara að leikurinn endi ekki í vítaspyrnukeppni.
Knús á ykkur

laugardagur, 21. júní 2008
Fótbolti er ótrúlegur
Ég sem spáði Hollendingum sigri á EM....ég kann greinilega ekki að spá um úrslit í fótbolta enda óútreiknanlegur leikur. Hafði það áhrif að aðal leikmenn hvíldu sig í síðasta leik í riðlakeppninni? Portúgal er líka dottið út og þeir spiluðu líka með "B lið" á móti Sviss, töpuðu m.a.s. þeim leik.
Rússar áttu þetta skilið, skemmtilegt lið sem þyrstir í mörk. Ungt lið með "smástráka" í framlínunni ;)
Það eiga greinilega heima nokkuð margir Rússar hér. Ég heyri flautukonsert neðan úr bæ. Ég var að hengja út þvottinn og það er nokkuð hlýtt ennþá. Spáð um 30° á morgun og þrumuveðri........ PLÍS ekki meðan að ég keyri til baka frá Bingen. Ég stoppa þá bara og bíð þangað til að veðrið fer yfir.
Heyrði í þeim gömlu áðan eftir mikla tæknilega erfiðleika. Síminn á herberginu þeirra er eitthvað klikk svo að þau heyrðu ekkert í honum og gátu ekki svarað. Endaði með því að þau fóru niður í lobbý og ég hringdi þangað. Ég og strákurinn þar erum orðnir bestu vinir :) Hann var hálf miður sín yfir því að síminn væri bilaður, baðst afsökunar, hann væri einn og það gæti orðið bið á að hægt væri að laga símann. En þetta fór vel að lokum og þau gömlu bara spennt að sjá okkur. Við líka auðvitað. Julian fer ekki með, það verður þá lítið um rifrildi í baksætinu. Gott mál bara.
Jæja, best að fara að sofa. Henrik er nýsofnaður, litli krúttorkubolti.

föstudagur, 20. júní 2008
Breytingar
Bara alsherjar breytingar í gangi hjá kellu. Kallinn farinn að heiman (allavega fram á sunnudag), von á gestum á sunnudaginn (mamma og pabbi) og hörkuleikur í fótbolta í kvöld.
Efast samt um að hjartað í mér hamist eins og í gær! Meðan að ég sat á sófanum (lá reyndar meira en sat) og gargaði í hvert skipti sem Þjóðverjar skoruðu, sat kallinn við tölvuna og lagði á kapal............. haldiði að þetta sé eðlilegt heimili. Hann kom þó til mín í seinni hálfleik og horfði með mér. Svo er hann farinn að spila á pollamóti í fótbolta! Mér finnst að ég ætti frekar að spila, allavega líst köllunum í liðinu helv.... vel á mig. Biðja alltaf að heilsa mér eftir æfingar :) Þeir hafa reyndar ekki séð mig spila fótbolta EN ég get varla verið verri en kallinn!
Mamma hringdi áðan. Þau gömlu komin til Bingen á hótelið. Sem sagt komin með fast land undir fætur. Það verður gaman að sjá þau á sunnudaginn. Ég ætla að nota þau út í ystu æsar. Láta pabba passa meðan að við mamma förum í búðir, láta þau bæði passa svo við Seydi getum farið út að borða eða í bíó, nota tækifærið og fara í klippingu og bara njóta þess að hafa smá tíma til að vera barnlaus................YES!!!
Mig sárvantar stofuborð. Er með eitthvað lítið, aumingjalegt borð þar sem hin borðin tvö úr sænsku húsgagnaversluninni, er ónýt, brotin og komin á haugana. Þetta litla er reyndar úr sömu búð en virðist ætla að halda sér lengur en hin.
Ég þarf líka að koma stóra stofuskápnum niður í kjallara. Held að ég leggi ekki í það að bera hann á bakinu niður stigann. Verð að sparka í kallinn til að hjálpa mér með hann. Í næstu viku.
Góða helgi elsku lesendur. Vonum að Tyrkland vinni í kvöld. Þá yrði stórleikur, Tyrkland-Þýskaland, í næstu viku. Það væri fjör. Ó, bara þrjú korter í leik. Verð að fara að koma strákunum inn í herbergi og stilla þeim fyrir framan imbann. Alltaf barnamynd á föstudögum. Býst samt alveg við að Henrik verði mest hjá mér, eins og í gær. Krúttið var með þetta á hreinu. Sagði "Deutschland gewinnt" (Þýs. vinnur leikinn) og spurði þegar ég gargaði eftir mörkin "Hat Deutschland geschossen?" (skoraði Þýs.?). Algert krútt. Var að spyrja fótbolta"expertinn" hver ynni í kvöld. Hann segir Króatía. Sjáum til hvernig fer.
Over and out

fimmtudagur, 19. júní 2008
Flókið?
Ein spurning til ykkar lesenda. Finnst ykkur flókið að kvitta hjá mér? Ekki að það sé skylda, hef sagt það áður EN ég hef heyrt að sumum finnst kvittunarkerfið hér flókið. Ef svo er gæti ég kannski einhvern vegin bætt úr því, hvernig sem ég geri það nú.......
Lífið snýst enn um fótbolta, ég sakna leikjanna klukkan sex. En senn tekur þetta enda, mikilvægur leikur í kvöld. Allir að horfa og hvetja Þýskaland. Er samt vooooða hrædd um að Ronaldo, Deco og co. taki þetta! Var smá fúl að Svíþjóð skildi ekki komast áfram en staðreyndin er að Rússar voru bara betri og áttu þetta skilið.
Julian fer í afmæli á eftir. Luka vinur hans heldur það á "skólabóndabænum" en þangað fara bekkir í heimsóknir osfrv. Vona að það rigni ekki á krakkana. Það kom ein gusa áðan en annars er gott veður. Um 20° og vindur. Fínn þurrkur fyrir þvottinn minn sem hangir á svölunum.
Ætli mamma sé nokkuð orðin of sjóveik? Hún þarf kannski nokkra daga hjá mér til að ná úr sér sjóriðunni..........Ætti kannski að heita "árveik" þar sem hún er víst ekki á sjónum heldur á ánni Rín.
Seydi fer til Emden í N-Þýskalandi á Pollamót á morgun. Verður eflaust fjör þar eins og undanfarin ár. Seydi var víst svo fullur í fyrra að hann ældi! Ég skelli mér svo til Bingen am Rhein á sunnudaginn til að ná í þau gömlu. Julian fer sennilega í afmæli til Said-Doane á meðan, hann vill það frekar en að fara með mér.
Well, á eftir að hjálpa Julian að pakka in gjöf til Luka og keyra hann svo á bóndabæinn. Kannski ég fari í bæinn með Henrik á meðan. Þarf að ná í batteríið í myndavélina mína. Það gleymdist nefnilega að senda það með vélinni en hún var í viðgerð. Eins gott að það týndist ekki!
Eigið góðan dag

þriðjudagur, 17. júní 2008
Heimilishjálp
Ég fékk símtal frá Doris mömmu Sabine (konan sem ég vann hjá) í dag. Þar sem ég er ofurreynd Au-Pair, datt henni ég í hug þegar hún heyrði að dóttir vinkonu hennar vantaði heimilishjálp. Þessi dóttir býr í Bremen, á 3 börn (6, 4ra og 2 1/2) og eitt á leiðinni. Er víst mjög almennileg, fer strax að vinna, nokkra tíma í viku, eftir fæðingu, maðurinn er tölvunarfræðingur, hún sjálf kennari (að mig minnir). Ég þekki hana ekki persónulega en eins og ég sagði vantar hana nauðsynlega Au-Pair, helst í gær!
Ef þið þekkið einhvern sem langar að koma til Þýskalands endilega hafa samband. Helst fyrir helgi.
Mér skildist á Doris að þetta yrði samt aðeins meira en bara þetta týpíska Au-Pair starf og hún vissi ekki með borgun. En það kæmi allt í ljós seinna. Oftast eru nú þessi Au-Pair störf meira en stendur í einhverjum samningum sem einhver samtök senda manni! Látið mig vita það. Í Noregi var það líka í lagi, fjölskyldan var frábær og borgaði líka meira. Voru strax heiðarleg og sögðu að þau hefði ekkert fengið Au-Pair ef þau segðust vinna allan daginn. Önnur saga með þýsku familíuna........nenni ekki að eyða orðum á þann tíma. Allavega ekki tímann sem ég eyddi inn á heimilinu. Fyrir utan það gerðist margt skemmtilegt og spennandi.
En allavega, ef þið þekkið einhvern sem langar hingað sem Au-Pair, endilega kommenta.
Gleðilegan 17.júní. Allt að gerast í dag. Ísbjörninn fallinn, Frakkland (sennilega) líka.

mánudagur, 16. júní 2008
Elsku systir
Nú svífur þú í háloftunum og vonandi fer vel um þig og Hlyn. Ég er komin heim án nokkura trafala. Gat ekki annað en hugsað um helv.... tussuna á flugvellinum ALLA leiðina. Hvað við hefðum átt að gera öðruvísi? Ég hefði átt að vita að þú mættir fara með 10 kg í handfarangur........ég hefði átt að lána þér stærri tösku til að fara með í flugvélina........ég hefði átt að taka bara eitthvað dótinu þínu og senda þér..........ég hefði átt að............... ÉG ER MIÐUR MÍN. Álit mitt á Hollendingum hefur snarminnkað. Hef alltaf talið þá mjög vingjarnlega en annað kom á daginn í dag. Heimskar gæsir. "Go away" hvað............
Þakka fyrir þessar tvær yndislegu vikur. Við náðum samt ekki að gera allt sem okkur langaði en það kemur dagur eftir þennan dag. Ár eftir þetta ár. Við gerðum samt margt. Þið Hlynur eruð bæði yndisleg. Það er ekki illa meint að kalla þig ofvirka........þú veist hvað ég meina. Það mættu margir vera eins skipulagðir og þú. Ég líka........stundum. Ég sakna þín strax. Það er tómlegt í kotinu núna. Ég sakna Hlyns prakkara og skemmtilega hlátursins. Þú ert frábær strákur Hlynur.
Þegar þú lest þetta ertu sennilega komin heim í heiðardalinn. Klóið vonandi nýpússað og fínt :D
Farðu vel með þig elsku systir. Heyrumst fljótlega.
Ég elska þig
Inga

laugardagur, 14. júní 2008
Laugardagur
Næstsíðasti dagurinn með Unni og Hlyni, fyrir utan smá stund á mánudaginn. Verið er að pakka og vigta töskur, engin gífurleg yfirvigt ennþá...........ennþá...........ekki allt komið niður! En þetta reddast, engin vafi á því.
Hér snýst lífið um EM í fótbolta. Við erum ekki búin að missa af einum leik, held ég. Þess á milli er borðað, étið og hámað í sig. Já og verslað, keypt inn og eytt peningum! Nei, smá grín. Ég sjálf er samt búin að kaupa mér 1 gallabuxur, 1 par af skóm, allavega 1 bol og eitthvað á strákana. Svo eru mamma og pabbi að koma líka........úff, ennþá meiri tími til að eyða. Ég ætla allavega í klippingu á meðan þau eru hér. Svo gæti pabbi kannski passað gaurana og við mamma rambað í bæinn. Þau gömlu eru núna í Hollandi, tilbúin í Rínarsiglinguna. Fyndið að þau séu bara í 2ja tíma fjarlægð frá okkur :)
Fórum út að borða hjá Kínverjanum í dag. Á hlaðborðið góða. Eins og alltaf á laugardögum var fullt út úr dyrum svo við þurftum að bíða smá eftir borði. Núna er bara að slappa af það sem eftir er enda búið að vera þeytingur á okkur. Strákarnir eru bara að leika núna og við hlustum á þægilega tónlist í sjónvarpinu. Veðrið skiptir um ham á hálftíma fresti, rétt áðan var rigning, núna er þurrt, fyrr í dag var sól. Hitinn er nú ekkert til að hrópa húrra fyrir. Örugglega hlýrra á Víkinni góðu núna.........

miðvikudagur, 11. júní 2008
Smá tími
Allir sofandi hér á bæ, nema ég, svo það er best að nota tækifærið og skrifa nokkrar línur. Ég er búin að fara í sturtu, setja í þvottavél og þvo potta og pönnur. Sólin skín, enn, en eitthvað er nú hitinn að gefa sig, bara spáð 19° í dag og það gæti rignt seinni partinn. Annars er veðrið búið að leika við okkur svo þetta er bara í góðu lagi.
Fórum á RISA leikvöll í gær. Hlynur var alveg stórhlessa á þessu öllu. Ég reyndar líka en ég hafði ekki komið þangað þó að völlurinn væri bara í 20 mín. fjarlægð. Hægt er að sjá meira um staðinn á: http://www.kettelerhof.de/flash.html
Reyndar allt á þýsku en kannski hægt að ímynda sér aðeins hvernig þetta er. Við Unnur ætlum að koma myndum í tölvuna og á diska í dag. Ekkert að vera að flækjast neitt.
Við skelltum okkur aðeins á leikinn Svíþjóð-Grikkland í gær, þ.e. niður í bæ við stóra skjáinn. Náðum nú ekki miklu og bæði mörkin komu meðan að við löbbuðum niður í bæ! Óheppnar. Fögnuðum sigri Svía á ísstaðnum góða með Cappucino og Latte Macchiato + vöfflu með hindberjum og rjóma, mmmmmmmmmmmmmm
Ég fékk góða "frétt" áðan. Gerður "gamla" bekkjarsystir bað mig að vera vinur sinn á Facebook. Hrikalega gaman að heyra frá "gömlum" vinum. Ég elska það. Verst að margir "gamlir" vinir eru engin tölvufrík og erfitt að finna :) Hef allavega ekki fundið marga t.d. á Facebook.
Jæja, best að taka til morgunmatinn og vekja svo liðið. Reyndar eru strákarnir örugglega alveg búnir eftir hamaganginn í gær. Sjáum til hvernig til tekst að koma þeim á fætur.
Sólarkveðja (ennþá)

föstudagur, 6. júní 2008
Vikulok
Þá er kominn föstudagur eina ferðina enn. Veðrið er draumur í dós, 27° hiti og sól í dag. Fór með mæðgin að tína jarðarber í dag, yndislegt bara. Strákarnir mínir voru svo duglegir að tína, bara eins og þeir hafi aldrei gert annað :)
Grillið í leikskólanum heppnaðist vel, fyrst voru alls konar leikir og svo var grillað og krakkarnir léku sér.
Haldiði að við Unnur höfum ekki búið til 3 krukkur af jarðarberjamarmelaði! Já við kellurnar skelltum jarðarberjum og "Gelierzucker" í pott og suðum. Unnur með sultun á hreinu. Nú er að vona að þetta sé gott á bragðið.........
Je, hvað ég er þreytt eftir daginn, eða dagana. Mikið labb í gær, stapp í bænum í fyrradag osfrv. Hitinn er líka "þreytandi", ekki í neikvæðum tón heldur bara gerir mann slappan.
Ekkert merkilegt planað á morgun, nema kannski að kíkja á krakkatónleika.
Sagði nú við Unni áðan að hún gæti nú farið ein í bæinn á morgun, ég gæti passað. Neeee, hún var ekki alveg á því. Er hrædd um að villast í bænum!! Seydi gæti nú passað finnst mér en hann þarf að fara til Dortmund fyrir 12 svo að það er út úr dæminu. Æi svo þarf hann að hreinsa plássið fyrir framan verkstæðið sem fyrst. Taka niður skiltið osfrv. Gæti annars fengið sekt.
Hef bara unnið 2 daga í þessari viku enda lítið að gera. Smá bókhald og reikningagerð. Hvað ég hlakka til að sofa út á morgun. Verð samt að muna að strákarnir eiga að mæta klukkan 8, já ÁTTA, í leikskólann á mánudaginn! Það verður erfitt að koma þeim svona snemma út úr húsi. Ætli ég drullist ekki á fætur eitthvað fyrr en vanalega. Nenni því ekki en lífið er ekki bara leikur eða hvað..........
Góða helgi elsku lesendur og endilega kvitta fyrir komuna og kaffið, ha ha ha

þriðjudagur, 3. júní 2008
Heimsókn
Ekki verður nú mikið bloggað þessa dagana, þið fyrirgefið mér það nú örugglega. Ætla ekki að eyða miklum tíma fyrir framan skjáinn þessar 2 vikur sem við höfum saman. Nota smá tíma núna meðan að Unnsa horfir á Austurbæingana..........já, ég er með BBC Prime. Það kom STÓRT bros á kellu þegar ég sagði henni það :D
Ég grillaði kjúlla fyrir liðið enda vorum við orðin svo svöng þegar við komum heim. Við skelltum okkur svo í bæinn seinnipartinn í gær og keypt voru allavega 2 pör af skóm. Í dag þræddum við íþróttabúðir til að leita að takkaskóm handa prinsinum. Þeir fundust og allir ánægðir. Held að það hafi enda með því að keypt voru 3 pör af einhverjum íþróttaskóm!
Það fyndasta var hvernig við hittumst á flugvellinum. Ég lenti í þessari líka rosalegu teppu á leiðinni en hafði sem betur fer farið mjög snemma á stað. Ég kom því um hálf eitt á flugvöllinn en þau áttu að lenda 12:10. Sá þar á skjá að lendingin hefði dregist og beið því aðeins við hliðið. Þurfti svo endilega að pissa og við á klóið. Rétt áður en ég fer inn í klefann kemur Unnur útúr öðrum klefa........hafði heyrt í okkur..........getur nú verið að það heyrist í okkur! Hlynur stóð frammi og staðhæfði að hann hefði hvorki séð okkur koma inn né bíða við hliðið. Ég veit ekki hvort að við getum hafa farið framhjá honum. Óframfærinn drengurinn, ha ha ha. Hann hefur örugglega ekki viljað skilja farangurinn eftir og labba til okkar. Skyldurækinn eins og hann er.
Heitasti dagurinn fram að þessu var í gær, hitinn fór í 32°! Unnur var að kafna. Í dag er bara um 25° og hún er enn að kafna........ Það rigndi í nótt og smá í morgun en núna er sól annað slagið og þá er fljótt að hitna.
Jæja, ég ætti kannski að líta á þessa blessuðu Austurbæinga. Og fá mér smá íslenskt nammi! Nóg til, spurning hve lengi.
Kveðja

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)