Bara alsherjar breytingar í gangi hjá kellu. Kallinn farinn að heiman (allavega fram á sunnudag), von á gestum á sunnudaginn (mamma og pabbi) og hörkuleikur í fótbolta í kvöld.
Efast samt um að hjartað í mér hamist eins og í gær! Meðan að ég sat á sófanum (lá reyndar meira en sat) og gargaði í hvert skipti sem Þjóðverjar skoruðu, sat kallinn við tölvuna og lagði á kapal............. haldiði að þetta sé eðlilegt heimili. Hann kom þó til mín í seinni hálfleik og horfði með mér. Svo er hann farinn að spila á pollamóti í fótbolta! Mér finnst að ég ætti frekar að spila, allavega líst köllunum í liðinu helv.... vel á mig. Biðja alltaf að heilsa mér eftir æfingar :) Þeir hafa reyndar ekki séð mig spila fótbolta EN ég get varla verið verri en kallinn!
Mamma hringdi áðan. Þau gömlu komin til Bingen á hótelið. Sem sagt komin með fast land undir fætur. Það verður gaman að sjá þau á sunnudaginn. Ég ætla að nota þau út í ystu æsar. Láta pabba passa meðan að við mamma förum í búðir, láta þau bæði passa svo við Seydi getum farið út að borða eða í bíó, nota tækifærið og fara í klippingu og bara njóta þess að hafa smá tíma til að vera barnlaus................YES!!!
Mig sárvantar stofuborð. Er með eitthvað lítið, aumingjalegt borð þar sem hin borðin tvö úr sænsku húsgagnaversluninni, er ónýt, brotin og komin á haugana. Þetta litla er reyndar úr sömu búð en virðist ætla að halda sér lengur en hin.
Ég þarf líka að koma stóra stofuskápnum niður í kjallara. Held að ég leggi ekki í það að bera hann á bakinu niður stigann. Verð að sparka í kallinn til að hjálpa mér með hann. Í næstu viku.
Góða helgi elsku lesendur. Vonum að Tyrkland vinni í kvöld. Þá yrði stórleikur, Tyrkland-Þýskaland, í næstu viku. Það væri fjör. Ó, bara þrjú korter í leik. Verð að fara að koma strákunum inn í herbergi og stilla þeim fyrir framan imbann. Alltaf barnamynd á föstudögum. Býst samt alveg við að Henrik verði mest hjá mér, eins og í gær. Krúttið var með þetta á hreinu. Sagði "Deutschland gewinnt" (Þýs. vinnur leikinn) og spurði þegar ég gargaði eftir mörkin "Hat Deutschland geschossen?" (skoraði Þýs.?). Algert krútt. Var að spyrja fótbolta"expertinn" hver ynni í kvöld. Hann segir Króatía. Sjáum til hvernig fer.
Over and out
vá flott nýja "heimilið" hér....
SvaraEyðagóða helgi gella, og ekki gleyma okkur þó þú fáir gesti og farir á þvæling.........
Hey takk, ég er voða græn í dag. Sumarliturinn.
SvaraEyðaÉg lofa að gleyma ykkur ekki. Það er hálfleikur núna svo ég hafði tíma til að svara :D
Jæja, krúttið hafði ekki rétt fyrir sér. Tyrkland vann með miiiiiikilli heppni.
SvaraEyðaÉg var nú svo þreytt (enda þreytandi leikur) að ég missti af marki Króatíu, datt út í smá stund zzzzzzzzzzzzzzz
Góða nótt
Hér hélt minn maður með Króatíu í þetta sinn... gífurleg fagnaðarlæti brutust út á lokamínútu framlengingarinnar... sem breyttust í harmleik mínútu síðar... hann var m.a.s svo miður sín að hann fór á rúntinn meðan vítaspyrnukeppnin var, hafði ekki taugar til að horfa á hana... sem betur fer kannski því ég var að drepast úr spennu, hefði ekki þolað að horfa á hann kveljast í sófanum á meðan. En svona er þetta... hann getur þó verið ánægður með úrslit NBA;)
SvaraEyðaVeðrið er að skána hér á Íslandi, búið að vera ágætt í dag og er enn bara nokkuð gott.
Ha ha ha, fór á rúntinn á meðan að vítaspyrnukeppnin var! Hann hlýtur að hafa verið spenntur. Minn maður var ánægður.
SvaraEyðaÆi já, vonandi fer nú sumarið að koma. Bæði hér og hjá ykkur. Sumarbyrjun hér í dag (samkv. dagatali) Samt fer degi að halla. Lítur ágætlega út ennþá en það mætti var hlýrra.
Góða helgi