Nú svífur þú í háloftunum og vonandi fer vel um þig og Hlyn. Ég er komin heim án nokkura trafala. Gat ekki annað en hugsað um helv.... tussuna á flugvellinum ALLA leiðina. Hvað við hefðum átt að gera öðruvísi? Ég hefði átt að vita að þú mættir fara með 10 kg í handfarangur........ég hefði átt að lána þér stærri tösku til að fara með í flugvélina........ég hefði átt að taka bara eitthvað dótinu þínu og senda þér..........ég hefði átt að............... ÉG ER MIÐUR MÍN. Álit mitt á Hollendingum hefur snarminnkað. Hef alltaf talið þá mjög vingjarnlega en annað kom á daginn í dag. Heimskar gæsir. "Go away" hvað............
Þakka fyrir þessar tvær yndislegu vikur. Við náðum samt ekki að gera allt sem okkur langaði en það kemur dagur eftir þennan dag. Ár eftir þetta ár. Við gerðum samt margt. Þið Hlynur eruð bæði yndisleg. Það er ekki illa meint að kalla þig ofvirka........þú veist hvað ég meina. Það mættu margir vera eins skipulagðir og þú. Ég líka........stundum. Ég sakna þín strax. Það er tómlegt í kotinu núna. Ég sakna Hlyns prakkara og skemmtilega hlátursins. Þú ert frábær strákur Hlynur.
Þegar þú lest þetta ertu sennilega komin heim í heiðardalinn. Klóið vonandi nýpússað og fínt :D
Farðu vel með þig elsku systir. Heyrumst fljótlega.
Ég elska þig
Inga
Vá hvað þetta eru falleg orð rituð til Unnar og Hlyns... þau eru heppin að eiga þig að.
SvaraEyðaÞað hefur semsagt verið eitthvert vesen á flugvellinum. Ég er alltaf jafn stressuð þegar ég er að fara í flug, tékka mig inn og þangað til ég er komin í gegnum tollinn heima... veit ekki af hverju, hef aldrei verið tekin í tékk, hef einu sinni fengið yfirvigtarmiða en gat ekki borgað því það var eitthvað rugl í gangi og við misstum næstum að fluginu (London 2007) Mér finnst fólk á flugvöllum mjög misjafnt, konan sem við lentum í í London síðast var ekki skemmtileg, gerði allt til að pirra okkur og var með fullt af "smámunaveseni" fannst mér... fórum fram og til baka til að taka úr töskum og setja fleiri í almennan farangur af því ég hélt ég mætti vera með litla handtösku )veski)+ aðra tösku í handfarangri en það mátti víst ekki... mér var samt sagt það síðast þegar ég fór í flug, alltaf verið að breyta.
Vona að allt hafi gengið vel hjá þeim mæðginum þegar heim kom.
Já það var smá vesen á flugvellinum. Byrjaði á því að konan (stelpugæsin) skoðaði og skoðaði passana, spurði hvað Hlynur væri gamall...Halló! Það stendur nú í passanum! Sagði ekkert við okkur, dónalegt finnst mér. Nú og svo yfirvigtin. OK, hún var með of mikið en að setja fyrst tösku með 17,5 kg. og svo 21,5 kg, segja þá "þessi taska er of þung" !!!!! 1,5 kg.....Ég hef aldrei lent í veseni með 22-24 kg. Svo var Unnur með enn eina tösku svo að yfirvigtin var til staðar. EN stelpan var bara dónaleg og sagði þegar búið var að tékka inn "go away"........ótrúlegt. Svo voru gæsirnar þar sem yfirvigtin er borguð mega heimskar. Voru komnar fjórar til að redda málunum, enginn virtist kunna á posann. Alveg ótrúlegt.
SvaraEyðaÉg hef aldrei heyrt annað en að konur megi vera með handfarangur + venjulega handtösku. Fluguð þið kannski með Iceland Express líka? Þeir gera greinilega allt til að græða.
I´m pissed
Já við flugum með Iceland Express þegar við fórum til og frá London. Þeir leggja sjálfsagt ekki eins mikið upp úr góðri þjónustulund, geta þess vegna boðið lægra verð... sem er svo ekkert alltaf mikið lægra þegar upp er staðið því skattarnir og það er svo hátt, borguðum 7000 kall fyrir flugið á manninn til London í vetur, bættum við tryggingu sem var 1-2000 kall en svo voru gjöld og skattar rúmlega 21 þúsund fyrir okkur saman... svo þetta var ekkert svo rosalega ódýrt eftir allt saman. Ég skil alveg að þið hafið verið pirruð á þessari "stelpugæs" hehe:D
SvaraEyða