fimmtudagur, 19. júní 2008

Flókið?

Ein spurning til ykkar lesenda. Finnst ykkur flókið að kvitta hjá mér? Ekki að það sé skylda, hef sagt það áður EN ég hef heyrt að sumum finnst kvittunarkerfið hér flókið. Ef svo er gæti ég kannski einhvern vegin bætt úr því, hvernig sem ég geri það nú.......

Lífið snýst enn um fótbolta, ég sakna leikjanna klukkan sex. En senn tekur þetta enda, mikilvægur leikur í kvöld. Allir að horfa og hvetja Þýskaland. Er samt vooooða hrædd um að Ronaldo, Deco og co. taki þetta! Var smá fúl að Svíþjóð skildi ekki komast áfram en staðreyndin er að Rússar voru bara betri og áttu þetta skilið.

Julian fer í afmæli á eftir. Luka vinur hans heldur það á "skólabóndabænum" en þangað fara bekkir í heimsóknir osfrv. Vona að það rigni ekki á krakkana. Það kom ein gusa áðan en annars er gott veður. Um 20° og vindur. Fínn þurrkur fyrir þvottinn minn sem hangir á svölunum.

Ætli mamma sé nokkuð orðin of sjóveik? Hún þarf kannski nokkra daga hjá mér til að ná úr sér sjóriðunni..........Ætti kannski að heita "árveik" þar sem hún er víst ekki á sjónum heldur á ánni Rín.

Seydi fer til Emden í N-Þýskalandi á Pollamót á morgun. Verður eflaust fjör þar eins og undanfarin ár. Seydi var víst svo fullur í fyrra að hann ældi! Ég skelli mér svo til Bingen am Rhein á sunnudaginn til að ná í þau gömlu. Julian fer sennilega í afmæli til Said-Doane á meðan, hann vill það frekar en að fara með mér.

Well, á eftir að hjálpa Julian að pakka in gjöf til Luka og keyra hann svo á bóndabæinn. Kannski ég fari í bæinn með Henrik á meðan. Þarf að ná í batteríið í myndavélina mína. Það gleymdist nefnilega að senda það með vélinni en hún var í viðgerð. Eins gott að það týndist ekki!

Eigið góðan dag

4 ummæli:

  1. Mér finnst alls ekkert flókið að kvitta hjá þér Inga mín, sennilega bara leti í mér að kvitta ekki alltaf. Reyndar voru komnar fleiri en ein færsla um daginn þegar ég fór inn hjá þér að skoða svo ég nenni ekki að kvitta í allar færslur;)
    Addi hélt með Rússum í gær, svo mikill "austantjaldsvinur" hehehe:D Ég er ekkert búin að fylgjast mikið þessum fótbolta, horfi stundum með hálfu auga eg Addi er að horfa í stofunni og ég er þar inni.
    Góðar stundir með foreldrunum.

    SvaraEyða
  2. Hæ Inga,

    Ég rakst óvart á síðuna þína og kíki stundum við. Gaman að lesa um líf þitt í Þýskalandi. njótið þess!
    Kær kveðja

    Jóna Matt

    SvaraEyða
  3. mér finnst ekkert flókið að kvitta, en viðurkenni að þetta marg-valmöguleika form hér hjá blogger fer pínuponsu í mínar taugar....
    en ég get þetta samt alveg!!

    sé að það er nóg að gera hjá þér en finnst alger óþarfi auðvitað að gefa af tímanum í eitthvað tuðrugláp...
    skjáumst

    SvaraEyða
  4. Maja mín, þú ert nú manna duglegust að kvitta svo að þetta er engin leti í þér :)

    En gaman að heyra frá þér Jóna :) Kveðja til þín og þinna.

    Já Stella, það var þetta með alla þessa möguleika. Datt í hug að einhverjum fyndist þetta "too much". Ég sjálf veit ekki einu sinni hvað er best að nota. Ýtið þið á "Name/URL" til að skrifa nafnið? Það er líka hægt að nota nafnlaus og skrifa bara undir.
    Óþarfi hvað....leikurinn í gær var svo spennandi að hjartað var á leiðini út úr brjóstinu...Þýs. vann sko!

    SvaraEyða