Ég sem spáði Hollendingum sigri á EM....ég kann greinilega ekki að spá um úrslit í fótbolta enda óútreiknanlegur leikur. Hafði það áhrif að aðal leikmenn hvíldu sig í síðasta leik í riðlakeppninni? Portúgal er líka dottið út og þeir spiluðu líka með "B lið" á móti Sviss, töpuðu m.a.s. þeim leik.
Rússar áttu þetta skilið, skemmtilegt lið sem þyrstir í mörk. Ungt lið með "smástráka" í framlínunni ;)
Það eiga greinilega heima nokkuð margir Rússar hér. Ég heyri flautukonsert neðan úr bæ. Ég var að hengja út þvottinn og það er nokkuð hlýtt ennþá. Spáð um 30° á morgun og þrumuveðri........ PLÍS ekki meðan að ég keyri til baka frá Bingen. Ég stoppa þá bara og bíð þangað til að veðrið fer yfir.
Heyrði í þeim gömlu áðan eftir mikla tæknilega erfiðleika. Síminn á herberginu þeirra er eitthvað klikk svo að þau heyrðu ekkert í honum og gátu ekki svarað. Endaði með því að þau fóru niður í lobbý og ég hringdi þangað. Ég og strákurinn þar erum orðnir bestu vinir :) Hann var hálf miður sín yfir því að síminn væri bilaður, baðst afsökunar, hann væri einn og það gæti orðið bið á að hægt væri að laga símann. En þetta fór vel að lokum og þau gömlu bara spennt að sjá okkur. Við líka auðvitað. Julian fer ekki með, það verður þá lítið um rifrildi í baksætinu. Gott mál bara.
Jæja, best að fara að sofa. Henrik er nýsofnaður, litli krúttorkubolti.
jæja inga mín, nú hljóta mamma þín og pabbi að vera mætt í sæluna til þín...vona að allt fari að óskum, og að þið náið að njóta tímans.
SvaraEyðaekki gleyma að leyfa okkur að fylgjast með heimsókninni!!
(ég tók mér það "bessa"leyfi að benda einni íslenskri á þig, hún guðrún sem er með tengil á minni síðu, er að flytja frá florida til þýskalands, og ef hún kemst í nálægð við þig, munt þú ábyggilega heyra frá henni, strákurinn hennar og julian eru á sama aldri...)
bestu kveðjur frá heimsins besta veðri, og mér líka..
Já Stella, þau gömlu eru mætt og allt í besta standi. Þau njóta þess í botn að vera með gaurunum og veðrið er fínt. Smá rigning í dag en spáð blíðu í náinni framtíð.
SvaraEyðaEndilega að benda öllum Íslendingum á mig. Ekki málið. Vonandi flytur í ekki of langt frá.
Best að blogga smá.