Ég fékk símtal frá Doris mömmu Sabine (konan sem ég vann hjá) í dag. Þar sem ég er ofurreynd Au-Pair, datt henni ég í hug þegar hún heyrði að dóttir vinkonu hennar vantaði heimilishjálp. Þessi dóttir býr í Bremen, á 3 börn (6, 4ra og 2 1/2) og eitt á leiðinni. Er víst mjög almennileg, fer strax að vinna, nokkra tíma í viku, eftir fæðingu, maðurinn er tölvunarfræðingur, hún sjálf kennari (að mig minnir). Ég þekki hana ekki persónulega en eins og ég sagði vantar hana nauðsynlega Au-Pair, helst í gær!
Ef þið þekkið einhvern sem langar að koma til Þýskalands endilega hafa samband. Helst fyrir helgi.
Mér skildist á Doris að þetta yrði samt aðeins meira en bara þetta týpíska Au-Pair starf og hún vissi ekki með borgun. En það kæmi allt í ljós seinna. Oftast eru nú þessi Au-Pair störf meira en stendur í einhverjum samningum sem einhver samtök senda manni! Látið mig vita það. Í Noregi var það líka í lagi, fjölskyldan var frábær og borgaði líka meira. Voru strax heiðarleg og sögðu að þau hefði ekkert fengið Au-Pair ef þau segðust vinna allan daginn. Önnur saga með þýsku familíuna........nenni ekki að eyða orðum á þann tíma. Allavega ekki tímann sem ég eyddi inn á heimilinu. Fyrir utan það gerðist margt skemmtilegt og spennandi.
En allavega, ef þið þekkið einhvern sem langar hingað sem Au-Pair, endilega kommenta.
Gleðilegan 17.júní. Allt að gerast í dag. Ísbjörninn fallinn, Frakkland (sennilega) líka.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli