þriðjudagur, 3. júní 2008

Heimsókn

Ekki verður nú mikið bloggað þessa dagana, þið fyrirgefið mér það nú örugglega. Ætla ekki að eyða miklum tíma fyrir framan skjáinn þessar 2 vikur sem við höfum saman. Nota smá tíma núna meðan að Unnsa horfir á Austurbæingana..........já, ég er með BBC Prime. Það kom STÓRT bros á kellu þegar ég sagði henni það :D

Ég grillaði kjúlla fyrir liðið enda vorum við orðin svo svöng þegar við komum heim. Við skelltum okkur svo í bæinn seinnipartinn í gær og keypt voru allavega 2 pör af skóm. Í dag þræddum við íþróttabúðir til að leita að takkaskóm handa prinsinum. Þeir fundust og allir ánægðir. Held að það hafi enda með því að keypt voru 3 pör af einhverjum íþróttaskóm!

Það fyndasta var hvernig við hittumst á flugvellinum. Ég lenti í þessari líka rosalegu teppu á leiðinni en hafði sem betur fer farið mjög snemma á stað. Ég kom því um hálf eitt á flugvöllinn en þau áttu að lenda 12:10. Sá þar á skjá að lendingin hefði dregist og beið því aðeins við hliðið. Þurfti svo endilega að pissa og við á klóið. Rétt áður en ég fer inn í klefann kemur Unnur útúr öðrum klefa........hafði heyrt í okkur..........getur nú verið að það heyrist í okkur! Hlynur stóð frammi og staðhæfði að hann hefði hvorki séð okkur koma inn né bíða við hliðið. Ég veit ekki hvort að við getum hafa farið framhjá honum. Óframfærinn drengurinn, ha ha ha. Hann hefur örugglega ekki viljað skilja farangurinn eftir og labba til okkar. Skyldurækinn eins og hann er.

Heitasti dagurinn fram að þessu var í gær, hitinn fór í 32°! Unnur var að kafna. Í dag er bara um 25° og hún er enn að kafna........ Það rigndi í nótt og smá í morgun en núna er sól annað slagið og þá er fljótt að hitna.

Jæja, ég ætti kannski að líta á þessa blessuðu Austurbæinga. Og fá mér smá íslenskt nammi! Nóg til, spurning hve lengi.

Kveðja

9 ummæli:

  1. ég sá bara skrifað um íslenskt nammi, íslenskt nammi jammmi....öfunda þig ekkert smá.

    en það er greinilega gott að láta heyra vel í sér, annars hefðuð þið getað farið á mis við hvor aðra!

    njótið heimsóknarinnar...

    SvaraEyða
  2. Góðan og blessaðan daginn kæra vina.
    Rakst á síðuna þína, alveg óvart og ákvað að setja inn kveðju.
    Gaman að lesa um lífið hjá þér og þínum.
    Bið að heilsa systur þinni og Hlyn.
    Bestu kveðjur
    Guðlaug Sv.

    SvaraEyða
  3. Hæ Guðlaug, en gaman að þú skildir líta við. Kveðja á þig og þína.

    Stella, þú mátt koma í nammiát, ekki málið ;) Láttu bara vita með smá fyrirvara.

    SvaraEyða
  4. Hæ Inga Björk,

    fallega skrifað um systur... held ég verði bara að segja takk fyrir hana, er það ekki? Hún er ekkert fyrir tölvur enda á litla skvísan allar hennar mínútur núna. Njótið daganna systur. Kveðja frá Húsavíkinni

    SvaraEyða
  5. Ert þetta þú Soffía mín? Var smá stund að kveikja á perunni :)
    Kveðja til baka

    SvaraEyða
  6. Já, þetta var ég sem var að þakka fyrir hana HDH, var að lesa afmæliskommentið. :-)

    SvaraEyða
  7. Vildi bara skilja eftir smá kvitt... hef ekkert farið á síðuna þína síðan áður en ég fór út svo ég bjóst við miklum lesningum... en sem betur fer eru Unnur og Hlynur hjá þér svo ég þarf ekki að lesa ofurmikið;) Njótið þess að vera saman... hittumst svo vonandi áður en mjög mörg ár líða:D Stefnum á fjölskylduferð til Evrópu næsta sumar, ætlum helst til Danmerkur og jafnvel Svíþjóðar en það fer reyndar soltið eftir því hvernig málin þróast ... kannski verður það bara Þýskaland;)

    SvaraEyða
  8. Hæ sæta mín,
    er á leið í sveitina og að kíkja á lækninn sem öllu reddar á Húsavíkinni í sumar:-) Hugsa sér, litli gormurinn sem heimsótti okkur til Þýskalands er orðinn stór.!
    Kveðja, Helga

    SvaraEyða
  9. Helga, hann var nú ekkert mjög lítill þarna 199 og eitthvað ;) Bið að heilsa á Víkina góðu.

    SvaraEyða