Næstsíðasti dagurinn með Unni og Hlyni, fyrir utan smá stund á mánudaginn. Verið er að pakka og vigta töskur, engin gífurleg yfirvigt ennþá...........ennþá...........ekki allt komið niður! En þetta reddast, engin vafi á því.
Hér snýst lífið um EM í fótbolta. Við erum ekki búin að missa af einum leik, held ég. Þess á milli er borðað, étið og hámað í sig. Já og verslað, keypt inn og eytt peningum! Nei, smá grín. Ég sjálf er samt búin að kaupa mér 1 gallabuxur, 1 par af skóm, allavega 1 bol og eitthvað á strákana. Svo eru mamma og pabbi að koma líka........úff, ennþá meiri tími til að eyða. Ég ætla allavega í klippingu á meðan þau eru hér. Svo gæti pabbi kannski passað gaurana og við mamma rambað í bæinn. Þau gömlu eru núna í Hollandi, tilbúin í Rínarsiglinguna. Fyndið að þau séu bara í 2ja tíma fjarlægð frá okkur :)
Fórum út að borða hjá Kínverjanum í dag. Á hlaðborðið góða. Eins og alltaf á laugardögum var fullt út úr dyrum svo við þurftum að bíða smá eftir borði. Núna er bara að slappa af það sem eftir er enda búið að vera þeytingur á okkur. Strákarnir eru bara að leika núna og við hlustum á þægilega tónlist í sjónvarpinu. Veðrið skiptir um ham á hálftíma fresti, rétt áðan var rigning, núna er þurrt, fyrr í dag var sól. Hitinn er nú ekkert til að hrópa húrra fyrir. Örugglega hlýrra á Víkinni góðu núna.........
Góða helgi nær og fjær.
ef ég einhverntíman næ því að heimsækja þýskaland, þá ætla ég sko að passa vel upp á að það verði ekki á einhverju fótboltatímabili....ég þoli ekki að horfa á slíkt á skjánum!alltaf gaman að fá gesti, þó svo að veskið þjáist svolítið á meðan, það virðist alltaf með gestunum mæta einhver kjarkur, svona "jú víst vantar mig þetta" sem er vissulega nauðsynlegur.....annað slagið!! góða heimsóknarrest, og hlakka til að heyra um það tímabil er mamma þín og pabbi munu verma hjá ykkur!!
SvaraEyðabestu kveðjur
Ok Stella mín, þú kemur bara á milli móta, þ.e. HM og EM ;) Alltaf velkomin.
SvaraEyðaVeskið á sennilega eftir að þjást meira í næstu viku þegar við mamma komumst EINAR í bæinn!!!
Hér er sjónvarpið rauðglóandi... horft á alla leiki og gríðarleg spenna í kvöld, Tyrkland-Tékkland... minn maður hélt með Tyrklandi og var ekkert of glaður í hálfleik en svo breyttist þetta heldur betur á síðustu mínútunum... bara gaman:) Ég er nú ekki, og hef aldrei verið, mikill fótbolta áhugamaður en ég er aðeins farin að hafa gaman að þessu núna. Ég get líka fundið það á börnunum mínum hvort þau hafa áhuga á fótbolta eða ekki því þegar ég gekk með Alexander var HM og þá var allt brjálað í bumbu meðan leikirnir stóðu yfir en nú eru bara rólegheit... kannski þetta sé bara stelpa:D
SvaraEyðaGóðar stundir... kveðjur til familíunnar þinnar.
Tja, Maja. Í minni fjölskyldu hafa stelpur nú bara mjög mikinn áhuga á fótbolta svo að það er nú aldrei að vita ;)
SvaraEyðaLeikurinn í gær var náttúrlega "mega" spennandi. Seydi kom heim þegar það stóð 2-1 en stuttu seinna var staðan 3-2 og kallinn dreif sig út til að keyra um og flauta.........eins og margir Tyrkir gerðu. Stuð.