miðvikudagur, 11. júní 2008

Smá tími

Allir sofandi hér á bæ, nema ég, svo það er best að nota tækifærið og skrifa nokkrar línur. Ég er búin að fara í sturtu, setja í þvottavél og þvo potta og pönnur. Sólin skín, enn, en eitthvað er nú hitinn að gefa sig, bara spáð 19° í dag og það gæti rignt seinni partinn. Annars er veðrið búið að leika við okkur svo þetta er bara í góðu lagi.

Fórum á RISA leikvöll í gær. Hlynur var alveg stórhlessa á þessu öllu. Ég reyndar líka en ég hafði ekki komið þangað þó að völlurinn væri bara í 20 mín. fjarlægð. Hægt er að sjá meira um staðinn á: http://www.kettelerhof.de/flash.html
Reyndar allt á þýsku en kannski hægt að ímynda sér aðeins hvernig þetta er. Við Unnur ætlum að koma myndum í tölvuna og á diska í dag. Ekkert að vera að flækjast neitt.

Við skelltum okkur aðeins á leikinn Svíþjóð-Grikkland í gær, þ.e. niður í bæ við stóra skjáinn. Náðum nú ekki miklu og bæði mörkin komu meðan að við löbbuðum niður í bæ! Óheppnar. Fögnuðum sigri Svía á ísstaðnum góða með Cappucino og Latte Macchiato + vöfflu með hindberjum og rjóma, mmmmmmmmmmmmmm

Ég fékk góða "frétt" áðan. Gerður "gamla" bekkjarsystir bað mig að vera vinur sinn á Facebook. Hrikalega gaman að heyra frá "gömlum" vinum. Ég elska það. Verst að margir "gamlir" vinir eru engin tölvufrík og erfitt að finna :) Hef allavega ekki fundið marga t.d. á Facebook.

Jæja, best að taka til morgunmatinn og vekja svo liðið. Reyndar eru strákarnir örugglega alveg búnir eftir hamaganginn í gær. Sjáum til hvernig til tekst að koma þeim á fætur.

Sólarkveðja (ennþá)

3 ummæli:

  1. Góðann daginn. gaman að heyra frá þér, gott að allt gengur vel. Er að fara að pakka allavega að taka til eitthvað. Bið að heilsa öllum. Mamma

    SvaraEyða
  2. ég skil ekki facebook, ég hef séð framan í þær en næ ekki því sem bakvið andlitið er.....

    er þetta eitthvað sniðugt? þú kannski kemur mér á lagið með þetta einhvern daginn sem við finnum tíma á spjallrásinni??

    góðar kveðjur til ykkar allra..

    SvaraEyða
  3. Já mamma, það gengur allt vel. Fínt að hafa svona góða heimilishjálp, er að hugsa um að ráða hana í vinnu..... Heyrumst

    Stella: Ég er ekkert svo ægilega fær í/á þessari facebook. Samt gaman að finna og sjá "gamla" vini. Ég gaf Gerði upp bloggið þitt :)

    Kveðja

    SvaraEyða