miðvikudagur, 25. júní 2008

Spenna í lofti

Það er svo mikil spenna í loftinu hérna í Þýskalandi að það er alveg ótrúlegt. Akkúrat í dag eru skólafríin hér í mínu fylki að byrja og svo er jú stórleikurinn Þýskaland-Tyrkland í kvöld. Ekki talað um annað í fjölmiðlum, allir vona að allt fari fram með ró og spekt. Sumir hræddir við slagsmál og læti, sama hvernig fer. Útbreiddustu dagblöðin hér og í Tyrklandi, (Bild og Hürryet)lofuðu bæði að skrifa ekkert niðrandi um hvort annað, þ.e. löndin. Búist er við hálfri milljón manna við útiskjáinn í Berlín. Hjá mér var svæðið stækkað og komast allt að 8000 manns þar fyrir núna.

Ég er að hugsa um að vera ekki niðrí bæ í kvöld. Við Seydi vorum að gæla við það að fara út að borða fyrir leikinn, sjáum til hvort að Seydi nær að sleppa sjálfum sér úr vinnunni á skikkanlegum tíma.

Það er svo frábært að hafa mömmu og pabba hérna og þau njóta þessa svooooooooo að vera með okkur. Sérstaklega strákunum held ég nú samt. Það var svo gaman í útskrift Julian úr leikskólanum í gær að það hálfa væri nóg. Pabbi fór á hopppúðann með krökkunum og vakti mikla lukku! Ég set inn myndir hjá strákunum fljótlega. Allt í ljúfu standi bara.

Við mamma eigum nú samt eftir að fara eitthvað í bæinn, bara við tvær sko. Reyndar er evran svo hrikalega há að það bara borgar sig varla fyrir þau að kaupa sér neitt hérna. Ömurlegt fyrir þau en ef ég færi til Íslands núna myndi allt vera voða billegt, þannig. Ég meina, ég fæ 125 kr. eða meira fyrir 1 evru!!! Í fyrrasumar fékk ég um 80 kr. og um 90 kr. um jólin. En ég er ekkert á leiðinni þangað. Við ætlum kannski til Tyrklands í júlí. Nema það að það er svo ógeðslega dýrt að fljúga í fríinu að það er bara rán! En við þurfum hvort eð er að venjast því þar sem Julian er að byrja í skóla. Kannski við keyrum bara þrátt fyrir hátt bensínverð. Komum við í Króatíu hjá Luka (vini Julian) og fjölskyldu. Aldrei að vita hvað við gerum............

Er í vinnunni í dag. Verð nú aðeins að sýna lit þó að það séu gestir. Þau eru með lykla svo þau geta alveg gert það sem þau langar. Ég er að reyna að fá þau til að flytja bara hingað. Gott veður, fínt heilbrigðiskerfi, sterk evra osfrv. osfrv. Fínt að vera hérna........Þau er nú ekki alveg á því enda skiljanlegt. Pabbi fer bara beint á elliheimilið þegar hann hættir að vinna þar (GRÍN) og mamma er nú svo heimakær (ekki GRÍN). Þeim líður allavega vel hérna. Kannski ég geti lokkað þau með því að segja að þau geti sko alveg farið í Rínarsiglingu á hverju ári ef þau ættu heima hérna :):):)

Jæja, komið nóg í bili. Hvernig spáið þið leiknum í kvöld? Ég kann ekkert að spá svo ég ætla að sleppa því. Vona bara að leikurinn endi ekki í vítaspyrnukeppni.

Knús á ykkur

2 ummæli:

  1. maður heyrir ekki um þessa boltaspennu hér á slóðum, við erum alltaf svo upptekin með það sem í okkar bakgörðum gerist, megum ekki vera að neinu öðru :-)

    njótið heimsóknarinnar....þó evran sé slæm, búðir eru ekki skemmtilegar, finnið eitthvað annað.....

    bestu kveðjur

    SvaraEyða
  2. Boltaspennan er í hámarki hér, efast um að hún verði eins mikil þó að Þjóðverjar myndu vinna. Það gera allir Tyrkirnir sem búa hér. Var úti að borða í bænum áðan og það er bara gleði í loftinu, alveg magnað bara.

    Búðir eru víst skemmtilegar, finnst mér. En það er líka skemmtilegt fyrir þau gömlu að vera bara með okkur, fara út að labba osfrv. Það kostar lítið ;)

    SvaraEyða