laugardagur, 26. júlí 2008

Ho fra Belek

Hallo allir. Erudi enn ad nenna ad kikja a mig? Hef ekki farid a netid lengi.

Erum buin ad vera a finu hoteli i Belek (um 35 km fra Antalya) med hladbordi i morgun-, hadegis-, og kvöldmat. Luxus bara. Svo er legid vid laugina thess a milli. Litid a ströndina sem tilheyrir hotelinu en Julian fekk sar ofan a faeturna i rennibrautinni og sandurinn fer illa i thad. Allir, nema Seydi, ordnir brunir. Kallinn nennir ekki ad liggja i solinni og sefur mikid. Höfum passad okkur ad brunka okkur bara annan hvern dag, annars er haetta a bruna. Förum frekar i budir eda i skodunarferdir. Saum geggjad gil i gaer thar sem folk fer i rafting. Vid gerum thad thegar strakarnir verda staerri.

Vedrid er fint, ekki of heitt og 42 gr. er alveg haegt ad lifa af vid sjoinn eda sundlaugar. Ekki mikill raki, sa ad hann var um 50% um daginn. Annan daginn bara 35%.

Förum aftur til Antalya a morgun og verdum i allavega 2 daga thar. Borgin er ekki buin ad vaxa neitt sma sidan eg kom fyrst, mig minnir ad hun hafi haft um 500.000 ibua arid 1995 en nuna eru their taeplega 900.000!! Geggjad bara en sem betur fer hafa their byggt staerri götur og tekid mikla umferd ur midbaenum. En alltaf jafn gaman ad koma thangad.

Letum thvo thvott fyrir okkur og vorum ad na i hann samabrotinn of finan. Saum svo thetta netkaffihus vid hlidina, magnad.

Eg vaeri samt alveg til i ad vera a Vikinni nuna a maerudögum. Heyrdi i mömmu i gaerkvöld og thad var bara stud a lidinu. Rakel litla systir atti lika afmaeli. Til hamingju aftur :)

Goda skemmtun Husvikingar og bestu kvedjur fra okkur.

sunnudagur, 20. júlí 2008

Antalya

Erum buin ad vera her i Antalya sidan 17. og allt i hinu besta lagi. Hitinn er finn i dag (36 stig) en i gaer voru 42 stig! Nokkud mikid fyrir minn smekk. Forum a ströndina i fyrradag, baeinn i gaer og sundlaugin i dag. Skruppum svo til ad borda og fundum thetta netkaffihus,varla kaffihus heldur bara netbulla. Strakarnir ordnir svartir, serstaklega Henrik. Fyndid ad sja hann med hvita rassinn sinn :)

Erum ad leyta ad betra hoteli, erum bara med morgunmat ef morgunmat skal kalla: braud,te,olifur,aprikosumarmeladi,smjör,hunang, fetaostur, tomatar og gurkur. Ekkert ad drekka fyrir krakka, ekkert kaffi og ekkert morgunkorn. OK, Seydi thekkir eigandann en vid gistum t.d. tharna 1995 i minni fyrstu ferd hingad. Vantar samt allt fyrir krakka og kvöldmatur vaeri ekki verra. Thyrftum ekki ad fara af hotelinu a hverjum degi til ad borda.

En okkur lidur vel og allir hraustir. Sendum bestu kvedjur a Fron.

mánudagur, 14. júlí 2008

Frettir

Haldidi ad eg sitji ekki her a internetkaffıhusi og bloggi. İ einhverju litlu thorpi i midju Tyrklandi!

Ferdin hingad gekk vel. Keyrdum i gegnum Austurriki, Ungverjaland, Serbiu og Bulgariu. Erfidast var ferdin ad landamaerum Bulgariu, mikid af fjöllum,göngum og fjallvegum. Svo var dimmt i thokkabot. En eg aetla ekki ad fara i smaatridi nuna, er med tyrkn. lyklabord, ekki alveg eins og isl.

Vid gistum fyrstu nottina i Passau og sidustu rett hja Istanbul. Skruppum a ströndina vid Marmarahaf i gaer. Strakarnir alveg ad fila sig. Keyrdum til Kütahya i dag en thar a systir mömmu Seydi ıbud. Skruppum adeins i baeinn og keyptum sundskylur a strakana...........gleymdust vıst heima!!! Geggjud barnabud tharna, a eftir ad fara thar aftur.

Er svo nuna ı Altıntaş thar sem tengdo a hus. Afi var ekkert sma gladur ad sja strakana.......vissi ekki ad their kaemu, helt ad Seydi kaemi einn. Skildum strakana eftir hja theim i smastund nuna. Their satu uti og atu vatnsmelonu med afa.

Er ordid gott i bili elskurnar.

Kvedja ur 35 st. hita (a daginn) og sol.

föstudagur, 11. júlí 2008

Fréttatilkynning

Við erum í þann vegin að leggja af stað til Tyrklands. Vitum ekki alveg hvar við sofum í nótt, sennilega í Austurríki. Læt vita af mér. Reyni að finna internetkaffihús eða nettenginu. Fer með fartölvuna með mér.

Skjáumst kæru vinir

fimmtudagur, 10. júlí 2008

Heidi

Þeir sem vita hvað "facebook" er, kannast við það að finna löngu "týnda" vini, ættingja, kunningja á þessari sniðugu síðu.

Í dag fékk ég vinaboð. Það barst frá henni Heidi í Danmörku. Ég kynntist henni 1985 en þá kom skólabekkur frá vinabæ Húsavíkur, Álaborg, í heimsókn. Hún og vinkona hennar, Karina, gistu hjá okkur. Hálfu ári síðar fór svo bekkurinn minn í snilldar ferðalag til Álaborgar. Þá gistum við Helga Dóra hjá Heidi og hennar fjölskyldu. Ég man hvað mér fannst framandi að það var vín á borðum í kvöldmatnum. Þetta þekkti ég ekki.

Nú er Heidi orðin 38 ára eins og ég, á afmæli viku á eftir mér. Alltaf jafn sæt. Ég veit ekki hvað það voru margir strákar úr bekknum spenntir fyrir henni þarna í "denn" :)

Ég hef ekki séð Heidi augliti til auglitis síðan sumarið 1993 en þá heimsótti ég hana og kærastann. Þá áttu þau litla dóttur en síðan hafa þau eignast aðra. Lengi héldum við sambandi í gegnum bréf og jólakort. Seinna á netinu. Ég hafði ekki heyrt frá Heidi lengi og því kom þetta mér MJÖG skemmtilega á óvart.

Ég elska að grafa upp gamla vini. Ekki lesa neitt neikvætt út úr orðinu "gamla" OK.

Annað: Við erum sennilega að leggja í hann til Tyrklands á morgun. Á bíl. Fundum ekkert almennilegt flug + hótel. Ætli við komum þá ekki við hjá ættingjum Seydi á leiðinni. Hann langar örugglega að "sýna" afkomendur sína enda með endæmum vel heppuð eintök.........

Læt vita betur áður en við förum. Ég er allavega búin að pakka!


þriðjudagur, 8. júlí 2008

Flest er nú hægt

(Áður en ég byrja, mamma, ég var að skrifa ummæli til þín í síðustu færslu)

En jæja já, flest er nú hægt. Var eitthvað að hoppa um á fjarstýringunni í gærkvöld og lendi þá á þætti um lýtaaðgerðir! Reyndar var ekki verið að fjalla um nein lýti heldur lagfæringar á vinkonunni! Nánar tiltekið inni í leggöngunum.......eigin fitu sprautað þar í leggangsveggina (eða hvað þetta nú heitir) til að þrengja!!!!

Einhver frauka frá N.Y., vel klippt í framan, leyfði okkur að fylgjast með þessu. Greyið var búin að eignast 3 börn og fannst hún eitthvað of víð fyrir kallinn. Eftir aðgerðina fór hún á Wellness hótel til að "fela sig" og gat varla labbað. Mátti ekki gera "do do" í 6 vikur. Önnur ung þýsk framakona kom líka fram, með hárkollu, gleraugu og breytta rödd. Fannst þetta algert æði, kynlífið væri bara eins og í upphafi sambandsins en hún átti 1 barn.

Kvennsi sem talað var við mælti ekki með þessum aðgerðum. Myndast gætu sýkingar ofl.

Hvar endar þetta allt saman? Sumir eru orðnir svo ómennskir að það er eins og skrýmslasjóv að sjá þetta lið komið saman t.d. þotuliðið í St.Moritz. Sá líka þátt um vel klipptar og sprautaðar konur í Florida um daginn. Jeminn eini, þær hljóta að sjá eitthvað allt annað í speglinum en þegar ég sé þær í TV. Finnst þeim þær virkilega fallegar svona stífar og strekktar? Ég bara spyr.

Hvað segið þið um þetta allt saman?

Ég hef ekkert á móti lýta/fegrunaraðgerðum en allt er gott í hófi. Fólk með augnlok niður í augu skil ég vel eða með poka undir augum. En kommon, fita í leggöng eða afskornir skapabarmar........úff púff.

sunnudagur, 6. júlí 2008

Elsku mamma og pabbi


Þá eru þessar tvær yndislegu vikur búnar og þið komin í vonandi ekki of þunga umferð á Íslandinu góða.* Það er tómlegt hjá okkur núna. Við náðum að gera svo margt saman. Þið gátuð eytt miklum tíma með strákunum, þurftuð m.a.s. að sofa með þeim í herbergi.

Orð geta ekki lýst því þakklæti sem ég finn fyrir núna. Yndislegt er eiginlega rétta orðið yfir þessa daga.

Veðrið lék við okkur mest allan tímann fyrir utan þrumur, eldingar, högl og rigningu....... já og svo þessir þrír HEITU dagar með mest 34° hita.

Ekkert gekk í að fá ykkur til að huga að flutningum hingað, skiljanlega svo sem. En þið verðið að viðurkenna að veðrið er nú miklu betra hér ;) Og allar búðirnar mamma, hugsaðu þér. Þú gætir farið í H&M eða C&A á hverjum degi! Farið svo á kaffihús án þess að fara á hausinn.

Þið eruð svo yndisleg bæði tvö, hvort á sinn hátt. Ég sakna ykkar nú þegar :*( Takk fyrir ALLT.

Ykkar Inga Björk

PS: Verð samt að viðurkenna að ég sakna EKKI þýsku "Volksmusik" þáttanna eða laganna í útvarpinu ;)

*Þið komin í Borgarnes þegar þetta er skrifað, beint í lambakjötið.

þriðjudagur, 1. júlí 2008

Árið hálfnað

Kominn 1.júlí.......jeminn eini hvað tíminn líður hratt. Ég held að tíminn líði hraðar þeim mun eldri sem ég er. Mér finnst það allavega. Samt er ég svooooooo ung, sérstaklega í anda ;)

Fríða mágkona mömmu er fimmtug í dag. Er að spóka sig með fjölskyldunni í Tyrklandi í 40° hita. Til hamingju með þennan áfanga........

Mér fannst nú alveg nógu heitt hjá mér í dag. 31° sýndi mælirinn þegar mest var. Og ég brann í sundi........ég brann........ekkert alvarlega en mig svíður smá. Er líka með far eftir slaufuna á bikiníunu, ferlega asnalegt. Á sko svona bikiní sem er bundið aftan við hálsinn og helv... slaufan lá eitthvað asnalega og ég er með hvítan bletta aftan á hnakkanum! Hallærisleg.

Sendi þau gömlu í bæinn núna, enda veðrið indælt. Þau geta allavega setið inni á veitingastöðum núna. Reykingabann tók við hér í fylkinu í dag. Það verður fínt að fara og fá sér ís næst án þess að einhver spúi eitri til mín. Er samt "hrædd" um að einhver hverfispöbbaeigandi fari á hausinn, ef ekki tveir eða þrír. Fólk hættir kannski bara að reykja enda finnst mér mikið reykt hérna. Kemur í ljós.

Spáð ennþá meiri hita á morgun.....úff, púff. Veit ekki alveg hvað við gerum. Fórum voða gott út að borða í fyrradag. Tyrkneskur staður í Gelsenkirchen varð fyrir valinu og það var ekkert slor. Ma og pa voða ánægð. Ég líka, sérstaklega með það að rétt við staðinn var lestarstöðin og þar er Dunkin´ Donut staður......Ég bara vaaaaaaarð að fá mér kleinuhring. Fór á Dunkin´ fyrir 10 árum í Prag. Síðan ekki söguna meir. Vissi ekki einu sinni að þeir væru hér í Germany, fyrr en ég sá stelpu með Dunkin´ kassa þegar hún kom inn í lestina í Gelsenkirchen þegar ég var í lestarferð með Unni og Hlyni. Nú vantar bara Dominos. Mig langar stundum í ameríska pizzu. Þjóðverjar fíla meira þessa þunnu ítölsku. Hún er fín en ekki alltaf.

Ó, ég ætlaði ekki að blogga svona mikið. Takk fyrir að nenna að lesa.
Brunakveðja