sunnudagur, 6. júlí 2008

Elsku mamma og pabbi


Þá eru þessar tvær yndislegu vikur búnar og þið komin í vonandi ekki of þunga umferð á Íslandinu góða.* Það er tómlegt hjá okkur núna. Við náðum að gera svo margt saman. Þið gátuð eytt miklum tíma með strákunum, þurftuð m.a.s. að sofa með þeim í herbergi.

Orð geta ekki lýst því þakklæti sem ég finn fyrir núna. Yndislegt er eiginlega rétta orðið yfir þessa daga.

Veðrið lék við okkur mest allan tímann fyrir utan þrumur, eldingar, högl og rigningu....... já og svo þessir þrír HEITU dagar með mest 34° hita.

Ekkert gekk í að fá ykkur til að huga að flutningum hingað, skiljanlega svo sem. En þið verðið að viðurkenna að veðrið er nú miklu betra hér ;) Og allar búðirnar mamma, hugsaðu þér. Þú gætir farið í H&M eða C&A á hverjum degi! Farið svo á kaffihús án þess að fara á hausinn.

Þið eruð svo yndisleg bæði tvö, hvort á sinn hátt. Ég sakna ykkar nú þegar :*( Takk fyrir ALLT.

Ykkar Inga Björk

PS: Verð samt að viðurkenna að ég sakna EKKI þýsku "Volksmusik" þáttanna eða laganna í útvarpinu ;)

*Þið komin í Borgarnes þegar þetta er skrifað, beint í lambakjötið.

4 ummæli:

  1. Takk fyrir þessar frábæru tvær vikur við lifum á þessu lengi. Ferðin heim gekk í allastaði vel þrátt fyrir mikla umferð enda "volksmúsik" diskurinn á mest alla leið. Eg á örugglega eftir að koma aftur (hefur þú ekki fundið neitt sem eg gleymdi?) Farðu vel með þig og passaðu GULLMOLANA okkar.Kveðja mamma.

    SvaraEyða
  2. Daginn elsku mamma og pabbi.
    Gleymdi að segja ykkur að pabbi gleymdi tannburstanum sínum. Eða var hann orðinn ónýtur? Hef ekki fundið neitt fleira.

    Þið eigið samt eftir að koma aftur.

    SvaraEyða
  3. Sæl elskan. Pabbi þinn tók minn busta (alveg ruglaður kallinn) Á eg ekki svörtu sparibuxurnar mínar í skápnum hjá strákunum,ef ekki þá er eg rugluð líka. Við sjáumst. Kveðja mamma.

    SvaraEyða
  4. Ó jú, ekki bara buxur heldur fínn svartur jakki líka! Það er ekki spurning að þið komið aftur innan tíðar......

    SvaraEyða