þriðjudagur, 8. júlí 2008

Flest er nú hægt

(Áður en ég byrja, mamma, ég var að skrifa ummæli til þín í síðustu færslu)

En jæja já, flest er nú hægt. Var eitthvað að hoppa um á fjarstýringunni í gærkvöld og lendi þá á þætti um lýtaaðgerðir! Reyndar var ekki verið að fjalla um nein lýti heldur lagfæringar á vinkonunni! Nánar tiltekið inni í leggöngunum.......eigin fitu sprautað þar í leggangsveggina (eða hvað þetta nú heitir) til að þrengja!!!!

Einhver frauka frá N.Y., vel klippt í framan, leyfði okkur að fylgjast með þessu. Greyið var búin að eignast 3 börn og fannst hún eitthvað of víð fyrir kallinn. Eftir aðgerðina fór hún á Wellness hótel til að "fela sig" og gat varla labbað. Mátti ekki gera "do do" í 6 vikur. Önnur ung þýsk framakona kom líka fram, með hárkollu, gleraugu og breytta rödd. Fannst þetta algert æði, kynlífið væri bara eins og í upphafi sambandsins en hún átti 1 barn.

Kvennsi sem talað var við mælti ekki með þessum aðgerðum. Myndast gætu sýkingar ofl.

Hvar endar þetta allt saman? Sumir eru orðnir svo ómennskir að það er eins og skrýmslasjóv að sjá þetta lið komið saman t.d. þotuliðið í St.Moritz. Sá líka þátt um vel klipptar og sprautaðar konur í Florida um daginn. Jeminn eini, þær hljóta að sjá eitthvað allt annað í speglinum en þegar ég sé þær í TV. Finnst þeim þær virkilega fallegar svona stífar og strekktar? Ég bara spyr.

Hvað segið þið um þetta allt saman?

Ég hef ekkert á móti lýta/fegrunaraðgerðum en allt er gott í hófi. Fólk með augnlok niður í augu skil ég vel eða með poka undir augum. En kommon, fita í leggöng eða afskornir skapabarmar........úff púff.

6 ummæli:

  1. já, þetta er nú meira hvað boðið er upp á í "lýtar"aðgerðum. Spurning hvort það þurfi ekki að finna til nýtt orð yfir svona aðgerðir þar sem lýtaraðgerð er dregin af orðinu "lýti" og varla er hægt að segja að víð budda sé lýti? kannski smekkatriði með það! ég veit ekki betur en að náttúruleg aðferð sé til við þessum kvilla og kallast hún grindarbotnsæfingar...en þessar kellur nenna því auðvitað ekki;)

    ég er alveg á sömu línu og þú, öllu má nú ofgera!!!

    kv. Rakel sys

    SvaraEyða
  2. Alveg er ég sammála ykkur systrum... öllu má nú ofgera. Segi eins og Rakel... gera bara grindarbotnsæfingar, þær gera amk eitthvað gagn ef þær eru rétt gerðar:) Hélt að konur "víkkuðu" ekki svo rosalega mikið við að eignast börn að það væri eitthvað til vandræða... sennilega þá bara best að halda sig við 2 stykki en ekki þrjú eins og önnur kellan hehehehehe:D Og btw... fínt á þér hárið sæta mín

    SvaraEyða
  3. BWAHAHAHAHAHAHAHAHAHAH þetta er það fyndasta sem ég hef lesið lengi!

    Fólk er náttla bara bilað... alveg sammála þér Rakel mín, víð budda flokkast ekki undir lýti!

    kv, Guðný Þóra

    SvaraEyða
  4. Já stelpur mínar, þetta er ótrúlegt.

    Nýjasti þátturinn hérna er frú Birgitte Nielsen (fyrrv. frú Rambó) að láta laga ALLT. Í sjónvarpinu, þ.e. myndavélar með henni í öllum aðgerðum. Það sem sumir gera til að komast í sjónvarpið......já og stöðvarnar gera til fá áhorf!

    SvaraEyða
  5. já munur á lýtaaðgerðum, og fegrunaraðgerðum er heilmikill......

    mér finnst lýtaaðgerðir flestar eiga rétt á sér, ef um er að ræða lýti sem hrjá þann sem "ljótur" er...nei segi bara svona....

    en öllu má ofgera það er ljóst, ég sé annað slagið þátt hér sem kallast "doctor 90201" og er hann svona um aðgerðir í beverly hills...ekki lýtaaðgerðir, bara fegrunaraðgerðir, sem má svo deila um, hvort fegri viðkomandi! þegar nefið er farið að strekkjast út að eyrum finnst mér það læknanna að segja stopp....en allt er gert fyrir peninga, hversu fáránlegt það kann að vera!

    ég ætla ekki að dæma um budduaðgerðirnar, kannski hafi í einhverjum tilfellum eitthvað skemmst í fæðingum, við mömmur vitum hverslags átök fara fram, og þá kannski gera grindarbotnsæfingar ekki gagn....og vissulega finnst mér það þá í lagi að skella buddunni í viðgerð!!

    bestu kveðjur

    SvaraEyða
  6. Mikið rétt Stella, það er mikill munur á fegrunar- og lýtaaðgerðum.

    Trúðu mér, þessi gella frá N.Y. var einmitt á góðri leið með að nefið "strekktist út að eyrum" og hún gat varla lokað augunum né hreyft ennið. Need I say more ;)

    Auðvitað getur margt gerst eftir meðgöngu en það er samt ótrúlegt sem hægt er að "lagfæra".

    Hér er nokkuð stríð á milli "fegrunarlækna" og svo lýtaskurðlækna. Sumir eru voða duglegir að koma í TV, gefa aðgerðir og sýna sig.

    Margar fara t.d. til Póllands eða Tékklands í brjóstastækkun. Ef hún misheppnast er farið í TV og mistökin sýnd og þýskur læknir lagar..........

    En eins og ég sagði. Ég veit ekki hvar þetta endar, sérstaklega þetta með þessar strekkingar og sprautanir. Hvernig verður þetta fólk þegar það er eldgamalt? Kannski verður búið að finna upp eitthvað nýtt þá og við öll verðum eins og vélmenni.......

    SvaraEyða