fimmtudagur, 10. júlí 2008

Heidi

Þeir sem vita hvað "facebook" er, kannast við það að finna löngu "týnda" vini, ættingja, kunningja á þessari sniðugu síðu.

Í dag fékk ég vinaboð. Það barst frá henni Heidi í Danmörku. Ég kynntist henni 1985 en þá kom skólabekkur frá vinabæ Húsavíkur, Álaborg, í heimsókn. Hún og vinkona hennar, Karina, gistu hjá okkur. Hálfu ári síðar fór svo bekkurinn minn í snilldar ferðalag til Álaborgar. Þá gistum við Helga Dóra hjá Heidi og hennar fjölskyldu. Ég man hvað mér fannst framandi að það var vín á borðum í kvöldmatnum. Þetta þekkti ég ekki.

Nú er Heidi orðin 38 ára eins og ég, á afmæli viku á eftir mér. Alltaf jafn sæt. Ég veit ekki hvað það voru margir strákar úr bekknum spenntir fyrir henni þarna í "denn" :)

Ég hef ekki séð Heidi augliti til auglitis síðan sumarið 1993 en þá heimsótti ég hana og kærastann. Þá áttu þau litla dóttur en síðan hafa þau eignast aðra. Lengi héldum við sambandi í gegnum bréf og jólakort. Seinna á netinu. Ég hafði ekki heyrt frá Heidi lengi og því kom þetta mér MJÖG skemmtilega á óvart.

Ég elska að grafa upp gamla vini. Ekki lesa neitt neikvætt út úr orðinu "gamla" OK.

Annað: Við erum sennilega að leggja í hann til Tyrklands á morgun. Á bíl. Fundum ekkert almennilegt flug + hótel. Ætli við komum þá ekki við hjá ættingjum Seydi á leiðinni. Hann langar örugglega að "sýna" afkomendur sína enda með endæmum vel heppuð eintök.........

Læt vita betur áður en við förum. Ég er allavega búin að pakka!


2 ummæli:

  1. er þessi karina, stelpan sem við guðrún katrín gistum heima hjá þegar við fórum til álaborgar???

    gaman af þessu, það er nokkuð ljóst, annars er ég ekki að ná þessum leikjum og "könnunum" endalaust á andlitsbókinni. en það er gaman að hafa þetta sem svona gesta/skilaboðabók....

    ef þið skellið ykkur til tyrklands, leyfðu okkur þá að fylgjast með ykkur
    bestu kveðjur

    (ég sver það að þessir "skældu" stafir sem þarf að slá inn með skilaboðum verða fleiri og fleiri í hvert skipti sem maður kíkir hér inn...)

    SvaraEyða
  2. Það gæti verið að þú og Guðrún Katrín hafi gist hjá Karinu. Hún var ljóshærð með liðað hár.

    Ég er nú heldur lítið fyrir þessa leiki og co. á facebook, sammála þér með það.

    En hvaða skældu stafir? Meinarðu spam vörnin til að skrifa ummæli? Ég sé það náttúrulega ekki sjálf. Vona að það haldi ekki aftur af fólki að kvitta.

    Leyfi ykkur að fylgjast með já já.

    SvaraEyða