þriðjudagur, 1. júlí 2008

Árið hálfnað

Kominn 1.júlí.......jeminn eini hvað tíminn líður hratt. Ég held að tíminn líði hraðar þeim mun eldri sem ég er. Mér finnst það allavega. Samt er ég svooooooo ung, sérstaklega í anda ;)

Fríða mágkona mömmu er fimmtug í dag. Er að spóka sig með fjölskyldunni í Tyrklandi í 40° hita. Til hamingju með þennan áfanga........

Mér fannst nú alveg nógu heitt hjá mér í dag. 31° sýndi mælirinn þegar mest var. Og ég brann í sundi........ég brann........ekkert alvarlega en mig svíður smá. Er líka með far eftir slaufuna á bikiníunu, ferlega asnalegt. Á sko svona bikiní sem er bundið aftan við hálsinn og helv... slaufan lá eitthvað asnalega og ég er með hvítan bletta aftan á hnakkanum! Hallærisleg.

Sendi þau gömlu í bæinn núna, enda veðrið indælt. Þau geta allavega setið inni á veitingastöðum núna. Reykingabann tók við hér í fylkinu í dag. Það verður fínt að fara og fá sér ís næst án þess að einhver spúi eitri til mín. Er samt "hrædd" um að einhver hverfispöbbaeigandi fari á hausinn, ef ekki tveir eða þrír. Fólk hættir kannski bara að reykja enda finnst mér mikið reykt hérna. Kemur í ljós.

Spáð ennþá meiri hita á morgun.....úff, púff. Veit ekki alveg hvað við gerum. Fórum voða gott út að borða í fyrradag. Tyrkneskur staður í Gelsenkirchen varð fyrir valinu og það var ekkert slor. Ma og pa voða ánægð. Ég líka, sérstaklega með það að rétt við staðinn var lestarstöðin og þar er Dunkin´ Donut staður......Ég bara vaaaaaaarð að fá mér kleinuhring. Fór á Dunkin´ fyrir 10 árum í Prag. Síðan ekki söguna meir. Vissi ekki einu sinni að þeir væru hér í Germany, fyrr en ég sá stelpu með Dunkin´ kassa þegar hún kom inn í lestina í Gelsenkirchen þegar ég var í lestarferð með Unni og Hlyni. Nú vantar bara Dominos. Mig langar stundum í ameríska pizzu. Þjóðverjar fíla meira þessa þunnu ítölsku. Hún er fín en ekki alltaf.

Ó, ég ætlaði ekki að blogga svona mikið. Takk fyrir að nenna að lesa.
Brunakveðja

5 ummæli:

  1. já vá hálfnað, ég var ekki búin að spá í það......

    það var sett í lögbann hér í mínu fylki varðandi reykingar á veitingahúsum, skemmtistöðum og já bara allstaðar búið að útskúfa reykingarfólki, og ég get sagt þér, að ég elska það......

    chicago þykkbotna pizzurnar eru bestar, veit ekki hvort þú komst í tæri við þær þegar þú varst hér úti, en þær eru mikið þykkari heldur en dominos, og þá ekki bara botninn, heldur er pizzan eins og fyllt pæ, með alveg "gommu" af osti......(held ég viti hvað ég fæ mér í hádeginu í dag)

    bestu kveðjur til ykkar í hita, frá hitanum ljúfa hér hjá mér (ljúfur því það vantar rakann, sem venjulegar gerir hann slæmann)

    SvaraEyða
  2. Hér er reykingarbannið alls staðar í Þýskalandi. Okkar fylki var það síðasta ásamt einu öðru, til að innleiða þetta. Ég hef ekki látið reyna á þetta enn en ég veit að ég fór í verslunarmiðstöð fyrir jólin og fannst voða skrýtið að ég bara fann ekkert til í hausnum (eins og alltaf) eftir smá veru þarna. Þá kom í ljós að þar var reykingabann.......

    Ég fékk geggjaðar pizzur á Ken´s Pizza þegar ég var í USA. Fæ vatn í munninn þegar ég hugsa um bragðið mmmmmmm Sá á netinu að það er Dominos í Hollandi. Spurning um að skella sér á sunnudaginn. Fer sko með mö og pa þangað.

    Kveðja úr 35° hita.....

    SvaraEyða
  3. Hér á ÍSL er búið að vera reykingabann á veitingastöðum í rúmt ár, síðan 1. júní í fyrra og mér finnst það þvílíkur munur... fann svosem ekki mikið fyrir reyknum þegar ég var að drekka á skemmtistöðum en ég fann sko fyrir þessu þegar ég var ólétt... gat ekki verið nema í hálftíma-klukkutíma inná staðnum... en nú er öldin önnur, get alveg verið ólétt á skemmtistöðum núna, þó ég geri reyndar ekki mikið af því;) En allavegana til hamingju með reykingabannið:D
    Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt... styttra í jólin en síðan þau síðustu voru!!! Og litla dúllan mín verður komin í heiminn áður en við vitum af... innan við 2 mánuðir í settan dag svo þetta er allt að styttast.
    Njóttu síðustu daganna með foreldrana hjá þér dúllan.

    SvaraEyða
  4. Já ég hlakka til reykingabannsins. Ekki hægt að neita því :)

    Góða helgi

    SvaraEyða
  5. já, tíminn flýgur svo snnrlega áfram, mér finnst reykingabannið alveg hreint frábært og hissa að þetta skuli ekki hafa komið á fyrr. Það er ógeð að vera inni á veitingastöðum, þar sem púað er yfir manno ojoj. mmmmmm ég er að fara að gera pissu í kvöld..hún er geggjuð ef ykkur langar í uppskriftina :) með rjómaosti og venjulegum osti og allskynns gúmmulaði :) en mmmmmm hvað ég væri til í svona þykkbotna löðrandi í olíu, það er örugglega alveg sjúklega gott, þetta chicago...namminamm....
    Hafðu það gott með mö þinni og pa elsku Inga mín. Best að fara að skella sér og fá sér morgunmat.
    Alva.

    SvaraEyða