Keypti mér tryllitæki í morgun og prófaði þegar ég kom heim. Ég keypti mér "epilator" (fann ekkert íslenskt orð yfir trylltækið). Var búin að hugsa mig lengi um áður en ég keypti tækið, spyrja aðrar konur hvernig þeim líkaði osfrv. Svarið sem ég fékk frá þessum konum var "nei, nei, þetta er ekkert vont".........EKKERT VONT. Ég hlýt að vera alger "chicken". Mér fannst þetta allavega vont.
Sama segir um fæðingu. Margar (flestar) sögðu við mig "þetta er ekkert svo voðalega vont"......... EKKERT VOÐALEGA VONT. Fyrir mig voru þetta hræðilegustu verkir sem ég hef upplifað. Okey, launin voru yndislegt EN ég vildi samt að einhver hefði þorað að segja mér að það væri (mjög sennilega) vont að upplifa hríðir. Ég hefði samt ákveðið að eignast barn. Systir Seydi var nú viðstödd fæðingu Julian og sá hvað ég kvaldist en hún er nú að fara eignast sitt annað barn í september. Ég ætla allavega að segja við þær sem spyrja mig hvernig það sé að eignast barn "mér fannst það hrikalega VONT". Sjálfsagt hafa einhverjar ykkar upplifað stutta og "auðvelda" fæðingu en ekki ég!
Eftir fæðingu Julian óskaði ég mér líka að einhver hefði upplýst mig meira um það hvað gerist EFTIR fæðingu. Hvernig pjallan er og allt þar í kring! Okey, mismunandi eftir konum en það hefði mátt segja mér eitthvað smá allavega ;) Hvað
gæti gerst. Ef ég ætti dóttur myndi ég upplýsa hana um þetta fyrir fæðingu. Ekkert segja neinar horror sögur en upplýsa svo ekkert komi á óvart. Virðist vera eitthvað voðalegt feimnismál. Eins og þetta sé eitthvað nýtt!
Það er hins vegar eitt sem ég óttast: "Brazilian Wax". Það ætla ég aaaaaaaaaldrei að fara í. Nei, ég bara myndi ekki geta glennt mig framan í einhverja fína dömu og sársaukinn........nei nei nei. Þið sem farið í svona hljótið að vera með lágan sársaukaþröskuld. Á þýsku er til orðatiltæki "Wer schön sein will, muss leiden" Þýðir svo mikið sem "sá sem vill vera fagur, verður að þjást". Þá vil ég frekar vera bara ljót..........ha ha ha.
Sólarkveðja