sunnudagur, 31. ágúst 2008

Andlaust blogg

Ekki alveg með bloggandann yfir mér svífandi. Ætla samt aðeins að láta heyra í mér. Setti inn myndir hjá strákunum og ritaði smá hjá Henrik.

Ég held að þessi sumarhelgi með hlýju veðri og sól hafi sett innra úrið úr skorðum. Eiginlega var ég komin í haustgírinn. Hann er þægilegur, hvað er eiginlega orðið yfir "melancholy" á íslensku? Mér líður þannig á haustin. Er það að vera "melló" á slæmri íslensku? Þegar þokan hangir yfir og jafnvel rigningar finn ég innri frið. Að vísu elska ég eitthvað við allar árstíðir. Sól, sumar, strönd/sundlaugar á sumrin, borða úti osfrv.

Vetursins sakna ég hér, það kemur örsjaldan snjór og því er veturinn eina árstíðin sem ég fíla ekki alveg hér. Vorið er yndislegt, allt vaknar til lífsins eftir veturinn. Það má sjá jákvætt við hverja árstíð, það finnst mér.

Haustleg mynd (ekki eftir mig)


Eigið góða viku. Ég þarf til tannsa á morgun. Vona að Henrik opni munninn líka. Bíð svo eftir fréttum af nýjasta fjölskyldumeðlimunum. Sultan er sett 2.9.

Góða nótt á eftir


2 ummæli:

  1. erum við ekki bara angurværar....

    haustið er sko minn tími, ég verð alltaf voðalega dugleg á haustin, og byrjaði fyrir rúmlega viku síðan að gera allt sem legið hefur á hakanum lengi vel, en svo mætti hingað til mín hitabylgja sem ætlar ekki að fara neitt, hangir hér bara yfir okkur með 25 stiga hita dag eftir dag.....og ég datt úr dugnaðargírnum í þann lata sem heitir "geri þetta bara seinna"!!! og þar sem ég bý hér í illinois, þá veit ég fyrir víst að veðrið á eftir að gefa mér næg tækifæri til að sinna verkefnum, því þegar haustið og veturinn mætir þá fæ ég gefins marga mánuði í röð til inniveru, skrifta og dugnaðar....
    og því ætla ég að njóta síðustu sumardaganna og gera allt hitt bara SEINNA....
    farðu vel með þig vina

    SvaraEyða
  2. Er það orðið Stella, angurværar? Líst vel á það.

    Þekki þetta "geri það seinna" dæmi. Haustið er einmitt tíminn til að hreinsa út úr skúmaskotunum.

    Veðrið er ennþá fínt, 21° og skýjað, sól annað slagið.

    Farðu sjálf vel með þig.

    SvaraEyða