föstudagur, 22. ágúst 2008

Elsku afi

Hann afi Jón dó í morgun. Hjálmar bróðir var hjá honum og hringdi strax í mig. Það er alltaf sárt að missa ástvin en eins og þegar afi Jósteinn og amma Þórey dóu finnst mér ég máttlaus svona langt í burtu, allt svo óraunverulegt. Ég veit að ég á ekki eftir að hitta afa aftur en minningin lifir. Ég veit ekki hvað ég skal segja meira.

Elsku amma, mínar innilegustu samúðarkveðjur. Þú ert yndisleg.

Elsku allir, bið um kærar kveðjur til ykkar.

4 ummæli:

  1. elsku inga mín sendi þér, sem og allri fjölskyldu þinni, mínar innilegustu samúðarkveðjur!

    ég hitti afa þinn í fyrrasumar og spjallaði þá aðeins við hann, hann leit alltof vel út til að vera spássera um á þriðju hæð sjúkrahúsins. ég taldi fyrir víst að hann fengi að fara fljótlega heim í kotið sitt....
    en þetta er víst lífið, eitthvað sem ekki verður hjá komist, hann fékk langt og gott líf, og um meira er víst vart hægt að biðja!

    reyndu að vera hörð, það er það eina sem hægt er að gera svona fjarri öllum.

    heyri í þér fljótlega.....

    SvaraEyða
  2. Takk Stella mín
    Já hann fékk svo sannarlega langt og gott líf.
    Þó að hann hafi verið alveg klár í kollinum var líkaminn of lélegur til að hann færi aftur heim.

    Hjá mér heldur lífið áfram eins og vanalega. Henrik er í afmæli og Julian í baði. Ég gladdist m.a.s. áðan þegar Ísland vann Spán í handbolta.

    C´est la vie

    SvaraEyða
  3. Elsku Inga mín. Var að lesa þetta núna. Ég votta þér og þínum mínar innilegustu samúðarkveðjur og skil að þér finnist erfitt að vera svona langt frá öllum á svona stundu... en eins og Stella sagði, lífið heldur áfram og minningin lifir áfram um afa þinn. Bestu kveðjur til mömmu þinnar og allra heima á Húsavík þegar þú heyrir í þeim næst. Hugsa til ykkar.
    Kveðja frá tveggja barna móðurinni á Dalvík, hér er lífið að taka miklum stakkaskiptum, margt sem þarf að venjast og "stór" strákur sem þarf að hlúa vel að.
    Knús og kram:*

    SvaraEyða
  4. Takk Maja mín
    Þú varst nú líka upptekin við annað en að lesa blogg.
    Ætli þau heima lesi ekki kveðjuna frá þér en ég skal líka skila kveðju.

    Knús

    SvaraEyða