Mér finnst ég þurfa að blogga smá svona á föstudegi. Fyrstu viku frumburðarins í skólanum lokið og enn er voða gaman í skólanum (vona að það haldist sem lengst). Kallinn búinn að finna "vin" sem situr við borðið hans og heitir Kevin. Hann á sko ekki í vandræðum með það að kynnast fólki, svo mikið er víst. M.a.s. Florian vinur hans sagði við mömmu sína að Julian væri búinn að vera þarna í 1 dag og hann þekkti strax krakka! That´s my son.
Ég efast um að sá yngri verði svona glaður að byrja í skóla, margt miklu flóknara með hann. Var að sjá í fréttum að "vinstrihandarskrifarar" væru og hefðu verið miklir menn/konur. Að heili þessa "öfugra" myndi virka betur þar sem þeir noti bæði heilahvelfin meira en við þessi rétthentu.........ég held að Henrik sé þessvegna svona flókinn. Nei, nei, grín á föstudegi. Hann er bara þrjóskur eins og andsk..... samt voða ljúfur og góður. Hann var að taka smá rimmu rétt áðan, þessvegna skrifa ég þetta. Kemur bara beint í æði til ykkar, ekki amalegt.
En hann allavega vildi bara alls ekki horfa á einhvern disk sem Julian er núna að horfa á. Einni mínútu fyrr hafði ég spurt hvort hann vildi horfa á þennan disk og hann hrópar "jáááááá" Voða gaman. Mamma fer inn og ætlar að setja diskinn í en þá er drengurinn búinn að skipta um skoðun. Vildi frekar horfa á það sama og í gær........Og það var gargað og grenjað. Núna situr hann hér og skoða bók um hákarla. Skjótt skipast veður í lofti. Búið til fyrir Henrik minn.
Ákvað að vera bara heima í dag. Var með strákana á ferðinni í fyrradag. Skruppum til Goch (við holl. landamærin) og keyptum bíl. Skruppum aðeins yfir landamærin og keyptum Pickwick te ofl. Í gær löbbuðum við í bókasafnið og bæinn. Nóg komið af flandri. Veðrið er að vísu fínt, spáð var þrumum og eldingum. Sólin skín nú bara enn og ekkert bólar á óveðurskýjum. Þoli ekki þegar spáð er svona hrikalega rangt.
ÓL gengur hér daginn út og inn. Ég missti hins vegar af hörkuspennandi leik Íslands og Þjóðverja í handbolta. Vissi bara ekki af honum. Svona fylgist ég með! Þjóðverjar eru í 3ja sæti á verðlaunalistanum, enn. Ekki held ég að þeir haldi þessu sæti. Sá Pólverjann vinna fyrsta gullið í kúluvarpi áðan. Fyrsta gullið á þessum fuglshreiðursleikvangi. Fullt af frjálsum á næstunni. Ég mun reyna að horfa eins mikið og ég mögulega get. Fer kannski á flóamarkað í Dorsten á sunnudaginn. Vantar líka nýja þvottavél. Spurning hvort að kallinn komi nógu snemma til að fara í búðina í kvöld. Efast um það. Förum þá bara á morgun.
Orðið alltof langt hjá mér. Nennir einhver að lesa þessa þvælu?
Eigið góða helgi kæru vinir og ættingjar.
...ég nenni því;)
SvaraEyðaGÓÐA HELGI:*
Kv. R
flott að julian er sáttur við skólann! einfaldar lífið þitt til muna það er nokkuð ljóst....
SvaraEyðaarína mín er örvhent og þægilegra barn er vandfundið, hún hefur þá kannski skilið "flókheitin" eftir bara handa rétthenta bróður sínum....
ég held að þetta sé svona frekar "barn númer tvö syndrom" í jaxlinum...
bestu kveðjur
Gott elsku systir. Gangi þér vel í borginni. Frétti að þið hefðuð keypt bíl. Flott allt saman.
SvaraEyðaJá Stella, það er örugglega ekki auðvelt að vera "barn nr.2". Ekki vitum við hvernig það er.
Sá samt umfjöllun um örvhenta, margir US forsetar voru víst örvhentir og margir vísindamenn.
En hvað þýðir eiginlega "örvhentur"? Hvaða "örv" er þetta? Einhver íslensku sérfræðingur hér?
Sólarkveðja úr 24° hita.
kannski þetta komi af "öðrum" kosti, önnur en vanalega hendin...hver veit, sum af þessum elskulegu íslensku orðum er erfitt að átta sig á!
SvaraEyðaen já örvhentir láta ekkert eftir liggja þó heimurinn sé hannaður fyrir rétthenta, en það er þó líka sagt að örvhentir séu gjarnari á að lenda í óhöppum, og séu svolitlir klaufar... en er hægt að kalla það klaufaskap ef þeir ná því að skipta um gír með hægri, og stjórna bílum þannig, sæi okkur rétthentu höndla heiminum með okkar vinstri hendi!!
ég þekki marga örvhenta (annar hver í minni fjölskyldu er með þá hægri í algerri afslöppun) og þeir allir eru allflestir rólegir einstaklingar sem halda vel jafnvægi.....
snúðurinn þinn er barn númer tvö, þitt er svo valið hvort þú skellir honum í miðjuna, og látir á það reyna hvernig hann yrði sem miðjubarn í-ha.....
...ég er náttúrulega bara hlessa að Unnsa systir sé ekki búin að koma með svar við "örvhentunni" og hefur þó fengið 5mín. til þess;)
SvaraEyða...skora á hana hér með
kv. R
P.S. já keyptum okkur nýrri týpu af eins bíl og við áttum nema 4ra dyra:) steingrár og algjör kaggi...
nei heyrðu nú mig...Unnur hefur fengið miklu meira en 5 mín. því samkvæmt minni klukku er hún 18:32 og hélt að færslan þín hafi komið stuttu áður en vefsíðan fer auðvitað eftir þinni klukku.....þannig að hún hefur haft heila 2 tíma!!!
SvaraEyðakv. R
Sælar, haldið þið virkilega að ég hafi ekkert annað að gera en að skoða blogg!! Nú hef ég t.d. ekki farið í tölvuna í heila viku..
SvaraEyðaÞað hefur alltaf verið morgunljóst að barn nr. 2 gleymist oft, málið dautt.
Þetta með "örv", líklega komið upphaflega frá öfug(hentur) og þróast yfir í örv... þannig að ég er þá öfugfætt, skemmtilegt orð..
kannski þó skárra en að vera báðfætt eins og Sigrún Björg Alla bæs sagði einu sinni á æfingu.
Bestu kveðjur til ykkar allra.Unnsa Punns.
Þið systur eruð náttúrlega bara fyndnar :D
SvaraEyðaMér datt einmitt í hug þetta með "öfughentur". Hér heitir þetta nú bara "linkshänder" s.s. sá sem skrifa með vinstri.
En Unnur elskan. Þú gleymdist nú ekki aaaalveg er það nokkuð? En í dag getur þú verið númer 1 þar sem ég er fjarri heimahögunum ;) Reyndar tekur einkasonurinn mikla athygli........ha ha ha
Smá um örvhenta:
http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=3632
Vona að þetta virki.
Sólarkveðja
Gleymdi einu. Unnur, sko þú getur sko alveg gefið þér tíma til að skoða MITT blogg. Skíttsama með aðra. Ég er nú ekki bara einhver Jóna út í bæ er það.........Það er skylda að lesa bloggið mitt allavega annan hvern dag.
SvaraEyða:):):)
PS. Þetta átti auðvitað að vera "náttúrulega" hér fyrir ofan.
Við Henrik eigum greinilega amk. tvennt sameiginlegt... erum bæði fædd í krabbamerkinu og því miklar tilfinningaverur og erum bæði örvhent... há fimmu fyrir Henrik, nú er hann nýji vinur minn hehehehehehe:D Maður getur nú alveg verið pínu óákveðinn sko!!! Og þrjóskast og þvermóðskast hihihih:D
SvaraEyðaEnn ekkert að gerast hérna, langt síðan ég ákvað að krílið myndi koma 18.08.08 svo ég hef rúman sólarhring til þess að koma þessu frá mér... veit ekkert hvaða dagsetningu ég vel ef þessi rætist ekki... ætli ég verði ekki bara að láta það eftir krílinu að fá að velja sér sinn dag, reikna ekki með að ég geti stjórnað þessu neitt. Við höfum það annars bara fínt, vorum að gæsa Huldu systur í gær og gekk rosa vel, hún var alsæl með daginn og vona að henni hafi heilsast vel í dag;)
Góða Inga,ef ég á að skoða bloggið þitt annan hvern dag, skaltu vera klár með nýtt blogg annan hvern dag........
SvaraEyðaJá Maja, þú ert líka örvhent. Var búin að gleyma því :) Velkomin í vinahóp Henriks :)
SvaraEyðaEn gaman að Hulda sé að fara að gifta sig. Kveðja til hennar.
Unnur, það er líka oft margt að gerast í ummælunum. Annars á ég ekkert í vandræðum með að blogga annan hvern dag en þú ert greinilega ekki með sama húmor og ég.......