sunnudagur, 24. ágúst 2008

Handbolti

Sit hér í hálfleik eftir að hafa horft á leikinn á eurovisionsport.tv. Reddaði deginum þessi útsending því að hér virtust úrslit körfuboltans vera mikilvægari heldur en handboltinn! Sem betur fer er nú karfan búin en ég efast um að hér verði seinni hálfleikur sýndur beinn heldur frá byrjun. Sjáum til. Reyndar er þessi útsending á netinu aðeins á eftir lýsingunni á RUV en það er alltaf skemmtilegra að horfa heldur en bara heyra. Finnst mér allavega.

Jú, þeir ætla að sýna seinni hálfleik beint á eurosport, frá byrjun á ZDF. Best að setjast fyrir framan sjónvarpið. Þori ekki að spá um leikslok...........

2 ummæli:

  1. Ofurþreytta mamman hérna í Hjarðarslóðinni sofnaði nú bara yfir handboltanum í morgun... lítil sem engin mjólk komin ennþá í bobbana svo litla daman er soltið óróleg á nóttunni ennþá, en þetta fer vonandi allt að koma. Silfrið er nú bara nokkuð góður árangur finnst mér, átti ekkert frekar von á að þeir myndu ná gullinu þó svo að liðið þeirra sé mjög sterkt núna. Ég er amk sátt:D

    SvaraEyða
  2. Ég sá strax að Frakkar eru með ofursterkt lið. Við áttum varla séns. En þetta er auðvitað frábær árangur.

    Mig minnir að mjólkin komi almennilega eftir nokkra daga. Þetta kemur með kalda vatninu :)

    Gangi þér vel.

    SvaraEyða