mánudagur, 25. ágúst 2008

Heimþrá

Ég viðurkenni hér með að ég fékk heimþrá í gær. Réttara sagt, (heim)þrá í íslenskan mat..... Í gær var sýndur þáttur með þekktum bandarískum kokki, Andrew Zimmern. Hann fer á milli landa og kynnir sér og áhorfendum þjóðlegan mat. Kannski voru þessir þættir sýndir á Fróni??

Allavega var 1. þáttur frá Íslandi. Herra Zimmern fór fyrst og smakkaði hákarl, svo til Vestmannaeyja og borðaði grillaðan lunda, þar næst (minnir mig) í gufurekið eldhús á veitingastað (náði ekki nafninu: Kjöt og .....). Þar næst skrapp hann á bóndabæ og bjó til blóðmör, mmmmm. Síðan var búið til skyr og rjómi beint úr kúnni á öðrum bóndabæ og hann endaði hjá Sigga Hall og borðaði saltfisk. Fór auðvitað líka í Bláa Lónið. Já og hann fékk sér líka pylsu á Bæjarins bestu.

Já, ég fékk vatn í munninn við að horfa á þennan þátt. Hr. Zimmern var alltaf að taka það fram hvað ísl. eldhúsið væri einfalt og "frumlegt". Mikið notað beint úr náttúrunni. Ég er kannski gamaldags en mér finndist synd ef þessi matreiðsla myndi leggjast niður. T.d. að taka slátur. Vilja krakkar í dag slátur? Ég bara spyr eins og bjálfi utan úr heim...........

Kveðja úr 18° hita.

5 ummæli:

  1. vina mín.....maturinn sem þú telur upp er sá er ég fékkst/fæst ekki til að éta! nema jú pylsan og skyrið!
    alltaf þótt matvönd, en ég held það sé ekki rétt, ég var bara aldrei að fá rétta matinn........
    vonast til að sjá þig á IM sem fyrst!

    SvaraEyða
  2. Rétta matinn hvað! Slátur er herramannsmatur, já og saltfiskur. Reyndar var ég ekkert of hrifin af honum sem krakki.

    EN hákarl borða ég reyndar ekki. Sakna hans því EKKI, oj oj oj.

    Fuglakjöt finnst mér mjög gott, fékk örugglega lunda hér í gamla daga en þó oftar svartfugl. Nammi namm. (Borða þó ekki rjúpu)

    Matarkveðja úr pottunum (grænmetissúpa)

    SvaraEyða
  3. ég get alveg sagt þér það að flest börn eru vitlaus í slátur...alveg ótrúlegt:)
    en annars er gaman að segja frá því að stórfjölskyldan kom saman í gær í Koti og var SVO rifið í sig af signum silungi...og gerist það varla íslenskara en það:)

    saknaðarkveðja af Garðarsbrautinni,
    R

    SvaraEyða
  4. Oh Rakel, nú fékk ég enn meiri "heim"þrá. Hefði verið gaman að vera á staðnum. Heyri í ykkur í anda (ekki sé ykkur í anda, þú skilur)

    Slátur er magnað (nema lifrarpylsa ;))

    SvaraEyða
  5. Ég segi eins og Rakel... börn eru brjáluð í slátur... Alexander finnst það æðislegt og þegar það er í matinn í leikskólanum er eins og verið sé að borga börnunum fyrir að borða, þau borða svo mikið. Ég hins vegar borða bara lifrarpylsu, hef aldrei fílað blóðmör. En við erum nú misjöfn.

    SvaraEyða