Ansinn, ég klikkaði á bloggi í gær. En það er fjör í ummælunum svo að þetta hlýtur að vera í lagi :)
Kominn mánudagur og eitthvað klikkaði í skólanum í dag. Ég fór ekkert í vinnuna því að ég þurfti til kvennsa í reglulega hálf árs skoðun. Ætlaði svo að sækja Julian kl. 11:30 í skólann. Ég sé hvað hann kemur hlaupandi út, skólatöskulaus og fer að leika sér......ég hugsa "hmmm, er ég orðin rugluð eða hvað?" Sá samt aðra foreldra bíða. Við skiljum ekkert í neinu þegar ein stelpan segir við mömmu sína að leikfimin sé eftir! Við fórum því og töluðum við kennarann og þá hafði gleymst einn tími hjá henni. Þau eru s.s. búin kl. 12:30. Ég spurðu Julian hvort hann vildi fara heim eða í leikfimi og auðvitað vildi hann fara í sportið.
Ég er því eiginlega að fara að leggja af stað til að ná í hann. Ákvað samt að skrifa nokkur orð í tilefni nýrrar vinnuviku.
Sé að Völsungsstelpur hafa unnið Hött í gær. Frábært.
Ekkert að gerast hér svo sem. Fórum á flóamarkað í gær, keyptum ekkert merkilegt. Aðallega nammi.
Ég á eftir að blogga smá um ferðalagið, sérstaklega Serbíu. Kemur við tækifæri.
Eigið góða viku. Mamma, þú lætur mig vita þegar pakkinn kemur.
til kvennsa tvisvar á ári? er það evrópustandardinn?
SvaraEyðanú er bara vika í skólabyrjun hjá mínum ormum og ég er farin að telja svo ákvaft niður að klukkustundir og mínútur fá athygli líka....
ég byrja aftur núna á miðvikudaginn í einhverjum "black-board" tíma, í reglugerðum og burðaveggjalögum, gasalega gaman...allt á netinu, hef ekki hugmynd um hverju ég get átt von á....
sæt nýja ofurbrúna skvísumyndin þín
bestu kveðjur
ákvaft...slepptu því endilega að að lesa vaffið þarna..
SvaraEyða(ohhhh áðan þegar ég kvittaði þurfti ég bara að setja inn fimm staðfestingastafi, nú bíða mín heilir níu allir í klessu)
Hehehehe... bara gaman að fylgjast með orðaskiptum ykkar Unnar á blogginu, þið eruð æðislegar;D 18. runninn upp og enn ekkert að gerast svo ég verð víst að leyfa litla englinum mínum að fá að ráða þessu bara! Reikna ekki með að það gerist mikið hér eftir í dag, klukkan orðin meira en 5 og síðast tók þetta nú töluvert lengri tíma en 7 frá fyrstu verkjum... á alveg von á öðru eins núna þó flestir segi að önnur fæðing taki yfirleitt styttri tíma en fyrsta... ég verð nú pottþétt ekki ein af þessu heppnu í þeim málum... en þetta er allt þess virði:D Fékk mér langan göngutúr í morgun og er ekki frá því að bumban hafi aðeins sigið. Nú er bara að vera þolinmóð og bíða... og bíða... og bíða... og... hehe:D
SvaraEyðaHafðu það gott, alltaf svo gaman að lesa bloggið þitt, ert svo dugleg að blogga... annað en sumir hehemmm:/
Veistu Stella, ég tók ekki einu sinni eftir þessu vaffi! Þetta er eins og þegar maður les kolrangan texta, nema upphafs- og endastafur eru réttir en samt tekst manni að lesa allt rétt.
SvaraEyðaSko, ef þú ert á pillunni er mælt með að fara á 6 mán. fresti til kvennsa. Annars árlega. Veit ekki hvernig þetta er í öðrum Evrópulöndum. Jú á Íslandi. Er það ekki á 2ja ára fresti?
Já er ég ekki ofurskvísa ársins? Tók myndina sjálf, bara svona allt í einu. Er annars gjarnan á bakvið linsuna ;)
Gangi þér vel í skólanum, duglega skvísa.
Maja: Eins og kvittaði hjá þér eykst spennan mjög svo. Sko hjá mér var önnur fæðing mun auðveldari enda vissi ég á hverju ég átti von! Gat því hjálpa aðeins meira til við að koma krílinu út en ekki streitast á móti þessum hrikalegum verkjum.........úff.
Gangi þér æðislega vel. Bíð spennt eftir fréttum.
Vá, fallegt sólarlag núna eftir rigningar í dag. Svona getur lítið glatt mitt hjarta.