miðvikudagur, 27. ágúst 2008

Pirringur

Vá hvað ég er pirruð í dag, í gær reyndar líka. Hef allt á hornum mér. Allt sem strákarnir gera fer í mig, þeim tekst að rústa stofunni meðan að ég spjalla í "smá stund" við vinkonu á msn. Þvílík tillitsleysi hjá þessum ungu drengjum........

Ég sendi þá inn í herbergi núna. Þeir voru búnir að stúta fjórum jógúrtdollum, smá af innihaldinu fór á sófann (er sem betur fer með leður), dollurnar lágu hér, ekkert verið að fara með þær í ruslið, ó nei. Jú, Henrik fór með eina þeirra.

Ég verð að fara að aga þessa gemlinga betur, hætta að leyfa þeim að borða inni í stofu (og hætta því þar með sjálf líka), leyfa bara smá stund í tölvunni í einu, leika meira við þá (allskonar spil) eða drullast til að fara meira með þá út. Allt mér að kenna......

Þetta kom allt beint frá hjartanu. Það eru ekki allir dagar "Friede, Freude, Eierkuchen" (friður, ánægja og eggjakaka). Ætli allir þekki ekki svona daga, seinniparta myndi ég segja. Var rosa dugleg og hjólaði með Julian í bæinn áður en við sóttum svo Henrik í leikskólann, á hjólum auðvitað.
Ég held bara svei mér þá að ég sé sorgmædd yfir því að vera ekki heima núna. Nokkuð viss um það bara.

Strákarnir eru sáttir inni í herbergi, búnir að rústa fína kubbahúsinu sem ég myndaði en Henrik bað um það. Ætla að byggja eitthvað nýtt, eitthvað stórkostlegt. Þeir eru algerir byggingahönnuðir, sérstaklega Julian. Mynd af húsinu og brosi gemlinganna fylgir hér með. Þegar öllu er á botninn hvolft eru þeir yndislegir og ég er stolt af strákunum mínum.


Yndisástandið varði ekki lengi við.........Henrik er kominn fram. Julian vill víst ráða hvernig nýja húsið á að vera. Gott mál, þeir geta ekki verið saman daginn út og inn.

Hafið það gott elskurnar og njótið lífsins, dag eftir dag eftir dag :)

PS. Afsakið línurnar undir fyrrihlutanum ef músin fer yfir textann. Færði myndina og þetta kom svona.







3 ummæli:

  1. ætla prófa eina ferðina enn....ég hef ekki náð að staðfesta neitt hér inni, fæ alltaf rangur kóði....þó ég skrifi hann inn rétt, aftur og aftur og aftur...
    svo testing one two three...

    SvaraEyða
  2. vá gekk upp, en þá man ég ekkert hvað ég ætlaði að segja fyrr í dag, nema jú ap ég er ekkert hissa á því að heimþráin sé að berja á þér þessa dagana....
    heyrumst fljótlega

    SvaraEyða
  3. Hæ Stella
    ég er búin að taka þetta stafarugl af. Vona bara að ég fái ekki Spam á mig núna. Sjáum til, þá breyti ég þessu bara aftur. OK

    Kveðja

    SvaraEyða