mánudagur, 11. ágúst 2008

Spurning um........

.....að reyna að hnipra niður nokkur orð. Andinn er ekki alveg kominn en ég sit allavega hér í ró og næði meðan að strákarnir horfa á Pokemon.

Líka spurning hvort ég skrifi eitthvað meira um ferðalagið eða bara um daginn og veginn????
Get allavega skrifað um það að 28. júlí keyrt var á okkur í Antalya. Ekkert alvarlegt, hinn bíllinn er allur rispaður á hliðinni en hann straukst ansi vel við stuðarann okkar að aftan. Var ekki alveg að vanda sig að beygja inn í þrönga götuna, ekkert bólaði á stefnuljósi heldur (ég held að bílar í Tyrklandi séu yfir höfuð ekki með stefnusljós!) og þegar Seydi sagðist nú ná í lögguna því að þetta væri nú skaði á bílnum flippaði gaurinn út!! Ætlaði bara að ráðast á Seydi, smá trítill með tvær "gangstéttarsvölur" (lesist vændiskonur) í bílnum. Svo segir Seydi allavega, önnur þeirra varð alveg trítilóð og æsti sig allan tímann. Sagði við Seydi að hún myndi sko þéna meira á einu kvöldi en hann á heilli viku. Vá, en æðislegt. Við erum að kanna hvort við getum fengið tyrkneskan lögmann til að fá skaðann borgaðann. Seydi er viss um að gaurinn á bílnum hafi verið drukkinn (mælirinn sýndi 0,0) og að hann hafi látið mútað löggunni, þ.e. einhver stór gaur sem kom þarna eftir smá tíma. Seydi var EKKI par ánægður með sína landsmenn þetta kvöld.

Ekki skánaði það næsta kvöld en þá urðum við vitni af slysi. Bíll keyrði á vespu á fullri ferð, örugglega 80 km/h. Þar sem hjálmar virðast líka vera lítið notaðir var parið á hjólinu mikið slasað. Seydi hljóp fyrstur á slysstað, ég varð eftir hjá strákunum en forvitnin sigraði og ég sagði við strákana að ég ætlaði bara aðeins að athuga hvar pabbi væri! Ég sé smá eftir að hafa farið á slysstað. Tvær dældir í rúðunni sögðu mikið. En parið var allavega lifandi og konan gat sagt Seydi að þau ættu ættingja á ströndinni og brunaði Seydi til að ná í þau. Á meðan komu sjúkrabílarnir, LOKSINS, en einn ættinginn ætlaði gjörsamlega að fara inn í annan bílinn og lamdi á hurðina. Hvað gerir fólk ekki í æsingi. Sagði víst við bílstjórann að ef annað þeirra myndi deyja, myndi hann ekki lifa lengi!!! Bílstjórinn sko.

Þetta kvöld var Seydi MJÖG pirraður út í allt og alla, nema okkur sko. Fannst sjúkrabíllinn koma of seint, allir gláptu bara en gerðu ekkert að viti, ein konan hringdi í sjúkrabíl og sagði, svo sú slasaða heyrði, að konan væri nú bara að deyja....... Mynduð þið vilja heyra svona liggjandi á götunni stórslösuð? Umferðin þarna er bilun bara. Það búa jú tæplega milljón þarna en meðan að við vorum þarna höfðu komið 5 milljónir fljúgandi til Antalya plús allir sem koma á bíl, bæði Tyrkir og frá öðrum löndum. Flautað er á mann á gulu, 3 akreinar verða allt í einu 5, keyrt er á 80 þar sem 50 er hámarkshraði, fólk labbar hvar sem er yfir göturnar. KAÓS. Er sjálfsagt enn verra í einhverjum borgum en við vorum mjög fegin að komast í sveitina til tengdó. Það búa nú víst 6000 manns í þeim bæ en það ber ekki mikið á því.

Vorum líka heppin að lenda ekki í skógareldum. Um viku eftir að við fórum að gilinu brutust út skógareldar. Það brann víst eins stórt svæði og 17.000 fótboltavellir. Veit ekki hvort að það sé rétt því að Seydi er ekki sá besti að þýða fyrir mig. Tekur alveg hálftíma að hugsa yfir á annað tungumál :)

Nenniði að lesa meira? Julian byrjar í skólanum á morgun. Nú verður ekkert sofið út lengur :( Reyndar byrjar athöfnin klukkan 10 (messa kl. 9:15 en mér dettur ekki í hug að fara í hana) svo að eitthvað get ég sofið, þarf reyndar að koma Henrik í leikskólann fyrir 9. Hann var sko EKKI á því að fara einn í leikskólann í morgun. Ég þurfti að skilja hann eftir grátandi en það lagaðist víst fljótt. Það venst að hafa ekki stóra bróður. Ég veit ekki hvað Julian spurði oft hvenær við myndum ná í Henrik! Alveg eins og samlokur. Hundur og köttur þess á milli........

Veðrið er ágætt, um 22° og sól og skýjað til skiptis. Ekkert bólar á sumarveðri. Ætli það komi ekki í september þegar sundlaugarnar eru búnar að loka........útisundlaugar sko.

Hef ég meira að segja, held bara ekki í bili.

Knús

4 ummæli:

  1. þó svo að umferðarmenningin hér sé ekki alltaf eins og best verður á kosið, þá býð ég ekki í tyrkaland..hér eru þó reglur og það nokkuð strangar! þetta hljómar óttalega mexíkóskt allt saman, og mexíkaninn minn bíður ekki í að keyra sjálfur í mexíkó, hann kann ekki lengur á umferðarósiðina sem þar gilda svo mér finnst þið hörð að hafa haldið sjálf í stýrið......
    flottar myndinar allar...

    SvaraEyða
  2. Já ætli umferðarómenningin í Mexíkó sé ekki svipuð og í Tyrklandi. Ég keyrði ekki inni í bæjum en úti á landi var það í lagi. Keyrði smá en samt sem minnst.
    Keyrði samt allt Austurríki enda menning þar :D

    SvaraEyða
  3. HÆHÆ systir

    Það er nú meiri hasarinn í kringum ykkur verð ég að segja!!! Og get ég sagt þér að ég myndi ekki fyrir mitt litla líf taka þátt í þessari kaosumferð þarna úti, ÚFFÚFFÚFF...mér finnst nógu klikkuð umferðin hér í borginni-keyrt á 100 þar sem hámarkið er 70! fyndið hvað svona lítil borg getur virkað stór þegar svona mikil læti eru í fólki í umferðinni!

    Vonandi hafið þið komið endurnærð heim eftir fríið...myndirnar segja manni allavega að þetta hafi verið gott fjölskyldufrí:)
    Hafið það gott öll
    Heyrumst:)
    Saknaðarkveðja,
    R
    P.S. svo er frumburðurinn bara kominn í skóla...meira hvað tíminn líður!!

    SvaraEyða
  4. Blessuð Rakel
    Já ætli umferðin í R.vík sé nokkuð betri en í Antalya þó að þar búi um 10 x fleiri og enn fleiri á sumrin.

    Seydi einmitt spurði löggu eftir slysið hvað það mætti eiginlega keyra hratt þarna (þetta er innanbæjar og þar gildir eiginlega 50). Löggan svaraði "Keyrðu bara eins hratt og þú vilt, láttu bara ekki næla í þig"!!!! Glæsilegt, eða þannig.

    Gangi ykkur vel í borginni. Afmælisgjöfin er á leiðinni á Víkina. Þú getur náð í hana þar :)

    Knús

    SvaraEyða