Það er aldeilis, pabbi bara mættur aftur hjá "Silfur Egils". Meira sem hann er frægur kallinn. Þó svo að ég hafi nú takmarkaðan áhuga á pólitík, hvað þá á Íslandi, fannst mér pabbi flottur. Strákunum fannst ægilega merkilegt að sjá afa í "sjónvarpinu". "Halló afi" sagði Henrik og svo "hann heyrir samt ekki í mér". "Afi er með skegg" sagði Julian, "ég vissi ekki að hann væri með skegg" :)
Er ég þá ekki smá fræg núna? Ég ímynda mér það allavega ;)
Sólin bara skín og skín og skín, dag eftir dag. Opinn sunnudagur í dag og FULLUR bærinn af fólki. Kíktum á bílasýningu. Þar sá ég nokkra álitlega bíla. Seydi langar mest í Volvo CS 90 en mér myndi nægja svona lítill Colt. Mig dreymdi alltaf um að eiga Colt. Viðurkenni samt að mig langar mest í Ford Kuga............
Knús á ykkur
sunnudagur, 28. september 2008
föstudagur, 26. september 2008
Altweibersommer...
...kallast dagarnir núna þegar hæð er yfir landinu, stillt og sólríkt veður. Sólin skín því á alla köngulóavefina. Á ensku kallast þetta "Indian Summer". Á að vera svona áfram næstu daga. Heppilegt fyrir skipuleggjendur miðbæjarhátíðarinnar sem byrjar í dag og á sunnudaginn eru opnar búðir. Eitthvað verður um músík, bílasýning og eitthvað fyrir börnin. Nú er haustfríið byrjað svo að það má búast við múg og margmenni í bænum um helgina.Síðustu 3 daga hef ég þurft á skráningarskrifstofuna til að bæði skrá og afskrá bíla. Í dag þurfti ég reyndar ekkert að bíða en hina 2 dagana hef ég þurft að sitja þarna í allt að 1 og 1/2 tíma. Þar kennir ýmissa grasa eins og sagt er. Allt frá slæðukonunni í gamlan afa, frá "apecut" (sítt að aftan) gæja í mega beib. Oft sé ég sama fólkið aftur og aftur, fólk sem vinnur við að skrá og afskrá bíla t.d. fyrir bílasölur. Mér finnst alltaf jafn merkilegt hvað það eru til margar útgáfur af fólki. Reyndar finnst mér ég alltaf vera að sjá einhver sem minnir mig á einhvern sem ég þekki. Ein konan sem kemur oft þarna minnir mig t.d. á Völlu frænku, hún labbar m.a.s. eins.
Sjálfsagt var ekki allt hallærislegt á þessum unglingsárum mínum. Legghlífar eru OK, ég myndi sjálf ekki ganga með þær í dag, ekki heldur með kraga. Gæti hugsað mér að ganga með grifflur. Kannski var maður bara hallærislegur sjálfur. Þegar ég skoða myndir af mér finnst mér það stundum. Sérstaklega með broddaklippingu OG smá sítt að aftan.........*hrollur* eða með hárið í augunum í svörtum samfesting 1983! Jólamyndin, úff. Unglingaútlit á háu stigi. Ekki var maður gáfulegur á fermingarmyndunum. Pétur ljósmyndari spurði mig hvort ég væri ekkert máluð þegar ég kom í myndatöku???? Ég neitaði því nú enda ekki farin að nota þannig dót, var of mikill strákur til þess eða eitthvað. Ég mátti því klína einhverju púðri á mig og setja smá varalit til að ég liti nú út eins og ung kona en ekki ungur maður. Var reyndar með blóm í hárinu og þessa líka æðislegu sveiflu í toppnum.
Nei, mig langar ekki til að vera 14 aftur. Væri svo sem alveg til í að verða 25 aftur og líða eins og í dag EN það er bara ekki hægt. Allir eldast........ég líka.
Góða helgi
þriðjudagur, 23. september 2008
Alger Grýla!?
Það er svo sem ekkert nýtt að ég fylgi Julian í skólann en í morgun varð ég var við að 3 strákar voru að stríða Florian, þeir voru töluvert í burtu svo ég heyrði ekki alveg hvað þeir voru að segja við hann, nema eitthvað í sambandi við gröfur. Heyri að Florian segir þeim að þegja, hann getur alveg varið sig strákurinn enda næstum því höfðinu stærri en þessir 4.bekkingar, (hann er í 3ja bekk).
Hvað um það. Þegar við nálgumst þá segir Henrik hressilega "Halló Florian". Þá segir einn montrassinn "Ekki Florian, frekar Ruslakall" (Schrottmann). Ég sagði þá án þess að hugsa......"Er ekki í lagi hjá þér, ég þekki foreldra þína svo þú skalt passa þig"! *Steinþögn*. Við löbbum áfram og ég kveð strákana. Flori segir að þetta séu rugludallar. Montrassinn horfir á mig þegar við mætumst aftur og ég á móti með Grýlusvip........... Úps, var þetta heldur gróft hjá mér? Er búin að velta því fyrir mér í allan morgun hvort að þetta væri kannski hótun. Ég laug því ekki að ég viti hverjir foreldrar hans eru, systir hans er á deild með Henrik. Mamman er svona *ó, ég er svo fullkomin* týpa, frekar óvingjarnleg en sjálfsagt fínasta kona ef ég myndi kynnast henni. Pabbinn virðist vera fínn kall. Svo hefur það oft ekkert að gera með foreldrana hvernig krakkarnir láta þegar þau eru ekki nálægt.
Mér bara leiðist einelti því þetta er ekkert annað. Þeir voru þarna 3 gaurar að mana hvern annan upp í að finna eitthvað til að skjóta á Florian. Þeir vita alveg að hann er með öðruvísi áhugamál en flestir krakkar. Og hvað með það? Ég veit alveg að margir krakkar stríða og enn aðrir leggja krakka í einelti. Er ekki best að kæfa þetta bara í fæðingu? Ég hef svo litla reynslu af svona, nema þá það sem gerðist á mínum uppvaxtarárum en þá hét allt stríðni!
Hjálmar, þú hlýtur að hafa skoðun á svona. Var ég of grimm? Mér fannst montrassinn líka vera að skemma fyrir Henrik. Hann svona lítill að heilsa vini sínum. Kannski er ég að gera úlfalda úr mýflugu. Væri gaman að heyra ykkar álit.
Knús

sunnudagur, 21. september 2008
Nýtt/gamalt útlit
Var búin að fá leið á þessum skærgræna lit svo ég breytti aftur um útlit, þó ekki því að síðan var svona fyrir skömmu.
Dagurinn verður ekki eins og ég sagði í ummælunum. Bärbel hringdi og sagði að krakkahátíðin væri ekkert fyrir Florian en hann er með mjög "sérstök" áhugamál. Sem dæmi kaupir hann sér frekar vélsög eða borvél í byggingavöruverslun heldur en eitthvað dót ef hann fær pening í afmælisgjöf. Allt sem við kemur rafmagni, götugerð, byggingarvinnu og hreinlega allt "á bakvið tjöldin" er hans áhugamál. Þegar hann fer í tívolí hefur hann meiri áhuga á rafmagnsleiðslum, vatnsleiðslum osfrv. heldur en leiktækjum. En hann og Julian ná samt vel saman og leika oft saman í frímínútum.
Strákarnir eru ennþá á náttfötunum og ég bíð eftir því hvort mamma kíki á msn. Best að kveikja á Rás 2. Seydi er farinn í boltann. Veðrið er stillt, skýjað og 14° hiti.
Sé til hvað við gerum í dag. Kannski við rennum bara til Dorsten eða í Vestlandhalle. Nú eða bara í bíó.
Eigið góðan sunnudag

laugardagur, 20. september 2008
Áður en...
...kommentin í vefdagbók Julian fara út í eitthvert systra rifrildi ætla ég frekar að blogga hér. Það er þá hægt að skrifa ummæli um það hér :)
Fyrir þá sem ekki vita um hvað málið snýst þá heldur Unnur systir að ég hafi bara við góð í að kasta kúlu.........uhu uhu, ég er svo sár :´(
Þetta var nú meira grín með hver er sprettharðastur, eða var. Ég veit alveg að ég hljóp hratt sem krakki/unglingur, vann mörg verðlaun fyrir það, ekki bara fyrir að kasta kúlu. Er það mont að segja þetta? Þetta eru bara staðreyndir.
Í dag held ég samt að báðar systur mínar muni hlaupa hraðar en ég enda í feykigóðu formi báðar tvær. Minn íþróttaferill var stuttur og íþróttir taka lítinn tíma af mínu lífi í dag. Eiginlega eru hlaupin hér upp á 4. hæð eina íþróttin sem ég stunda daglega. Af og til hjóla ég í bæinn eða um sveitir. Mér finnst alveg hræðilega leiðinlegt að hlaupa úti, ég nenni ekki í líkamsrækt og gef mér bara ekki tíma til að fara t.d. út að labba reglulega.
Nú þegar maður nálgast fertug, er ekki seinna vænna en að fara að huga vel að heilsunni. Verður ekki alltaf erfiðara að leggja af? Mig minnir að ég hafi lesið það. Reyndar er ég alveg heilsuhraust, get alveg hlaupið upp og niður stigann án þess að blása (mikið) úr nös. Mestar áhyggjur hef ég af mjöðmunum, ég verð að passa mig þar og muna að vera með innlegg í öðrum skónum. Annar fóturinn er sko minimal styttri en hinn.
Nú er ég farin að gera mér einhverjar grillur! Ég er svo löt að ég nenni engan vegin að hreyfa mig of mikið. Finnst ömurlegt að reyna of mikið á mig. Þessi innri "svínahundur" (eins og sagt er hér) er ansi þrjóskur hjá mér og erfitt að vinna á honum. Já, ég viðurkenni bara að ég nenni bara ekki að reyna á mig............og hananú.
Mér finnst samt gaman að hjóla, verð bara að fá mér almennilegt hjól. Þoli ekki þetta 3ja gíra hjól sem ég á. Alltof erfitt að stíga það! Ha ha ha. Kemur enn í ljós hvað ég nenni ekki að reyna á mig. Afsakanir og ekkert nema afsakanir. Svona er þetta bara. Ætti ég ekki bara að fara í jóga? Veit samt ekki hvort að það sé svo góð hugmynd. Ég er svo ofboðslega óliðug og get ekki setið í þessari jógastellingu með beint bak, alveg ómögulega. Sumir geta þessa stellingu, m.a. Seydi og Julian, já og ein ónefnd sem festist með fæturnar aftan við haus, uppi í glugga! Alltaf jafn fyndið að rifja það upp. Ég var voða afbrýðisöm úti liðugleika þessarar ónefndu. Ég var eins og spýtukall við hliðina á henni, með mína stóru vöðva og feitu læri.
En ég var samt spretthörð.............
Góða helgi
PS. Plön breyttust, Seydi fer til Franfurt á morgun. Er núna með Henrik á rúntinum og við Julian ætlum að fara út í góða veðrið.
PPS. Þetta blogg er skrifað beint upp úr hugsunum mínum, ég les bara yfir til að kanna hvort það séu nokkuð of margar villur. Elska ykkur.

fimmtudagur, 18. september 2008
Húrra...
...og jibbí jei eins og mamma orðaði sms´ið til mín í gær. Pakkinn er kominn!!!! Ég er viss um að þeir hjá póstinum hafa fengið hugboð frá mér en ég fyllti út eitthvað eyðublað, til að láta leita að pakkanum, á föstudaginn. Efast um að það eyðublað hafi verið komið í hendur þeirra sem voru ekki að vinna vinnuna sína. En þetta er gott mál bara, pakkinn var heill á húfi. Samt hulin ráðgáta hvar hann hafi falið sig allan þennan tíma.
Eins og þið vitið hef ég verið að leika mér á "yearbookyourself" undanfarið. Ég er ekki að grínast með það að mér finnst ég kannast við ansi margar greiðslur þarna, eru eins og beint upp úr skólabókinni minni frá USA! Það er heldur ekkert grín að ég sé eins og Brian sem útskrifaðist með mér, Brian Harris. Því miður gleymdi ég, enn og aftur, að taka bókina með mér hingað. Kannski getur einhver á Garðarsbrautinni kíkt í bókina og borið myndirnar saman. Getur samt eiginlega ekki verið því að þessi "Brian" greiðsla á að vera frá 1992 og ég var nú þarna 1988. Jeminn eini, það eru 20 ár síðan...........Og ég er að missa af 20 ára bekkjarmótinu sem haldið verður um þarnæstu helgi :( Verst að vera ekki milljónamæringur með einkaþotu.
Sólin skín, hitinn er um 14°, gott mál bara. Er á leiðinni í bókasafnið á eftir (eins og oftast á fimmtudögum).

miðvikudagur, 17. september 2008
Ekki segja mér....
mánudagur, 15. september 2008
Áður en ég gleymi
Einhvern tímann var ég búin að segjast ætla að blogga um Serbíu. Best að gera það áður en ég gleymi því....
Ég vissi ekki alveg við hverju ég ætti að búast þegar vitað var að við myndum keyra í gegnum Serbíu á leiðinni til Tyrklands í sumar. Fáfræði veldur fordómum, segi ég bara. Ég vissi auðvitað að þeir unnu Eurovision og héldu keppnina með glæsibrag en ég vissi líka að alls konar villimenn halda sig þarna ennþá. Kom jú í ljós að Karacic var handtekin meðan að við vorum í Tyrklandi. Í Belgrad, borginni sem ég var nýbúin að keyra í gegnum....
En hvað um það. Það var nú ekki auðvelt að komast inn í landið. Serbía er jú ekki í EB og þegar við sáum löööööööööngu röðina við landamæri Ungverjalands-Serbíu snérum við við, Seydi fann einhvern tyrkneskan vörubílstjóra á bílastæði þarna rétt hjá og hann vísaði okkur á minni landamæri í um hálftíma fjarlægð. Við þangað.......í gegnum skóga Ungverjalands á litlum sveitavegum. Mjög fallegt umhverfi. Þegar við komum á landamærin voru kannski 10 bílar að bíða! Vá, við heppin. Fréttum seinna að fólk hefði beðið í allavega 5 tíma við hin landamærin. Landamæraverðirnir voru ekkert nema almennilegheitin, sérstaklega þeir í Serbíu. Kunnu m.a.s. aðeins í tyrknesku enda keyra þarna þúsundir Tyrkja í gegn á sumrin.
Við keyrum svo aðeins um sveitir Serbíu áður en við komumst aftur á hraðbrautina. Ekkert smá sem Serbar hafa byggt upp vegina hjá sér og byggt fínar og flottar bensínstöðvar með reglulegu millibili. Þar var fólkið líka ekkert nema almennilegheitin og við keyptum rosa gott Fanta með ananasbragði (keyptum það aftur á leiðinni heim, ég bara varð....) Það var dálítið þreytandi að keyra í gegnum Belgrad enda engin hraðbraut svona meðfram eins og t.d. í Sofia í Búlgaríu. En Serbar eiga örugglega eftir að redda því. Reyndar verður örugglega ekki eins auðvelt að búa til hraðbraut skammt frá landamærum Búlgaríu en þar eru þvílíkir klettar og göng í gegn (Sicevo Canyon á milli Bela Palanka og Nis). Við keyrðum þarna í myrkri og ég vissi ekki hvar við værum lent! Sá bara kletta við hliðina á bílnum og göng annað slagið. Á leiðinni til baka sá ég þetta betur en gat ekki tekið neinar myndir þar sem erfitt var að finna stað til að stoppa og ég var við stýrið. Þarna keyra hundruðir ef ekki þúsundir flutningabíla í gegn. Samt var betra að keyra þessa leið heldur en í gegnum Rúmeníu. Þeir hafa alveg misst af lestinni, ekki byggt neina almennilega vegi svo nú keyra allir Tyrkirnir í gegnum Serbíu, þó svo að Rúmenía sé í EB og landamæravarslan í lágmarki. Ég sakna þess ekki að keyra í gegnum Rúmeníu!
Video af Sicevo Canyon:
http://www.youtube.com/watch?v=PgqoiOzuQg0
Mig langaði bara að koma þessu frá mér. Serbía kom okkur Seydi skemmtilega á óvart sem nútímalegt land með vingjarnlegu fólki. Eins og maður hafi búist við einhverjum ribbaldalýð og sundurskotnum húsum!!!
Já og á leiðinni heim.....jeminn eini, ég á bilaðan mann! Við komum að landamærunum til Ungv.lands og sáum röð, ekkert mjög langa EN það tók heila eilífð að komast áfram, við hreyfðumst kannski 2 metra á hálftíma....sáum landamærin og allt en ekkert gekk. Eftir að hafa komist í gegnum tollinn í Serbíu, vorum s.s. á "milli landamærastöðva" fær Seydi þessa frábæru hugdettu að fara aftur inn í Serbíu og á hin landamærin. Við vorum næstum því búin að fara þangað aftur en Seydi ákvað að láta á reyna, þ.e. fara á stærri landamærastöðina. Og vitiði hvað maðurinn gerði! Hann tróð sér í gegn um röðina, á ská og afturábak........við fórum aftur inn í Serbíu og keyrðum á minni landamærin......ég hélt ég yrði ekki eldri. Tollgæslumaðurinn hló nú bara að okkur og grínaðist. Seydi flýtti sér heldur mikið í Subotica að löggan stoppaði hann á 63 km/h (50 var hám.). Seydi röflaði svo mikið í honum að á endanum létu þeir 10 Evrur nægja. Ætluðu að senda okkur í hraðbanka og alles. Seydi er ekki eðlilegur. Á "litlu" landamærunum grínuðust þeir líka í okkur. Núna erum við allavega með fullt af stimplum frá Serbíu í pössunum okkar! Það var komið kvöld og við keyrðum bara eins og alein í heiminum um sveitir Ungverjalands, GPS tækið hafði ekki hugmynd um hvar við vorum svo við keyrðum eftir korti og það var róandi að sjá ljósin í Búdapest eftir að hafa keyrt yfir einhverja risa brú yfir Dóná. Ég veit ekki hvað við keyrðum oft yfir Dóná á þessu ferðalagi. Ég hefði átt að vera með videovél...... Punktur.
Haustið er komið. Það var kalt í dag, bara um 14° og skýjað. Ég elska haustlyktina sem kemur af manni eftir smá gönguferð. Eða að þvottinum sem hangir úti. Unnur: Sá að þú elskar líka haustið ;)
Knús á ykkur sem nennið að lesa.
Ég er allavega glöð að hafa kynnst Serbíu, þó ekki hafi verið nema á bensínstöðvum og svona útum gluggann. Væri alveg til í að fara þangað í frí.

fimmtudagur, 11. september 2008
Heiladauð
Ég er svo heiladauð núna eftir að hafa setið á barnaspítalanum í Datteln í tæplega 3 klukkutíma. Það á örugglega eftir að koma tóm steypa frá mér núna.....
Ekki halda að eitthvað hafi komið fyrir, nei nei. Henrik átti tíma hjá talmeinafræðingi ofl. þarna. Fyrst fór hann í voða flott heyrnaprófa og það gekk rosa vel, kallinn var bara eins og best agaða barn í heimi :) Svo kom smá bið og þar næst fór hann í talpróf. Það gekk líka voða vel nema það kom í ljós að hann þarf hjálp við að segja suma stafina. Ætli þetta heiti ekki essmæltur á íslensku. Það er líka alveg rosa erfitt að segja t.d. "sch" á þýsku, prófiði bara.......En allavega, eftir þetta þurftum við að bíða í tæplega klukkutíma eftir að læknir liti á hann, í eyrun og munninn. Ekkert merkilegt að sjá þar nema smá kvef.
Við þurfum s.s. að fara að leita að góðum talmeinafræðingi til að fara til. Fyrst fengum við "reseft" (hvernig er þetta eiginlega skrifað???) upp á 10x45 mín. tíma. Sjáum til hvað kemur út úr því. Eigum að melda okkur aftur á spítalanum í apríl/maí.
Sólin skín á næstum því heiðum himni og hitinn er um 28° í dag! Á nú ekki að vera neitt svona áfram en enginn kuldi á nánd. Gott mál bara. Ætla í bóksafnið með Bärbel og Florian á eftir. Kannski við fáum okkur ís eða eitthvað sniðugt í þessu góða veðri.
Og já, það er kominn fimmtudagur og ég verð eiginlega að labba á pósthúsið til að byrja að láta leita að pakkanum. Geri það kannski í fyrramálið. Best að leyfa þeim að fá séns í dag til að koma pakkanum til skila andsk.... hafi það.
Skellti mér á eitt stykki "Senseo" kaffivél í gær. Langaði voða í hana og þar sem hún var á tilboði ákvað ég að láta slag standa. Til hamingju ég...

mánudagur, 8. september 2008
Hitt og þetta
Er ekki komið nóg af þessum geggjuðu myndum af mér???
Hef verið að skoða margt á netinu í dag, aðallega fréttir á mbl.is og blogg sem því fylgir. Las um einelti, "endalok heimsins" á miðvikudaginn, komu flóttamanna til Akraness í kvöld, afþökkun Söruh Palin í Oprah, mosadauða við Hellisheiðavirkjun og eitthvað fleira. Kom s.s. víða við í dag. Á eftir að kíkja í vefmyndavélina á Víkinni góðu, þá er þetta orðið ágætt.
Skemmtilegast í dag var samt að tala við Unni systur. Við höfum ekki heyrst í aaaaaaaaaalltof langan tíma. Ég er alltaf að fara að hringja í hana.......og fleiri. Er voða ódugleg við að hringja í fólk. Nema þegar það á afmæli kannski. Þá hellist yfir fólkið mitt, e-kort, sms, kannski pakki og hringing. Mætti samt taka mig á og hringja oftar í fólk, heyra röddina.
Pakkinn sem ég sendi til Íslands fyrir tæplega fjórum vikum er en EKKI kominn! Ég er vægast sagt orðin reið........eins gott fyrir pósthúsliðið að pakkinn komi fyrir fimmtudag því ef ekki mun ég storma niðureftir og hella mér yfir liðið. Verst er að þetta var böggull og því enginn fylgimiði, ekkert númer til að leita að. Einu sinni lenti pakki frá mér til Bólivíu!! Finnst ykkur það eðlilegt? Ég vona að pakkinn hafi "bara" lent óvart á Írlandi. Þeir hljóta að koma honum til skila. Finnst nú 4 vikur heldur langur tími. Ég bara skil þetta ekki. Ætli einhver hafi bara stolið honum? Ekki voru nú mikil verðmæti í honum, peningalega séð. Verst finnst mér um fötin hennar mömmu sem hún gleymdi hjá mér! Ég verð að vera jákvæð og trúa því að pakkinn komist til skila.
Nóg komið að nöldri. Veðrið er alveg geggjað núna, sólin skín hérna á svalirnar og hitinn á að fara í 26° á morgun. Enn og aftur komið "síðsumar". Ég var að vonast til að fara að nota nýja jakkann minn en hann verður sennilega að bíða í smá stund í viðbót. Síðsumur eru fín.
Jæja, þvottavél númer 3 er að vinda. Bara handklæði,hendi þeim nú í þurrkarann. Eða hvað......nú er þurrkurinn svo fínn úti. Kannski ég hengi þau út á svalir bara......

laugardagur, 6. september 2008
Sniðugt
fimmtudagur, 4. september 2008
Mig langar oft...
...til að vera betri HúsMóðir. Baka brauðið sjálf, elda góðan mat, þrífa allt ryk um leið og það sest, viðra sængur á hverjum degi, leyfa engu rusli og drasli að leynast undir sófum eða uppi á bekkjum og borðum, spila við strákana (Ludo og svona dót), föndra með þeim í gríð og erg, láta tölvuna hvíla sig í nokkra daga *glætan*, strauja þvottinn! *glætan* ofl. ofl.
Ég bara nenni því engan veginn............Er kannski til eitthvað sem heitir "Góð húsmóðir"? Ég bara spyr. Gerir ekki hver það sem hann getur/vill? Ó, ég gleymi að nefna "húsfaðir". Ekki má nú mismuna neinum.
Er ég eitthvað verri en aðrir þó ég straui ekki þvottinn minn eða skúri ekki gólfin annan hvern dag? Ég fíla krumpuð föt og meðan að ég festist ekki við gólfið.....
Mér finnst líka frekar leiðinlegt að elda mat.......í alvöru. Vil helst henda einhverju fljótlegu í ofninn og "voila", gjörið svo vel :) Ekki halda að ég eldi ekki annað slagið, eitthvað verður maður að borða, já og kallarnir mínir líka. Nú er mig farið að langa í alvöru nautasteik, smá blóðuga með kartöflubátum og geggjaðri piparsósu mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Heimilisverkin eru verk sem taka aldrei neinn enda..................
Nýja þvottavélin er góð, búin að þvo 3 vélar í dag.
Jeminn, mætti halda að ég væri í einhverri krísu. Er það ekki, vantaði bara eitthvað til að blogga um. Hahaha.
Smá viðbót. Sumar konur hér eru með svo mikið hreingerningaræði að það er eins og að koma inn í húsgagnaverslun þegar gengið er inn fyrir dyrnar! Sitt sýnist hverjum. Ég læt ekki húsverkin stjórna mér, geri þau þegar mig langar og hef tíma (lesist, gef mér tíma).
Knús á ykkur.

þriðjudagur, 2. september 2008
Lokun
Ég hef ákveðið að loka blogginu á mogganum. Get ekki einu sinni vistað 1 línu og EKKI bloggað við fréttir. Orðið þreytandi að halda þessu úti fyrir ekki neitt. Kannski reyni ég aftur seinna.
Annars er allt gott að frétta. Allir voða góðir hjá tannsa í gær og tennurnar í góðu lagi. Tannsi bætti aðeins við aðra framtönnina mína en ég braut úr henni með skeið fyrir 2 árum eða svo. Orðin heldur þunn greyið.
Veðrið er fínt, 21° hiti, rigning og sól til skiptis.
Nýja þvottavélin kemur á fimmtudag! Jibbí, hef verið að nota gamla AEG vél u.þ.b. frá árinu 1965 á meðan ég bíð. Ótrúlegt að þessi skrukka skuli þvo ennþá. Svona voru gæði í "gamla daga".
Er að hlusta á Rás 2 núna, líka í vinnunni í morgun. Geri það bara alls ekki oft, skemmtileg tilbreyting.
Fann hafrakodda hjá Aldi í dag. Strákarnir eru að verða búnir með pakkann.........eru þó ekki eins góðir og þeir sem fást á Íslandi.
Var stolt að sjá mynd af litla bróðir á mbl.is, hjálpa skipverja af Sigurpáli í land. Björgunarsveitin klikkar ekki. Gott að allt fór vel.
Farið vel með ykkur
ES. Fædd er lítil frænka strákanna, alveg á settum degi. Heitir Lia-Denise segir Seydi. Veit ekki hvort að hann hefur heyrt rétt. Kemur í ljós þegar ég heimsæki mágkonu mína.
ES. Komið í ljós, hún heitir Liya Denise. Ætlum í heimsókn á eftir.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)