þriðjudagur, 23. september 2008

Alger Grýla!?

Það er svo sem ekkert nýtt að ég fylgi Julian í skólann en í morgun varð ég var við að 3 strákar voru að stríða Florian, þeir voru töluvert í burtu svo ég heyrði ekki alveg hvað þeir voru að segja við hann, nema eitthvað í sambandi við gröfur. Heyri að Florian segir þeim að þegja, hann getur alveg varið sig strákurinn enda næstum því höfðinu stærri en þessir 4.bekkingar, (hann er í 3ja bekk).

Hvað um það. Þegar við nálgumst þá segir Henrik hressilega "Halló Florian". Þá segir einn montrassinn "Ekki Florian, frekar Ruslakall" (Schrottmann). Ég sagði þá án þess að hugsa......"Er ekki í lagi hjá þér, ég þekki foreldra þína svo þú skalt passa þig"! *Steinþögn*. Við löbbum áfram og ég kveð strákana. Flori segir að þetta séu rugludallar. Montrassinn horfir á mig þegar við mætumst aftur og ég á móti með Grýlusvip........... Úps, var þetta heldur gróft hjá mér? Er búin að velta því fyrir mér í allan morgun hvort að þetta væri kannski hótun. Ég laug því ekki að ég viti hverjir foreldrar hans eru, systir hans er á deild með Henrik. Mamman er svona *ó, ég er svo fullkomin* týpa, frekar óvingjarnleg en sjálfsagt fínasta kona ef ég myndi kynnast henni. Pabbinn virðist vera fínn kall. Svo hefur það oft ekkert að gera með foreldrana hvernig krakkarnir láta þegar þau eru ekki nálægt.

Mér bara leiðist einelti því þetta er ekkert annað. Þeir voru þarna 3 gaurar að mana hvern annan upp í að finna eitthvað til að skjóta á Florian. Þeir vita alveg að hann er með öðruvísi áhugamál en flestir krakkar. Og hvað með það? Ég veit alveg að margir krakkar stríða og enn aðrir leggja krakka í einelti. Er ekki best að kæfa þetta bara í fæðingu? Ég hef svo litla reynslu af svona, nema þá það sem gerðist á mínum uppvaxtarárum en þá hét allt stríðni!

Hjálmar, þú hlýtur að hafa skoðun á svona. Var ég of grimm? Mér fannst montrassinn líka vera að skemma fyrir Henrik. Hann svona lítill að heilsa vini sínum. Kannski er ég að gera úlfalda úr mýflugu. Væri gaman að heyra ykkar álit.

Knús

7 ummæli:

  1. Nei, þú ert ekki að gera of mikið úr hlutunum. Þeir hefðu talið þetta eðlilegt ef þú hefðir ekkert sagt mín kæra. Er alltaf á tánum varðandi svona því þau eru svo fljót að tileinka sér slæma siði þessar elskur,
    knús úr Kef,
    Helga

    SvaraEyða
  2. Já Helga, það er nefnilega málið. Ef ekkert er sagt og foreldrar kannski ómeðvitaðir um hvernig börnin eru "inn við beinið" getur farið illa. Reyndar hefði ég ekki búist við svona frá þessum strák en í hóp eru krakkar oft öðruvísi.

    Gaman að heyra frá þér. Knús á liðið.

    SvaraEyða
  3. Ég er einmitt ævinlega ráðlaus þegar svona atvik banka uppá! Reyndar er staðan hér orðin sú, með öllum lögmálunum sem "mínu" landi fylgja að best er að þegja. Best er að hringja bara beint í foreldrana, og leyfa þeim að aga til - eða ekki! Ég hef oft í tilfellum þar sem ég heyri krakka segja eitthvað óviðeigandi, hvort sem það eru mín börn eða annara börn, boðið þeim að endurtaka orðin rólega standandi fyrir framan mig! Þau verða þá svo aulaleg greyin að það verður leikur einn að fá þau til að biðjast afsökunar og líka að lofa að endurtaka ekki "glæp" sinn!
    Alltaf stuð hjá skólakrökkunum!!

    SvaraEyða
  4. ég skil vel að þú hafir brugðist svona við, maður verður reiður þegar maður heyrir & sér að verið er að leggja í einelti og með því að segja ekkert er eins og manni sé sama! Ég styð þig eindregið í því að segja eitthvað við svona "aula" þeir þá kannski skammast sín!

    Góða nótt systir,
    R

    SvaraEyða
  5. Stella, þú ert greinilega ekki eins ráðalaus eins og þú heldur :) Gott ráð með að láta þau endurtaka þetta, hef þetta bakvið eyrað.
    Ég myndi nú ekki hringja í foreldra þessa stráks, frekar segja Bärbel frá, ef Flori er þá ekki þegar búin að því. Hún gæti þá reynt að fylgjast með hvort að þessir drengir haldi áfram að ergja Flori.

    Já Rakel, strákurinn var mjög aulalegur og átti greinilega ekki von á þessu frá mér. Fannst hann svo rosa fyndinn sjálfur.

    Já, það er stuð hjá skólakrökkum og ekki á það eftir að batna býst ég við........

    SvaraEyða
  6. já gott ráðið hjá Stellu!! ÉG ætla skooo að fara að nota þetta!!

    Bestu kveðjur Alva.

    SvaraEyða
  7. mér finnst þú ekkert hafa gengið of langt, það er allt of mikið verið að verja þá sem koma illa fram við aðra, bara flott hjá þer!!

    Alva.

    SvaraEyða