föstudagur, 26. september 2008

Altweibersommer...

...kallast dagarnir núna þegar hæð er yfir landinu, stillt og sólríkt veður. Sólin skín því á alla köngulóavefina. Á ensku kallast þetta "Indian Summer". Á að vera svona áfram næstu daga. Heppilegt fyrir skipuleggjendur miðbæjarhátíðarinnar sem byrjar í dag og á sunnudaginn eru opnar búðir. Eitthvað verður um músík, bílasýning og eitthvað fyrir börnin. Nú er haustfríið byrjað svo að það má búast við múg og margmenni í bænum um helgina.

Síðustu 3 daga hef ég þurft á skráningarskrifstofuna til að bæði skrá og afskrá bíla. Í dag þurfti ég reyndar ekkert að bíða en hina 2 dagana hef ég þurft að sitja þarna í allt að 1 og 1/2 tíma. Þar kennir ýmissa grasa eins og sagt er. Allt frá slæðukonunni í gamlan afa, frá "apecut" (sítt að aftan) gæja í mega beib. Oft sé ég sama fólkið aftur og aftur, fólk sem vinnur við að skrá og afskrá bíla t.d. fyrir bílasölur. Mér finnst alltaf jafn merkilegt hvað það eru til margar útgáfur af fólki. Reyndar finnst mér ég alltaf vera að sjá einhver sem minnir mig á einhvern sem ég þekki. Ein konan sem kemur oft þarna minnir mig t.d. á Völlu frænku, hún labbar m.a.s. eins.

Sumir virðast alveg vera fastir í 80´s tískunni. Ég er þeirrar skoðunar að sú tíska sé eitt mesta slys síðust aldar, þ.e. tískulega séð. Fæ alveg hroll þegar ég hugsa um grænu joggingbuxurnar mínar.......víðar um mjaðmirna og þröngar um kálfana! OJ. En þetta fannst manni flott og mamma var svo góð að sauma allavega 3 svona buxur handa mér. Sítt að aftan finnst mér alveg hræðilegt. Virðist vera í tísku hjá sumum hér, sérstaklega ungum suðrænum mönnum. Nei, mér bara getur ekki fundist þessi klipping flott.


Sjálfsagt var ekki allt hallærislegt á þessum unglingsárum mínum. Legghlífar eru OK, ég myndi sjálf ekki ganga með þær í dag, ekki heldur með kraga. Gæti hugsað mér að ganga með grifflur. Kannski var maður bara hallærislegur sjálfur. Þegar ég skoða myndir af mér finnst mér það stundum. Sérstaklega með broddaklippingu OG smá sítt að aftan.........*hrollur* eða með hárið í augunum í svörtum samfesting 1983! Jólamyndin, úff. Unglingaútlit á háu stigi. Ekki var maður gáfulegur á fermingarmyndunum. Pétur ljósmyndari spurði mig hvort ég væri ekkert máluð þegar ég kom í myndatöku???? Ég neitaði því nú enda ekki farin að nota þannig dót, var of mikill strákur til þess eða eitthvað. Ég mátti því klína einhverju púðri á mig og setja smá varalit til að ég liti nú út eins og ung kona en ekki ungur maður. Var reyndar með blóm í hárinu og þessa líka æðislegu sveiflu í toppnum.


Nei, mig langar ekki til að vera 14 aftur. Væri svo sem alveg til í að verða 25 aftur og líða eins og í dag EN það er bara ekki hægt. Allir eldast........ég líka.

Góða helgi

10 ummæli:

  1. Hvernig var það með þessa konu, vissir þú ekki hvort hún var að koma eða fara. Bara djók, alltaf gaman að eiga tvífara. Kveðja Valla frænka.

    SvaraEyða
  2. þú hefðir átt að gera meira grín að mér þegar þú sást á minni síðu fermingarmynd af mér... sagðist aldrei muna sýna þína!!

    mér finnst samt svo yndislegt að sjá sakleysið og finna krakkann sem í manni bjó á þessum árum, þó svo að maður hafi staðið í hörkuvinnu við að reyna sanna eitthvað annað!

    tískan, manstu buxurnar sem voru eins og þríhyrningur á hvolfi, sem maður svo tróð tveimur efri hornunum ofan í buxurnar og notaði sem vasa... það sem var ekki gert á þessum árum! en ég elska þetta tímabil frá A til Ö músíkina, tískuna...
    góða helgi vina

    SvaraEyða
  3. Já Valla, það fínt að eiga tvífara. Mér finnst alltaf svo indælt að sjá fólk sem minnir mig á þá sem mér þykir vænt um heima :)

    Sko Stella, aldurinn færist yfir. Ég man ekki eftir að hafa sagt að ég myndi aldrei sýna fermingarmynd af mér. Sellunum er farið að fækka.

    Ég man ekkert eftir svona buxum, lístu þeim betur. Elskaru virkilega tískuna frá þessum árum? Músíkin er klassi en tískan..... Ég var nú svo sem engin tísku"drós" og er ekki enn, var ekki alveg að fylgjast með. Vildi oft frekar vera í mínum þægilegu fötum og Freemans peysum :D

    SvaraEyða
  4. þetta var svo framúrstefnulegt, og einstakt að þetta mun eiga stall í tískuminningum til eilfíðar... ekki að mig langi að klæðast neinu af þessu núna, en mikið rosalega finnst mér gaman að hafa fengið að upplifa þetta...
    ég er að íhuga að setja vöfflur í mitt hár, og draga fram eighties gelluna í mér eftir viku, er ég fer og hitti goðið mitt - hana tínu blessaða turner, jibbí...
    (buxunum get ég ekki lýst betur, en þær áttu ábyggilega ekki vel við mínar breiðu mjaðmir og þungu læri...)

    SvaraEyða
  5. Jogginbuxurnar "góðu" voru ekkert að bæta vöxtinn heldur....ég fór ekki í þröngar buxur fyrr en seint og um síðir. Fattaði bara ekki að víðar buxur gerðu illt verra!
    Er bara vika í Tinu kellinguna? Spenningurinn kominn?

    SvaraEyða
  6. ooh hvað það er yndislegt að lesa vangavelturnar þínar. Ég er svo innilega sammála þér með að vilja ekki vera 14 aftur, flækjurnar sem því fylgdu, vá:-) Væri hins vegar alveg til í að vera um tvítugt og búa yfir þeirri ró og sátt við mig sjálfa sem ég bý yfir í dag. Það er líka óendanlega gaman að fá að taka þátt í þroskaskeiði unglingsins sem nú er fimmtán og er að kljást við nákvæmlega það sama og ég var, sjálfstraustspælingar, framtíðardrauma og allt þar á milli. Það er ótrúlegt hvað maður man vel eftir þessu öllu og ég nýt þess í botn að miðla af reynslunni:-) og það besta er að hann þakkar ráðin og tekur mark á þeim, hversu hepin er ég? :-)
    Haltu áfram að pæla svona- ég nýt þess að lesa pistlana þína mín kæra.
    knús úr Kef.
    Helga

    SvaraEyða
  7. Helga: Einmitt það sem ég meina, að vera um eða yfir tvítugt en vera eins sátt við mig eins og í dag. Þú skilur mig alveg.

    Þú ert sjálfsagt heppin líka en ég er viss um að aðalástæðan fyrir því að unglingurinn hlustar er hvernig þú miðlar þinni reynslu. Af stökustu ró.......það er ég viss um ;)

    Ég vona að ég geti gefið mínum sonum góð ráð eftir tæplega 10 ár. Var nú frekar sjálfstraustur unglingur, svona út á við allavega. Naut þess að vera þver og EKKI gera eins og hópurinn :O

    Góðan sunnudag allir

    SvaraEyða
  8. Freemans!!!! Við systurnar pöntuðum sko ansi mikið úr þessum listum hehehe... og Kays líka:D Var alveg búin að gleyma þessu. Ég átti líka svona fallegar buxur, grænar með "über" víðum lærum og svakalega þröngar um kálfana... alveg hreint æðislegar buxur að mér fannst;) Átti líka svokallaðar KÚKABUXUR sem voru með svona síðu klofi... mjög fallegt! Sem er reyndar hægt að kaupa í dag líka.. kemur allt aftur. Greiðslan var "hiddíus" á þessum árum en allt fór maður í gegnum, brodda klipping með skotti eða hvað þetta hét nú, broddar og sítt að aftan, síður toppur ofan í augu, túberaður og notaður 1 hárspreybrúsi til að halda... enda bólurnar á enninu eftir því. Mikið er ég glöð að þessi tíska er liðin og ég er bara venjuleg í dag:)
    Skírnin gekk fínt, ég hélt á dömunni undir skírn og fékk að segja nafnið (Addi gerði það með Alexander) og heitir hún Rakel Bára ef þú hefur ekki verið búin að frétta það.

    SvaraEyða
  9. Hæ Mæja mín. Nei, var ekki búin að frétta af nafninu. Innilega til hamingju :) Ekki slæmt að eiga aðra litla sæta Rakel ;)

    Kúkabuxur já......ég átti ekki þannig en þær voða vona "in". Já Kays listinn, ég pantaði ekki eins mikið úr honum en það var nú alveg rosalega gaman að fletta þessum þykku listum. Ætli einhver eigi gömlu listana ennþá?

    Hér í Djörmaní er ennþá til fólk með allar þessar greiðslur.....

    Kveðja

    SvaraEyða
  10. dásamlegar myndir hahahahahahahah

    Alva.

    SvaraEyða