fimmtudagur, 11. september 2008

Heiladauð

Ég er svo heiladauð núna eftir að hafa setið á barnaspítalanum í Datteln í tæplega 3 klukkutíma. Það á örugglega eftir að koma tóm steypa frá mér núna.....

Ekki halda að eitthvað hafi komið fyrir, nei nei. Henrik átti tíma hjá talmeinafræðingi ofl. þarna. Fyrst fór hann í voða flott heyrnaprófa og það gekk rosa vel, kallinn var bara eins og best agaða barn í heimi :) Svo kom smá bið og þar næst fór hann í talpróf. Það gekk líka voða vel nema það kom í ljós að hann þarf hjálp við að segja suma stafina. Ætli þetta heiti ekki essmæltur á íslensku. Það er líka alveg rosa erfitt að segja t.d. "sch" á þýsku, prófiði bara.......En allavega, eftir þetta þurftum við að bíða í tæplega klukkutíma eftir að læknir liti á hann, í eyrun og munninn. Ekkert merkilegt að sjá þar nema smá kvef.

Við þurfum s.s. að fara að leita að góðum talmeinafræðingi til að fara til. Fyrst fengum við "reseft" (hvernig er þetta eiginlega skrifað???) upp á 10x45 mín. tíma. Sjáum til hvað kemur út úr því. Eigum að melda okkur aftur á spítalanum í apríl/maí.

Sólin skín á næstum því heiðum himni og hitinn er um 28° í dag! Á nú ekki að vera neitt svona áfram en enginn kuldi á nánd. Gott mál bara. Ætla í bóksafnið með Bärbel og Florian á eftir. Kannski við fáum okkur ís eða eitthvað sniðugt í þessu góða veðri.

Og já, það er kominn fimmtudagur og ég verð eiginlega að labba á pósthúsið til að byrja að láta leita að pakkanum. Geri það kannski í fyrramálið. Best að leyfa þeim að fá séns í dag til að koma pakkanum til skila andsk.... hafi það.

Skellti mér á eitt stykki "Senseo" kaffivél í gær. Langaði voða í hana og þar sem hún var á tilboði ákvað ég að láta slag standa. Til hamingju ég...

Knús

7 ummæli:

  1. alma min er ad fara i talprof thann 26 sept, esssin hennar eru ekki alveg ad gera sig.....
    alika dagur hja okkur tveim, bokasafn, bokabudir-skolaverkefni sem er tharf thar ad sinna, matvorubud, elda, thvo og lifa, juhu...
    langar ekkert sma i kaffisopa hja ther, en ef eg fae mer svona kraftmikla vel, fae eg mer solis vel og ekkert annad!!
    bestu kvedjur

    SvaraEyða
  2. Hva! Ertu ekki enn búin að finna ísl. stafina? Ég var líka smá stund að finna þá á XP, þú ert kannski með Vista, þekki það ekkert......

    Na ja, Senseo er nú ekki kraftmikil vél. Bara svona fyrir 1-2 bolla og ekkert sem malar sjálf.

    Þú ert velkomin í kaffisopa :)

    SvaraEyða
  3. fann islensku stafina, en their virka bara inn a microsoft word en ekki a netinu, skil thad ekki alveg...svo eg get bloggad med islensku, en thad er allt og sumt, enn sem komid er......

    SvaraEyða
  4. liggaliggalá ég fann íslensku stafina......þurfti bara að slökkva á helv....firewall og færa mig yfir á explorer!!

    SvaraEyða
  5. Já, þessi eldveggur virðist ekki leyfa manni allt. Mig grunar að ég geti ekki þessvegna bloggað á blog.is. Vil helst ekki slökkva en við vorum að losa okkur við troja"vírus" um daginn.

    Explorer "leyfir" líka meira en t.d. Firefox sem er talinn öruggari.

    Góða helgi

    SvaraEyða
  6. Kvitt. Þetta plagg heitir víst recept, talsvert notað t.d. í apótekinu. Hilsning, Unnur Mjöll.
    P.S. mér finnst explorer miklu,miklu betri, svo frjáls eitthvað. Þeir sem þekkja mig vita hvað ég meina...

    SvaraEyða
  7. Takk fyrir þetta Unnur mín. Ég vissi ekki hvort að þetta væri til í íslensku, samt skrifað með c. Er það ekki eins á ensku? Hér heitir þetta "Rezept", sem sagt, sama orðið.

    Farin í IKEA.......

    SvaraEyða