mánudagur, 8. september 2008

Hitt og þetta

Er ekki komið nóg af þessum geggjuðu myndum af mér???

Hef verið að skoða margt á netinu í dag, aðallega fréttir á mbl.is og blogg sem því fylgir. Las um einelti, "endalok heimsins" á miðvikudaginn, komu flóttamanna til Akraness í kvöld, afþökkun Söruh Palin í Oprah, mosadauða við Hellisheiðavirkjun og eitthvað fleira. Kom s.s. víða við í dag. Á eftir að kíkja í vefmyndavélina á Víkinni góðu, þá er þetta orðið ágætt.

Skemmtilegast í dag var samt að tala við Unni systur. Við höfum ekki heyrst í aaaaaaaaaalltof langan tíma. Ég er alltaf að fara að hringja í hana.......og fleiri. Er voða ódugleg við að hringja í fólk. Nema þegar það á afmæli kannski. Þá hellist yfir fólkið mitt, e-kort, sms, kannski pakki og hringing. Mætti samt taka mig á og hringja oftar í fólk, heyra röddina.

Pakkinn sem ég sendi til Íslands fyrir tæplega fjórum vikum er en EKKI kominn! Ég er vægast sagt orðin reið........eins gott fyrir pósthúsliðið að pakkinn komi fyrir fimmtudag því ef ekki mun ég storma niðureftir og hella mér yfir liðið. Verst er að þetta var böggull og því enginn fylgimiði, ekkert númer til að leita að. Einu sinni lenti pakki frá mér til Bólivíu!! Finnst ykkur það eðlilegt? Ég vona að pakkinn hafi "bara" lent óvart á Írlandi. Þeir hljóta að koma honum til skila. Finnst nú 4 vikur heldur langur tími. Ég bara skil þetta ekki. Ætli einhver hafi bara stolið honum? Ekki voru nú mikil verðmæti í honum, peningalega séð. Verst finnst mér um fötin hennar mömmu sem hún gleymdi hjá mér! Ég verð að vera jákvæð og trúa því að pakkinn komist til skila.

Nóg komið að nöldri. Veðrið er alveg geggjað núna, sólin skín hérna á svalirnar og hitinn á að fara í 26° á morgun. Enn og aftur komið "síðsumar". Ég var að vonast til að fara að nota nýja jakkann minn en hann verður sennilega að bíða í smá stund í viðbót. Síðsumur eru fín.

Jæja, þvottavél númer 3 er að vinda. Bara handklæði,hendi þeim nú í þurrkarann. Eða hvað......nú er þurrkurinn svo fínn úti. Kannski ég hengi þau út á svalir bara......

Knús

10 ummæli:

  1. alveg merkileg posttjonustan, stundum tekur tetta fjora daga og stundum fjorar vikur...eg held ad tad se karfa i new york a vellinum sem er ekki send til islands nema hun se ordin full af pokkum....og stundum postlegg eg a rettum tima, og tvi komast pakkarnir strax til skila og stundum er minn pakki fyrsti i korfuna og tarf ad bida eftir ollum hinum....min kenning

    eg er komin med nyju tolvuna, tarf ad finna islensku stafina en tetta lofar godu, serstaklega stori skjarinn minn.....

    lattu tvottinn bida eftir rigningardegi, ekki eyda solardegi i leidindin...

    skjaumst

    SvaraEyða
  2. Oh, þú ert svo dugleg að kvitta hjá mér :) Love it!

    Ég lendi reyndar mjög sjaldan í þessu póstveseni. Oftast komast allir pakkar strax til skila en kannski er svona karfa í Frankfurt líka??

    Þú verður nú að finna ísl. stafina þ.e. lyklaborðið, þetta er eins og færeyska :D

    Sólardagur í dag, samt að þvo vél nr. 2, geri þetta svona í hjáverkum.

    Er að fara að keyra tengdó til læknis, varð bara aaaaaðeins að kíkja í tölvuna. Er þetta bilun eða hvað???!!!

    Sólar- og hitakveðjur

    SvaraEyða
  3. Er að prufa að kvitta hér, Rakel sagði að það væri ekkert mál. Kveðja úr súldinni á Egilsstöðum.

    SvaraEyða
  4. Það tókst. Valla.

    SvaraEyða
  5. Já elsku frænka. Muna bara að kvitta með nafni ;) Fattaði reyndar hver þetta væri, sá svo hitt kvittið. Þú ert alltaf jafn mögnuð.

    Er á fullu að skoða myndir frá Hraunsrétt, leitandi að fólki sem ég þekki. Þekki bara all flesta, ekki orðin alveg ga ga.

    Kveðja á þig og þína.

    SvaraEyða
  6. Búin að lesa, gaman að heyra í þér líka. Knús á liðið. Unnsa Punns.

    SvaraEyða
  7. Hæhæ eg er nú ekki hissa þó þú þekkir flesta á Hraunsréttarmyndunum fjölskyldan þín var nú í aðalhlutverki (ertu ekki annars að skoða hjá Halla Sig) eg fletti yfir þær í gær. Bóndinn með hattinn sést á þeim flestum. Þetta var frábær dagur eins og alltaf. Hafið það gott elskurnar. Mamma

    SvaraEyða
  8. Unnsa Punns!? Fyndið að þú skulir kvitta svona :) Sá aðeins í þig á réttinni í Völsungspeysu.

    Já mamma, hjá Halla. Kallinn með hattinn var á ansi mörgum myndum, það er rétt. Skemmtilegt uppátæki með skyrtu og bindi og söng :) Sá nú lítið af þér, það glitti í þig á 2 myndum minnir mig. Ömmu líka :) Veðrið hefur verið æði.

    Jæja, best að byrja daginn.

    SvaraEyða
  9. Það eru líka komnar myndir hjá Spreka. Aðaldalurinn skartar sínu fegursta. Kveðja mamma

    SvaraEyða
  10. Var að skoða myndirnar í dag :) Takk samt elsku mamma. Ekki nema 3 nærmyndir af þér ;)

    Kveðja

    SvaraEyða