sunnudagur, 21. september 2008

Nýtt/gamalt útlit

Var búin að fá leið á þessum skærgræna lit svo ég breytti aftur um útlit, þó ekki því að síðan var svona fyrir skömmu.

Dagurinn verður ekki eins og ég sagði í ummælunum. Bärbel hringdi og sagði að krakkahátíðin væri ekkert fyrir Florian en hann er með mjög "sérstök" áhugamál. Sem dæmi kaupir hann sér frekar vélsög eða borvél í byggingavöruverslun heldur en eitthvað dót ef hann fær pening í afmælisgjöf. Allt sem við kemur rafmagni, götugerð, byggingarvinnu og hreinlega allt "á bakvið tjöldin" er hans áhugamál. Þegar hann fer í tívolí hefur hann meiri áhuga á rafmagnsleiðslum, vatnsleiðslum osfrv. heldur en leiktækjum. En hann og Julian ná samt vel saman og leika oft saman í frímínútum.

Strákarnir eru ennþá á náttfötunum og ég bíð eftir því hvort mamma kíki á msn. Best að kveikja á Rás 2. Seydi er farinn í boltann. Veðrið er stillt, skýjað og 14° hiti.

Sé til hvað við gerum í dag. Kannski við rennum bara til Dorsten eða í Vestlandhalle. Nú eða bara í bíó.

Eigið góðan sunnudag

5 ummæli:

  1. florian stefnir greinilega í efnilegann verkfræðing!
    liturinn, hmmm...mér þykir alltaf best að lesa texta, svartann á hvítum skjá! annars er þessi grænleiti mildari á augun en sá appelsínuguli, þó vissulega sé sá guli afskaplega haustlegur...
    góða viku

    SvaraEyða
  2. Já ég vona innilega að Florian muni fá tækifæri á að læra eitthvað. Hann er sko með ADS og á frekar erfitt með að læra á bókina.

    Veistu hvað, ég þoli ekki grænan. Samt er eitthvað vinalegt við þessa síðu. Ég er svona að kanna möguleikana. Kannski væri líka betra fyrir t.d. mö og pa að lesa svart á hvítu. Sjáum til hvað verður.

    Knús

    SvaraEyða
  3. það er nú betra að lesa þetta núna með svona stóru letri, það skiptir meira máli heldur en liturinn. Flott hvað Henrik stóð sig vel, til hamingju með það. Kveðja og knús. Mamma.

    SvaraEyða
  4. Hæ mamma. Letrið er eins, bara öðruvísi bakgrunnur :)
    Ég vildi hafa þetta haustlegt.

    Góða nótt

    SvaraEyða
  5. Mér finnst síðan flott í svona haustlitum :)

    ÞEssi stráksi verður já örugglega verkfræðingur eða eitthvað þvíumlíkt.

    Alva.

    SvaraEyða