...kommentin í vefdagbók Julian fara út í eitthvert systra rifrildi ætla ég frekar að blogga hér. Það er þá hægt að skrifa ummæli um það hér :)
Fyrir þá sem ekki vita um hvað málið snýst þá heldur Unnur systir að ég hafi bara við góð í að kasta kúlu.........uhu uhu, ég er svo sár :´(
Þetta var nú meira grín með hver er sprettharðastur, eða var. Ég veit alveg að ég hljóp hratt sem krakki/unglingur, vann mörg verðlaun fyrir það, ekki bara fyrir að kasta kúlu. Er það mont að segja þetta? Þetta eru bara staðreyndir.
Í dag held ég samt að báðar systur mínar muni hlaupa hraðar en ég enda í feykigóðu formi báðar tvær. Minn íþróttaferill var stuttur og íþróttir taka lítinn tíma af mínu lífi í dag. Eiginlega eru hlaupin hér upp á 4. hæð eina íþróttin sem ég stunda daglega. Af og til hjóla ég í bæinn eða um sveitir. Mér finnst alveg hræðilega leiðinlegt að hlaupa úti, ég nenni ekki í líkamsrækt og gef mér bara ekki tíma til að fara t.d. út að labba reglulega.
Nú þegar maður nálgast fertug, er ekki seinna vænna en að fara að huga vel að heilsunni. Verður ekki alltaf erfiðara að leggja af? Mig minnir að ég hafi lesið það. Reyndar er ég alveg heilsuhraust, get alveg hlaupið upp og niður stigann án þess að blása (mikið) úr nös. Mestar áhyggjur hef ég af mjöðmunum, ég verð að passa mig þar og muna að vera með innlegg í öðrum skónum. Annar fóturinn er sko minimal styttri en hinn.
Nú er ég farin að gera mér einhverjar grillur! Ég er svo löt að ég nenni engan vegin að hreyfa mig of mikið. Finnst ömurlegt að reyna of mikið á mig. Þessi innri "svínahundur" (eins og sagt er hér) er ansi þrjóskur hjá mér og erfitt að vinna á honum. Já, ég viðurkenni bara að ég nenni bara ekki að reyna á mig............og hananú.
Mér finnst samt gaman að hjóla, verð bara að fá mér almennilegt hjól. Þoli ekki þetta 3ja gíra hjól sem ég á. Alltof erfitt að stíga það! Ha ha ha. Kemur enn í ljós hvað ég nenni ekki að reyna á mig. Afsakanir og ekkert nema afsakanir. Svona er þetta bara. Ætti ég ekki bara að fara í jóga? Veit samt ekki hvort að það sé svo góð hugmynd. Ég er svo ofboðslega óliðug og get ekki setið í þessari jógastellingu með beint bak, alveg ómögulega. Sumir geta þessa stellingu, m.a. Seydi og Julian, já og ein ónefnd sem festist með fæturnar aftan við haus, uppi í glugga! Alltaf jafn fyndið að rifja það upp. Ég var voða afbrýðisöm úti liðugleika þessarar ónefndu. Ég var eins og spýtukall við hliðina á henni, með mína stóru vöðva og feitu læri.
En ég var samt spretthörð.............
Góða helgi
PS. Plön breyttust, Seydi fer til Franfurt á morgun. Er núna með Henrik á rúntinum og við Julian ætlum að fara út í góða veðrið.
PPS. Þetta blogg er skrifað beint upp úr hugsunum mínum, ég les bara yfir til að kanna hvort það séu nokkuð of margar villur. Elska ykkur.
hey! það er nauðsynlegt að hreyfa sig og reyna á sig bara til að halda skrokknum í "gírnum" óháð því hvort maður ætlar að leggja af OGHANANÚ;)
SvaraEyðaannars bara að kasta á þig kveðju...hef ekki enn fundið nógu fallegt bréfsefni handa þér! mig minnir að eitt sinn hafi ég átt slíkt með fínum ilmi en finn slíkt eigi í búðum nútímans, -ég ætla að leita betur...
hafðu það gott stóra;)
kv. R litla
(rakel spreyjadu uppahalds ilmvatninu a eitt bref, settu svo oll blodin i poka og lokadu vel og geymdu thannig i nokkra daga...tha ertu komin med ilmandi brefsefni)
SvaraEyðainga, thu veist mina skodun a likamsraekt, upplysi thad ekkert nanar her...en vidurkenni tho ad joga er frabaert - ef eg myndi bara nenna leggjast a dynuna og teygja mig. ohhwell!
njottu sunnudagsins
Rakel: Auðvitað er nauðsynlegt að hreyfa sig, ég veit það alveg. En að reyna of mikið á mig.......neee, það er ekki fyrir mig. Viljinn er ekki fyrir hendi. Það væri voða fínt að leggja af um svona 3-5 kg. en ég býst ekki við þeim árangri á meðan að ég hreyfi mig ekki meira og borða ekki minna súkkulaði.......
SvaraEyðaEn hvað meinarðu með "stóra"? Er þetta eitthvað skot á mig ;)
Stella: Líkamsrækt í þessu týpíska formi er heldur ekki "my cup of tea". Vil miklu frekar hjóla eða labba. Verð líka að drekka meira vatn.....
Góðan sunnudag
hehe, nei þetta var ekki skot á þig, þú ert stóra (systirin) og ég sú litla, óháð umræðu um líkamsrækt eða vatnsdrykkju;)
SvaraEyðaen takk Stella fyrir upplýsingarnar um bréfsefnið, auðvitað er miklu gáfulegra að geta valið lyktina sjálfur...fer í þetta....
Sunnudagskveðja,
R
P.S. er á leið í lambalæri hjá Guðný Þóru á Selfossi, namminamm.....