
Þið megið giska einu sinni á það hvað þetta er á myndinni????? Glæsilegt ekki satt? Ég sagði ykkur þetta.
Annars er allt gott að frétta. Ég vogaði mér að kíkja á fréttirnar á RUV frá því í gær. Ég er samt litlu nær. Nema það að núna heitir bankinn minn "Nýi Glitnir".
Í miðnætur fréttunum á RTL í gær var líka talað við verslunareiganda sem sagði að ef þetta héldi svona áfram myndi hann fara á hausinn. Sýndar voru auðar götur í Reykjavík (sennilega Laugarvegurinn) og sagt að fólk væri lítið að eyða núna. Er fólk bara mikið heima núna? Hvað með þessa nýju flottu verslunamiðstöð sem opnuð var í síðustu viku? Hana vantaði jú svo rosalega............Hvað hafa 300.000+ manns að gera með öll þessi "moll"? Er virkilega markaður fyrir þessu? Ég bara spyr!
Haustveðrið er alveg yndislegt núna. 17° hiti og hálfskýjað. Alveg logn og bara æðislegt. Hausthátíð í Dorsten um helgina. Kannski maður kíki þangað í blíðunni. Annars er alltaf nóg um að vera hérna, ég bara er ekkert voða dugleg að fara eitthvað, sjá eitthvað. Nema það séu gestir, þá notar maður tækifærið og skellir sér í dýragarða/almenningsgarða, á fótboltavelli, í "mollin" ofl. Vill ekki einhver koma bara til mín? Evran er reyndar andsk... dýr en hér eru nóg af öllu. Er ykkur farið að vanta eitthvað frá útlöndum? Las að það væri erfitt að fá vörur erlendis frá.........Ég gæti sent ykkur einn og einn matarpakka. Ha ha ha. Nei, það er bannað að gera grín að ástandinu.
Það er samt hollt að hlæja og vera glaður. Ég er bara að reyna að peppa ykkur upp kæru vinir og ættingjar. Mér fannst það gott hjá Jóhönnu Sig. segja ykkur að nú væri tíminn til að snúa saman bökum.
Nóg í dag. Ætla að sjóða spaghetti og hella á það einhverri sósu úr túbu. Keypti hana í "Preistempel", ný búð með t.d. afgangsvörur, næstum því útrunnar vörur, vörur úr búðum sem lokuðu osfrv. Meira draslið þarna, sumt allavega. Haldiði að ég hafi ekki séð mann þarna í peysu merktri Íslandi! Það stóð "ICELAND" bæði framan og aftan á, ásamt fána að aftan. Sé eftir að hafa ekki pikkað í hann og sagt hvað hann væri í kúl peysu :)
Lifið í lukku en ekki í krukku, ykkar Inga
PS. Enn eitt (ætlar konan aldrei að hætta að skrifa). Ég fékk svona í bakið áðan, reyndar meira hægra megin undir herðablaðinu. Var að reyna að rétta pönnu við, ýtti á hana og einhver taug hefur greinilega klemmst eða ég veit ekki hvað. Allavega er smá sárt að anda og hreyfa sig á vissan hátt. Ef þetta lagast ekki verð ég að drullast til læknist. Efast samt um að þetta sé nokkuð alvarlegt.
Nú segi ég bless, í alvöru!