Blogg, web log, dagbók eða hvað þetta nú á að vera. Stundum tekst mér að skrifa eitthvað um mína (oft) fáránlegu hugaróra, stundum skrifa ég um það sem er á dagskrá hjá mér, af og til um eitthvað alveg stórmerkilegt sem henti mig. Bara það sem mér dettur í hug þá stundina. Vona að þið búist ekki við einhverjum skemmtilegum, merkilegum, fyndnum eða frábærum bloggum dag eftir dag..........Það er bara ekki hægt, stundum er heilinn í mér svo tómur eða fullur að bulli. Nei,nei, nú er eins og að ég hafi einhvern tímann tekist að skrifa eitthvað stórmerkilegt! Voða mont er þetta í mér........best að hætta því núna!
Fékk lítinn sætan bækling frá H&M í dag með nýjustu haustvörunum. Á forsíðunni blikar í gráa peysu með munstri, ekki ólíku íslensku lopapeysumunstri. Spurning hvort ég eigi að fjárfesta í einni svona peysu (ýta á þessa rauðu með stjörnumunstrinu, þar sést gráa peysan)? Hún kostar jú tæplega 35€ sem er svo sem ekkert mikið fyrr en þið farið að reikna það yfir á íslensku krónuna blessuðu........Ég á reyndar þessa líka fínu alvöru, íslensku lopapeysu sem mín elskulega systir, Unnur, prjónaði en þær virðast vera rosalega "in" þetta haustið og fara eiginlega aldrei úr tísku. Sé til hvort ég tími að kaupa þessa peysu. Væri kannski alveg eins ódýrt fyrir mig að kaupa alvöru peysu heima! Miðað við Evruna núna allavega. Ætti kannski að biðja um lopavesti í jólagjöf ;) Er það ekki mikið í tísku?
Ég hef þó aldrei verið mikið að hlaupa á eftir tískunni. Helst viljað vera í því sem er þægilegt OG hægt að nota í mörg ár. Tískufatnaður á það oft til að vera hálfgerð bóla sem svo springur og verður hallærislegt eftir nokkra mánuði. Einn daginn er doppótt í tísku, annan daginn röndótt, næsta dag þröngt, þar næsta vítt! Er ekki bara allt í tísku? Sumt mun ég aldrei fara í eins og niðurþröngar gallabuxur! Ég held að ég yrði eins og álfur út úr hól í þeim. Það eru ekkert allir með vöxtinn í allar flíkur. Mér finnst að það ætti aðeins að klæða sig eftir vexti en auðvitað má fólk fara í það sem það vill mín vegna. Voða er ég "dipló" eitthvað! Ég reyni að fela það sem fela þarf og sýna það sem hægt er að sýna. Ekkert flókið.
Nú er ég komin út í einhverja tóma vitleysu. Julian er að trufla mig, þarf endilega að búa til pappírsflugvélar en ég var búin að setja Heru Björk á fóninn og ætlaði að fá smá frið til að blogga en hér er sjaldan friður........
Mamma hér, mamma þar, mamma allstaðar. Það var því mjög gott að vera ein að selja á flóamarkaðnum í leikskólanum á sunnudaginn. Ég bannaði strákunum að koma með. Ógeðslega vond mamma. Það var gaman að hitta annað fólk, spjalla við aðrar mömmur og vera bara ég, ekki bara mamma. Þó það sé mitt aðalhlutverk eins og er má ég alveg leika eitthvað annað hlutverk líka. Svo er ég viss um að þegar strákarnir eru orðnir stórir og koma ekki í heimsókn nógu oft mun ég kvarta......... er þetta líf ekki furðulegt?
"Mamma, afhverju getur flugvélin ekki flogið? " spyr Julian. Hann er með einhverjar tilraunir í flugvélagerð en það virkar ekki alveg, lím hér, límband þar, vængirnir ekki eins. Þessar venjulegu (mömmugerðar) eru bestar, hann sér það núna :)
Jeminn eini, afhverju þurfa börn (veit reyndar ekki hvort önnur börn gera þetta) að labba á sófanum frekar en að labba á gólfinu????? Eða hoppa í rúmum? Eða láta allt detta í gólfið (og taka það ekki upp)? Eða hlaupa í staðin fyrir að labba? Eða garga útaf engu? (sé oft krakka á leiðinni í skólann og hljóðin sem þau gefa stundum frá sér........ótrúlegt). Ókey, ég veit að það er hægt að banna þeim þetta allt saman, það virkar bara ekki alltaf. Ég og Unnur systir lékum okkur tímunum saman í hjónarúmi mö og pa í að fella hvor aðra! "Dansi, dansi dúkkan mín" var sungið (er það ekki Unnur?) Finnst oft fyndið hvað börnum dettur í hug, líka oft mjög ekki fyndið :/ Ætti að skrifa oftar niður sem mínum dettur í hug. Akkúrat núna eru gaurarnir í flugvélaleik, hlaupa fram og aftur í stofunni og henda flugvélunum. Flugvélastríð.........
Búið, basta, sólin skín.
Nú koma örugglega einhver uppeldis komment :) Þau eru velkomin, bara ekki að það eigi að banna allt. OK.
Knús
Hæ hæ. já þessi rauða peysa virðist vera flott en er ekki með alvöru lopapeysumyntri, örugglega með ísaumuðum ermum það finnst mér ekki fallegt. Hafðu ekki áhyggjur af því hvað strákunum dettur í hug að gera, ef eg hefði skrifað niður allt sem ykkur systkynum datt í hug hér í denn (og dettur enn í hug) væri háaloftið fullt af bókum. Alltaf gott að hafa hugmyndaflug. Kveðja og knús til ykkar allra. Þín mamma
SvaraEyðaJá þessi rauða er flott en ég meinti ekki hana. Ef þú klikkar á hana kemur grá peysa með öðru munstri. Ég var meira að pæla í henni. Þessar peysur eiga að vera handprjónaðar.
SvaraEyðaÉg hef svo sem engar áhyggjur af því sem strákunum dettur í hug. Finnst það oft bara óborganlegt sem þeir gera og segja. Já og krakkar yfir höfuð :)
Knús
Uppeldi og menntun barna felst ekki í banna hluti eða hefta hugmyndarflug þess heldur að stýra því rétta leið á uppbyggilegan hátt.
SvaraEyðaHjálmar LITLI bróðir
Vel sagt lille bror og alveg rétt hjá þér. Knús
SvaraEyðaSæl. Fyrst af öllu, hvaða lit viltu af lopavesti?
SvaraEyðaÉg man nú ekki eftir dansi dansi en fellingarnar voru sannarlega vinsælar, ekki gleyma skotboltanum í kjallaranum! Það hljóta að hafa verið þvílíkar hremmingar fyrir hljóðhimnurnar í mömmu.
Annars er allt fínt að frétta, Hlynur er búinn að vera báða vetrarfrísdagana í sveitinni, hann er svo mikill sveitalubbi drengurinn. Hann er sko að vinna sér inn fyrir fjarstýrðum bensínbíl, takk fyrir, kostar ekki nema 65 þúsund íslenskar krónur. Ég spái því að þeir bílar verði ekki lengur í tísku þegar peningarnir verða komnir í hús.
Vonandi er þetta ágætis framför í kvittun. Bestu kveðjur, Unnur Mjöll.
Blessuð systir. Já þetta kalla ég sko frábærar framfarir. Takk fyrir þetta :)
SvaraEyðaÉg er nú svo "gamaldags" að mér finnst svartur/hvítur/grár flottast í lopapeysum/vestum. Sama hvaða mynstur, bara eitthvað fallegt. Ertu eitthvað að pæla í að skella í eitt stk. handa mér í jóla/afmælisgjöf?
Fjarstýrður bensínbíll! Er þetta stórt fyrirbæri? Hlýtur að vera miðað við verðið. Það er flott að vera sveitalubbi ;)
Knús
Hæ, það fá allir eitthvað prjónað í jólagjöf..eitt vesti er ekkert mál, viltu sama garn og er í peysunni þinni? Léttlopi er líka flottur.
SvaraEyðaÞessi bensínbíll er álíka stór og tveir körfuboltar hlið við hlið. Hef ekki alveg sett mig inn í það...
Austurbæingarnir eru að byrja.. þotin....
jæja, ætli það sé ekki best að ég komi með vænann pistil um hvað skuli gera í barnauppeldi og hvernig skal fá börn til að gera eins og fullorðið fólk segir............nei, bara grín. Ég þekki sófahopp ekki neitt og er Gunnar minn afar hlýðinn;)
SvaraEyðaMér finnst að þú ættir að splæsa á þig peysunni, alltaf gaman að eiga fallega klassíska vetrarpeysu:)
Bestu kveðjur & kossar,
Rakel
Elsku Unnur, mér líst vel á þennan léttlopa ef þú segir að hann sé flottur þá hlýtur það að vera. Oh, þú er svo lagin í höndunum :)
SvaraEyðaNei Rakel mín, vertu ekkert að koma með einhverja ræðu um uppeldi. Ég veit svona nokkurn vegin hvað ég geri rétt og hvað rangt. Reyni að laga það sem mér finnst ég ekki gera vel, tekst ekki alltaf en maður lærir aldrei nóg.
Spurning með peysuna, ætla að sjá hana "live" fyrst. Vonandi er hún til niðrí bæ. Annars er voða mikið um allskonar víðar/síðar/stórar peysur hér. Sé til ;)
Knús á ykkur líka, gott að eiga svona hlýðinn kærasta :D
noohhh komnar niu vidbaetur og eg ekki farin ad skipta mer af malunum, sit i skolanum - laus vid hopp og laeti barnanna... thad er eitthvad mikid ad, ef thaug lata ekki illa...
SvaraEyðaeg hef engar ahyggjur, held thu sert ad standa thig med soma - att hrausta og spraeka drengi! bestu kvedjur
Góðan og blessaðan.
SvaraEyðaKíki mjög reglulega hérna inn og les skemmtilegu pistlana þína :).
Frábært að heyra um lífið í Þýskalandi.
Alltaf það sama hjá mér, kennsla, kennsla, kennsla.
Drengurinn orðin svo stór að hann sést lítið heima, er úti í fótbolta alla daga eða með vinunum. Eiginmaðurinn í skóla og lærir öllum stundum þannig að ég sit bara og sauma eða prjóna alla daga þegar kennslu lýkur. Það er nú líka bara lúxus svona þegar skammdegið er að hellast yfir.
Engar utanlandsferðir á döfinni, ákváðum að skella okkur frekar í borgarferð til Akureyrar í nóvember. Keyrum norður á afmælisdegi Unnar Mjallar. Ætlum að taka tengdó með, það eru nú bara 12 ár síðan þau voru síðast á Akureyri(eða annarsstaðar en í Hafnarfirði).Það verður mjög spennandi ;) (á svolítið sérstaka tengdamóður).
Hafðu það gott væna mín.
Með bestu kveðju frá Hafnarfirði,
Guðlaug
Já Stella, ótrúlegt að heyra ekki frá þér fyrr ;) Þú alltaf jafn dugleg í skólanum (við að kvitta á blogg og svona) GRÍN!
SvaraEyðaBlessuð Guðlaug mín og gaman að heyra frá þér. Ég hef nú aðeins séð/heyrt af þér á facebook. Það er nú meira sem Íslendingar eru duglegir að sækja skóla á "gamals" aldri. Enda bíður skólakerfið upp á það, annað en hér þar sem fullorðnir fara t.d. ekki í framh.skólana heldur verða t.d. að klára stúdentinn í kvöldskóla. Býst nú samt ekki við að Júlli sé að klára stúdentinn en svona er þetta misjafnt á milli landa. Ég er sko ekki par hrifin af skólakerfinu hér.........Það er saga í blogg einn daginn.
Flott hjá ykkur að ferðast bara innanlands. Fínt að koma sér úr kreppunni þarna fyrir sunnan :D
Hafðu það líka gott og knús á kallana þína.