Haldið ykkur nú fast! Rosalega fast! VIÐ ERUM AÐ KOMA UM JÓLIN :):):)
Við komum ÖLL svo það er eins gott fyrir suma að eiga nóg í frystikistunni ;) Við gætum svo sem komið með matarpakka ef matarskortur er vandamál.
Innrás Tyrkja verður gerð þann 21.desember kl. 16:15 og endar þann 5.janúar. Nú er spurning hvernig við komum okkur norður. Eins og evran er núna er hræódýrt að fljúga norður. Spurning um að panta flug strax um kvöldið eða sofa eina nótt. Er einhver með hugmynd? Rakel, hvenær ferð þú norður? Helga Jóhanna, hvað verður þú að gera? Eða Bjarnhildur? Látið heyra í ykkur áður en ég panta flug.
Þetta var bloggið í dag. Hlakka til að heyra frá ykkur.
SJÁUMST <3 (hjarta)
Hæhæ veri bara hjartanlega velkomin ÖLL, það er etthvað til og vonandi verða opnar búðir.(Kanski best að fara að hamstra) svo verður einhver fiskur í frystigeimslum Vísis. Eg hlakka bara mikið til að fá ykkur heim. Kveðja og knús þín mamma
SvaraEyðaÞað er eins gott að við séum velkomin ;) Við spurðum auðvitað hvorki kóng né prest hvort við "mættum" koma, hahaha.
SvaraEyðaVið borðum allt, Seydi hlakkar til að fá lambakjöt skilst mér.
Sjáumst
Mikið rosalega er ég glaður að fá þessi tíðindi og sérstaklega kl. 630 að morgunlagi ;-) En þið eruð meira en velkomin og Seydi skal fá að borða það sem hann vill. Þetta verður sannarleg jólagjöf, fjölskyldan öll saman, æðisgengið. Ef þetta er eitthvert vandamál þá sæki ég ykkur bara, það kostar um 65.000 kr. að taka 8 manna bílaleigubíl fram og til baka...
SvaraEyðaHilsen í bili...
Ertu ekki að ljúga!!!!!! VEIVEIVEIVEIVEI:) Gunnar vinnur síðasta vinnudag fyrir jól föstudaginn 19.des, þannig að við förum örugglega norður 20.des. Ef við verðum ekki farin norður kem ég að sjálfsögðu og sæki ykkur...en annars ef þið ætlið að stoppa fyrir sunnan getið þið verið í íbúðinni:)
SvaraEyðaÓmæ, hvað ég er ekki að trúa þessu. Við verðum einmitt fyrir norðan til 5.jan:)
ég býst nú ekki við matarskorti á Garðasbrautinni frekar en vanalega...
Bestu kveðjur, og sjáumst;)
Rakel
p.s. hver er þessi nafnlausi fyrir ofan mig, ert þetta þú Hjálmar?
Nei Rakel, ég er ekki að ljúga. Pantaði í morgun. Mamma hélt að þú færir kannski í prófa 21.12. en Seydi vill frekar fljúga.
SvaraEyðaEr einmitt að pæla í því hvort þetta sé Hjálmar???? Hvað er hann að tala um bílaleigubíl? Myndi aldrei taka bíl á leigu. Hvað þá 8 manna. Kostar um 20000 kalli minna að fljúga. Þá er ég að meina báðar leiðir! Ætli við fljúgum ekki bara strax um kvöldið. Förum með flybus til R.víkur og fáum okkur sviðahaus á BSÍ, hahaha.
Sjáum til.
Og annað, kannski við verðum 1 nótt í borginni Rakel. Kemur alveg til greina. Læt þig vita ;)
SvaraEyðaKnús
Hey!
SvaraEyðaÉg bý í anddyrinu á Flugstöðinni þannig að þið komist ekkert hjá því að kíkja við allavega!
Nóg af plássi og hægt að krassa á dýnum líka, þær eru til:-)
Hlakka til að sjá ykkur,
kv. Helga
Já Helga, spurning hvort við sofum 1 nótt eða fljúgum um kvöldið. Við verðum að hittast. Ræðum betur saman síðar. Hlökkum líka til að hitta ykkur.
SvaraEyðaég er bara ekkert abbó, eða þannig...
SvaraEyðayndislegt að þið fáið að eiga jólin heima - því heima er allra best (á mamma þín sparisvuntu, sem hún notar bara á jólunum? það eru slík smáatriði sem ég sakna mest við jólin heima)
það kemur að því að ég fái íslensk jól, og svo má ég alls ekki kvarta mikið - ég fæ þakkargjörð með mömmu og pabba í floridasólinni...
bestu kveðjur vina
Já Stella, fer ekki að styttast í komu Jóns og Línu? Þið ætlið að keyra er það ekki?
SvaraEyðaGóða helgi
Uhh, já þetta var sem sagt ég, Hjálmar sem átti þetta innlegg. Þið komist norður, það verður aædrei vandamál. Þetta eru bara svo skemmtilega góð tíðindi...
SvaraEyðakveðja nafnlausi Hjálmar Bogi
Já okkur grunaði þetta systur (Unni líka). Hvað ertu að tala um bílaleigubíl maður? Við fljúgum örugglega norður strax um kvöldið. Nema það verði svo vont veður að lent verði í Eyrinni eða á Egilsstöðum ;)
SvaraEyðaGóða helgi
Frábærar fréttir... vona að við getum eitthvað hist, ég er amk ekkert að vinna svo við hljótum að geta fundið okkur einhvern tíma, hvort sem það verður á Dalvík, Húsavík eða mætumst um miðja vegu á Ak:)
SvaraEyðaKveðja úr vetrinum á Dalvík