Ég bara varð
Má til að blogga smá, sá nefnilega svolítið skemmtilegt í morgun. Henrik átti tíma í talkennslu og ákvað ég að sitja bara frammi og bíða, lesa slúðrið og annað. Ég var búin að lesa um Boris Becker, Silvíu Svíadrottningu, Mette Marit ofl. fræga þegar ég fletti yfir allar krossgáturnar og beint á síðustu síðuna. Hvað blasir við mér þar???? Grein um íslenska hestinn. Það er svo sem ekkert merkilegt hér enda virðast Þjóðverjar elska íslenska hestinn. Ekki langt síðan að ég sá barnaþátt í TV þar sem sýnt var að ísl. hesturinn kynni 5 ganga (eða hvað þetta nú heitir á ísl.). Ég held að ég hafi lært meira um ísl. hestinn síðan ég flutti hingað. Var ekkert að pæla mikið í því að tölt væri eitthvað merkilegt.
Hvað um það, þessari grein fylgdu myndir frá Íslandi, mynd af hestum og fólki á hestum. Ég staldra við fólkið á hestunum og finnst ég eitthvað kannast við það! Og viti menn, eru ekki Bjössi Ægis og Rakel með snúlluna sína þarna á hestbaki. Til sönnunar set ég hér með inn myndir.


Læt þetta duga í dag, haustlaufin eru að fylla allar gangstéttir. Fólk hefur varla undan að moka þeim til hliðar eða sjúga upp í laufsuguna. Eitthvað spáð leiðinlegra veðri næstu daga en aftur fínu um helgina.
Knús
Hæ hæ. Merkileg tilviljun að rekast á þessar myndir, gaman að því. Hér eru haustlaufin líka að falla og þakrennan full, regnið fossar niður á svalirnar. Gott að ekki er kaldara þá værum við komin á kaf í snjó. Hér er bara unnið og sofið þessa dagana. Gangi ykkur allt í haginn. Kveðjur og knús mamma
SvaraEyðaDaginn elsku mamma
SvaraEyðaJá mér finnst þetta ansi fyndið að þekkja fólk í þýsku blaði :)
Það rigndi töluvert seinni partinn í gær en virðist þurrt núna. Spáð þrumuveðri í dag!
Knús
Var að sýna þetta í vinnunni. Kveðja mamma
SvaraEyðaJá já, um að gera að Rakel og Bjössi frétti að þau sé rosa "fræg" :)
SvaraEyðaKveðja úr rigningu og hagli
Blessuð Inga Rakel hér takk fyrir þetta ég vissi ekki að við værum svona rosalega fræg og þurfti ekki einu sinni að koma nakinn fram hahaha en ég man að það stoppaði bíl í heimreiðinni við sumarbústaðinn okkar og myndaði okkur við hefðum kanski brosað pínu ef við vissum að við myndum meikaða svona en þetta er flott.Hér er allt ágætt að frétta í svokölluðu kreppunni en hjá ykkur?Við erum en nokkuð seif á Húsavíkinni en þá. kær kveðja frá frægafólkinnu á Húsavík Rakel,Bjössi og Berta María
SvaraEyðaBlessuð Rakel mín. Frábært að þú skulir hafa frétt af þessu. Aldeilis flott að komast í þýskt blað án þess að vera Björk eða Emilíana Torrini ;) Hvað þá án þess að koma nakin fram, haha.
SvaraEyðaÞið eruð bara voða eðlileg á myndinni, ekkert gervibros eins og flestir aðrir í þessu blaði ;)
Kreppa hvað? Ég verð ekki var við neitt,nema þegar ég les blöð og horfi á fréttir. Gott að heyra að allt er í góðu hjá ykkur.
Kveðja