miðvikudagur, 15. október 2008

Ég bara varð

Má til að blogga smá, sá nefnilega svolítið skemmtilegt í morgun. Henrik átti tíma í talkennslu og ákvað ég að sitja bara frammi og bíða, lesa slúðrið og annað. Ég var búin að lesa um Boris Becker, Silvíu Svíadrottningu, Mette Marit ofl. fræga þegar ég fletti yfir allar krossgáturnar og beint á síðustu síðuna. Hvað blasir við mér þar???? Grein um íslenska hestinn. Það er svo sem ekkert merkilegt hér enda virðast Þjóðverjar elska íslenska hestinn. Ekki langt síðan að ég sá barnaþátt í TV þar sem sýnt var að ísl. hesturinn kynni 5 ganga (eða hvað þetta nú heitir á ísl.). Ég held að ég hafi lært meira um ísl. hestinn síðan ég flutti hingað. Var ekkert að pæla mikið í því að tölt væri eitthvað merkilegt.

Hvað um það, þessari grein fylgdu myndir frá Íslandi, mynd af hestum og fólki á hestum. Ég staldra við fólkið á hestunum og finnst ég eitthvað kannast við það! Og viti menn, eru ekki Bjössi Ægis og Rakel með snúlluna sína þarna á hestbaki. Til sönnunar set ég hér með inn myndir.























Læt þetta duga í dag, haustlaufin eru að fylla
allar gangstéttir. Fólk hefur varla undan að moka þeim til hliðar eða sjúga upp í laufsuguna. Eitthvað spáð leiðinlegra veðri næstu daga en aftur fínu um helgina.

Knús

6 ummæli:

  1. Hæ hæ. Merkileg tilviljun að rekast á þessar myndir, gaman að því. Hér eru haustlaufin líka að falla og þakrennan full, regnið fossar niður á svalirnar. Gott að ekki er kaldara þá værum við komin á kaf í snjó. Hér er bara unnið og sofið þessa dagana. Gangi ykkur allt í haginn. Kveðjur og knús mamma

    SvaraEyða
  2. Daginn elsku mamma
    Já mér finnst þetta ansi fyndið að þekkja fólk í þýsku blaði :)

    Það rigndi töluvert seinni partinn í gær en virðist þurrt núna. Spáð þrumuveðri í dag!

    Knús

    SvaraEyða
  3. Var að sýna þetta í vinnunni. Kveðja mamma

    SvaraEyða
  4. Já já, um að gera að Rakel og Bjössi frétti að þau sé rosa "fræg" :)

    Kveðja úr rigningu og hagli

    SvaraEyða
  5. Blessuð Inga Rakel hér takk fyrir þetta ég vissi ekki að við værum svona rosalega fræg og þurfti ekki einu sinni að koma nakinn fram hahaha en ég man að það stoppaði bíl í heimreiðinni við sumarbústaðinn okkar og myndaði okkur við hefðum kanski brosað pínu ef við vissum að við myndum meikaða svona en þetta er flott.Hér er allt ágætt að frétta í svokölluðu kreppunni en hjá ykkur?Við erum en nokkuð seif á Húsavíkinni en þá. kær kveðja frá frægafólkinnu á Húsavík Rakel,Bjössi og Berta María

    SvaraEyða
  6. Blessuð Rakel mín. Frábært að þú skulir hafa frétt af þessu. Aldeilis flott að komast í þýskt blað án þess að vera Björk eða Emilíana Torrini ;) Hvað þá án þess að koma nakin fram, haha.
    Þið eruð bara voða eðlileg á myndinni, ekkert gervibros eins og flestir aðrir í þessu blaði ;)

    Kreppa hvað? Ég verð ekki var við neitt,nema þegar ég les blöð og horfi á fréttir. Gott að heyra að allt er í góðu hjá ykkur.

    Kveðja

    SvaraEyða