Þið megið giska einu sinni á það hvað þetta er á myndinni????? Glæsilegt ekki satt? Ég sagði ykkur þetta.
Annars er allt gott að frétta. Ég vogaði mér að kíkja á fréttirnar á RUV frá því í gær. Ég er samt litlu nær. Nema það að núna heitir bankinn minn "Nýi Glitnir".
Í miðnætur fréttunum á RTL í gær var líka talað við verslunareiganda sem sagði að ef þetta héldi svona áfram myndi hann fara á hausinn. Sýndar voru auðar götur í Reykjavík (sennilega Laugarvegurinn) og sagt að fólk væri lítið að eyða núna. Er fólk bara mikið heima núna? Hvað með þessa nýju flottu verslunamiðstöð sem opnuð var í síðustu viku? Hana vantaði jú svo rosalega............Hvað hafa 300.000+ manns að gera með öll þessi "moll"? Er virkilega markaður fyrir þessu? Ég bara spyr!
Haustveðrið er alveg yndislegt núna. 17° hiti og hálfskýjað. Alveg logn og bara æðislegt. Hausthátíð í Dorsten um helgina. Kannski maður kíki þangað í blíðunni. Annars er alltaf nóg um að vera hérna, ég bara er ekkert voða dugleg að fara eitthvað, sjá eitthvað. Nema það séu gestir, þá notar maður tækifærið og skellir sér í dýragarða/almenningsgarða, á fótboltavelli, í "mollin" ofl. Vill ekki einhver koma bara til mín? Evran er reyndar andsk... dýr en hér eru nóg af öllu. Er ykkur farið að vanta eitthvað frá útlöndum? Las að það væri erfitt að fá vörur erlendis frá.........Ég gæti sent ykkur einn og einn matarpakka. Ha ha ha. Nei, það er bannað að gera grín að ástandinu.
Það er samt hollt að hlæja og vera glaður. Ég er bara að reyna að peppa ykkur upp kæru vinir og ættingjar. Mér fannst það gott hjá Jóhönnu Sig. segja ykkur að nú væri tíminn til að snúa saman bökum.
Nóg í dag. Ætla að sjóða spaghetti og hella á það einhverri sósu úr túbu. Keypti hana í "Preistempel", ný búð með t.d. afgangsvörur, næstum því útrunnar vörur, vörur úr búðum sem lokuðu osfrv. Meira draslið þarna, sumt allavega. Haldiði að ég hafi ekki séð mann þarna í peysu merktri Íslandi! Það stóð "ICELAND" bæði framan og aftan á, ásamt fána að aftan. Sé eftir að hafa ekki pikkað í hann og sagt hvað hann væri í kúl peysu :)
Lifið í lukku en ekki í krukku, ykkar Inga
PS. Enn eitt (ætlar konan aldrei að hætta að skrifa). Ég fékk svona í bakið áðan, reyndar meira hægra megin undir herðablaðinu. Var að reyna að rétta pönnu við, ýtti á hana og einhver taug hefur greinilega klemmst eða ég veit ekki hvað. Allavega er smá sárt að anda og hreyfa sig á vissan hátt. Ef þetta lagast ekki verð ég að drullast til læknist. Efast samt um að þetta sé nokkuð alvarlegt.
Nú segi ég bless, í alvöru!
Glæsilegur marblettur hehe:)
SvaraEyðaHeiðrún
Hæ hæ já þú ert heppin að slasast ekki meira, gæti ekki verkurinn í bakinu verið tengdur(bara hugmynd). Hér er allt í rólegheitum maður bara bíður og vonar. Hafðu það gott, kveðja og knús til ykkar allra. Þín mamma
SvaraEyðaBlessuð Heiðrún mín. Já hann er glæsilegur og líka sár.....ái
SvaraEyðaNei mamma, ég fann hvernig eitthvað gerðist þegar ég var að reyna að rétta pönnuna. Er aðeins skárri.
Góða nótt, er að fara að lesa fyrir gaurana.
marbletturinn minnir mann á einhverjar myndir úr himinhvolfinu...svona eitthvað "stjörnulegt" að sjá, en trúi því sko að þetta sé hrikalega vont!!
SvaraEyðaíslensku/alheimsfjármálin, við þeim segi ég pass...
segi þó bara eins og íslendingar eru gjarnir að segja... þetta reddast!
ýtti óvart á "publish" án þess að setja nafnið mitt inn...
SvaraEyðaHa ha Stella, þetta er alveg rétt hjá þér. Eitthvað fjarlægt stjörnukerfi þarna á lærinu á mér!
SvaraEyða"Þetta reddast" er svo sem fínt lífsmottó EN fólk ætti nú aðeins að hugsa sinn gang og taka sér tak. Ekki halda að þetta reddist bara einhvern vegin.
Sólakveðja
Gleymdi alveg að sggja að ég er orðin góð í bakinu, stingurinn er næstum því farinn. Og ég er farin út í góða veðrið.....
SvaraEyðaÁáááiiii... ekki beint það fallegasta... en heppin að hann er á stað sem þú getur hulið hann... skárra en að hafa þetta framan í sér. Reikna ekki með að þú gangir mikið berleggjuð... finnst það ekki alveg vera þú;) (alls ekki illa meint samt)
SvaraEyðaHér er bara allt við það sama... maður er bara feginn að hafa ekki látið plata sig út í einhvern verðbréfa bissness þegar við seldum íbúðirnar og keyptum þessa... áttum smá pening aflögu þá sem er bara inná bók en margir voru að segja okkur að fara út í hitt:D
Já Maja, eins gott að það er ekki sumar og maður að spóka sig í sundlaugum! Annars er ég ekki mikið berleggjuð, rétt hjá þér.
SvaraEyðaGott að heyra að þið eruð bara "gamaldags" og með allt á bók. Sama hér.
Kveðja