Allt í hassi bara? Ísland er þó nokkuð mikið fréttum hér. Sá frétt í miðnæturfréttunum á RTL í gær, fyrst voða fallegar myndir frá Íslandi og talað um að landið færi kannski bara á hausinn. Svo hélt fréttin áfram um ástandið hér og þar. Síðast var sagt að eiginlega ættu Íslendingar að vita það, lifandi í landi "Geysira", að einhvern tímann springur (gýs) allt á endanum og sýndu mynd af goshver að gjósa. Á ég að hlæja eða gráta yfir svona fréttum? Hef ekki lagt í að horfa á fréttirnar heima á netinu. Skil hvort eð er lítið í þessum málum. Á mbl.is eru gömlu tuggurnar enn nýjustu fréttir og fólk bloggar varla um annað. Sem er skiljanlegt. Í bæjarblaðinu í dag var skrifað um að Geir H. hefði sagt að Ísland gæti orðið gjaldþrota. Er það tilfellið? Hvað haldið þið eða vitið?
Góð frétt fyrir mig er að "bankinn" minn er sparisjóður (Sparkasse) og þeir fara ekki eins illa út úr þessu. Voru kallaðir gamaldags af mörgum. Þeir segjast einfaldlega gefa fólki sem á pening ágæta og stabíla vexti og lána svo fé til fyrirtækja og einstaklinga sem vilja byggja. Voða einfalt. Fínt að vera gamaldags nú til dags.
Annað, allt annað. Ég fór að versla í dag og stóð hérna fyrir utan með bílinn til að þurfa ekki að labba eins langt með vörurnar. Ég var rétt búin að snúa mér við og ætlaði að labba í áttina að hurðinni þegar ungur strákur á hjóli keyrir á mig á fullri ferð! Ég datt nú samt ekki þótt ég væri með þunga haldapoka í hvorri hendi. Ég hugsaði samt að nú fengi ég fallegan marblett á lærið! Strákurinn spurði hvort það væri allt í lagi hjá mér og ég sagði svo vera og að þetta væri nú líka mér að kenna (hjólabrautin lá við hliðina á bílnum). Ég gleymdi alveg að athuga hvort að það væri að koma hjól. Geri það nú oftast en þar sem það rigndi var ég með hettuna á hausnum, sá því illa til hliðanna án þess að kíkja. Nú er ég s.s. með æðislega fallegan marblett aftan á lærinu þar sem dekkið fór í mig. Ég passa mig betur næst :)
Farið vel með ykkur
Varstu með bílinn í fanginu eða undir hendinni bara?
SvaraEyðagóður Unnur;) híhíhí.
SvaraEyðaEn allt í brjálogbrand hér, ekki talað um annað en hvað allt er vonlaust, allir neikvæðir sem bætir sko ekki ástandið. Ég veit það bara að þeir sem ekki tóku góðærið með trompi og toppuðu mögulegar yfirdráttarheimildir eru ekki að fara að taka kreppuna með trompi heldur og því allt í fínum gír hjá mellómanneskjum:)...ég allavega splæsti á mig hlauppoka í Bónus áðan...og undanrennan kostar það sama og í mars...þannig að ég er góð.
Kreppukveðjur,
Rakel nemi
Já Unnur, þessi var góður. :D
SvaraEyðaÞú hefðir samt alveg getað sagt eitthvað meira elskan.
Ég skil hvað þú meinar Rakel ;) Ég held að margir ættu að hugsa sinn gang.
Haustkveðjur
Já og meira. Ísland var aðal fréttin í kreppufréttum í miðnæturfréttunum. Fótósjoppuð mynd af kletti að sökkva og Íslandskilti úti í hafi! Talað við 2 stelpur sem vildu frekar hafa peningana sína heima heldur en í bankanum og ég veit ekki hvað. Þetta er svo merkilegt að fréttamenn hrúgast til Íslands.
SvaraEyðaVonandi skilja þeir og þeirra lið smá gjaldeyri eftir.......