föstudagur, 31. október 2008

Jólagjafir og annað

Nú, á degi Hrekkjavöku er síðasti dagur október. Það þýðir að á morgun kemur nóvember. Þá ætla ég aaaaaaaaaðeins að byrja á jólaskapinu ;)

Er reyndar búin að kaupa 4 1/2 jólagjafir, panta 2 1/2 og m.a.s. pakka tveimur af þessum inn :) Svo er ég búin að panta jólakort, gerðu þau í tölvunni. Rosalega þægilegt. Ég fer inn á síðu, vel mér kort, set myndir inn, skrifa texta og "voila". Ég var að fá póst um að kortið verði til eftir 2 daga. Get þá náð í allt sem ég pantaði í næstu viku. Gott mál bara.

Strákarnir voru ánægðir með mig í morgun :D Ég hafði blásið í nokkrar Halloween blöðrur og hengt upp í stofunni. Blöðrur eru alltaf jafn vinsælar. Við skárum svo graskerið áðan og vorum að kveikja á kertum inn í því enda farið að rökkva. Ætla svo að fara að búa til "Draugasúpu" frá maggi. Er tómatsúpa með núðlufígúrum (draugum, nornum, kisum og graskerum).

Happy Halloween

Eitt enn. Ég er búin að panta flug norður. Við fljúgum kl.20 strax á sunnudagskvöldið 21.12. Lendum kl. 20:45 ef einhver gæti náð í okkur ;)

4 ummæli:

  1. ohhh krafturinn í þér, þarf að fá smá af honum lánaðann - ég ætlaði nefnilega að vera búin að öllu þegar ég hitti mömmu og pabba, og leyfa þeim svo að fara með pakkana mína til íslands í töskum sínum! ætli mér takist það?
    góða helgi...

    SvaraEyða
  2. Ég skal ná í ykkur, kein problem.
    Unnur Mjöll.

    SvaraEyða
  3. Já já, þér tekst það alveg. Ég trúi á þig ;) Góð hugmynd að láta þau fara með pakkana.
    Góðan sunnudag

    SvaraEyða
  4. Nau, Unnur. Þú varst að skrifa um leið og ég. Næstum því.
    Já náðu í okkur, frábært. Láttu hina vita svo það komi ekki margir OK.
    Sjáumst

    SvaraEyða