Já, bara þokkalega ekki þunn í dag. Passaði mig, í alvöru, að drekka ekki of mikið í gær. Svo stolt af mér. Skemmti mér vel, dansaði mikið og borðaði góðan mat. Skellti mér heim með leigubíl um hálf þrjú. Var m.a.s. það skynsöm að ég tók af mér maskann og setti reykmettaðar buxurnar mínar út á svalir. Nennti samt ekki í sturtu en það lá við að ég væri sú eina sem ekki reykti og hárið á mér var geðslegt, þ.e. lyktin.
Var svo vöknuð klukkan 8 í morgun! Horfði smá á sjónvarpið, fór í sturtu og lá í leti til rúmlega 10 en þá arkaði ég út í bakarí og keypti rúnstykki. Fór svo til tengdó að ná í strákana. Seydi kom svo þangað hálftíma seinna. Það er greinilega ekkert mál að skilja strákana eftir hjá tengdó. Vil samt ekki gera tengdamömmu (geðheilsunni hennar) það að skilja þá of oft eftir. Þeir voru samt voða prúðir og stilltir.
Rólegur dagur í dag enda frídagur, "Tag der Deutschen Einheit" eða dagur sameiningar Þýskalands. Veðrið er fínt, skýjað en sól annað slagið og frekar svalt. Fínt gluggaveður.
Ég verð örugglega mjöööööööööög þreytt í kvöld. Gott að geta sofið lengur á morgun. Ekkert planað um helgina. Ætli ég verði ekki að fara í búð á morgun en það er alltaf hægt að skreppa í Plus hérna neðar í götunni ef eitthvað vantar.
GÓÐA HELGI
Smá viðbót: Ætla að reyna að setja hér inn mynd af mér úr blaðinu í Marl. Ég var að afskrá bíl þegar ljósmyndarinn bað mig um að vera á mynd. Inga og Julian í Marler Zeitung
ég er bara að gleyma því að til er fólk sem reykir, þekki enga sem eru í þeirri vitleysu þannig séð... og svo er þetta bannað ALLstaðar hér núorðið - just love it!! flott myndin af ykkur mæðgum í blaðinu...
SvaraEyðaTja, eiginlega erum við Julian "mæðgin" ;)
SvaraEyðaÞað er líka bannað að reykja á veitingastöðum, diskóum osfrv. hér. En í svona prívat partýi er nú varla hægt að banna fólki að reykja. Ég lifði þetta af.......
mæðgum, úbbs - ég kann þetta alveg... gleymdi bara -in á undan -um!
SvaraEyðaekki var það unga fólkið sem reykti svona? ég fyrirgef nú þeim áttræðu og eldri sem ánetjuðust fyrir tíma vitneskju og fræðslu... en unga fólkið sem reykir í dag og það ofan í aðra - missir mína virðingu...
sorry ég ætlaði ekki að láta þetta fara í eitthvert "kötlu maríu" sígarettulag, en ég verð bara ill -þegar reykt er ofan í mig og mína...
hahaha ég er greinilega alveg út að aka í dag, það var hún ruth reginalds (please segðu mér að hafi það rétti í annari tilraun...) sem söng sígarettusönginn, katla söng um litla mexíkóann með som-sombrero...
SvaraEyða(mér nægir ekki bara að eiga bloggið mitt, þarf að troða mér niður í allra annara líka!)
gleðilegan sunnudag!
Hey, bara gaman af þér. Þú kvittar þó hjá mér :)
SvaraEyðaJú, það var hún Ruth sem söng um reykingar og já þetta er mest allt ungt fólk sem reykir. Hér reykja alltof mikið af ungu fólki, það virðist enn vera voða kúl að reykja...........eins fáránlegt og það nú er. Það er ekki langt síðan að allir sígarettusjálfsalar voru þannig stilltir að þú getur bara borgað með korti og verður þá að vera orðinn 18 ára. Þar áður gátu allir, sem náðu upp í, keypt sígó!
Kveðja úr rigningu og hvössu haustveðri