mánudagur, 27. október 2008

Með 80´s músík í eyrunum...

...ákvað ég að blogga um ekkert. Hef ekkert að segja. Hugsa lítið um annað en ferðina heim um jólin. Hvað á ég að kaupa í jólagjafir? Hvernig mynd á ég að hafa á jólakortinu? Hvaða föt á ég að taka með? Þarf ég jafnvel að kaupa eitthvað nýtt? Ómögulegt að fara í jólaköttinn! Á ég að panta flug norður núna eða seinna? Hver nær í okkur á Eyrina? Verður stórhríð? Komum við tímanlega á flugvöllinn í Frankfurt? Seydi þarf nefnilega alltaf að leggja bílnum einhvers staðar til að þurfa ekki að borga þessi morðfjár fyrir að leggja á flugvellinum ( viðbót: var reyndar að skoða gjaldskrána og það er hægt að leggja fyrir € 54 í 15 daga! Ekkert svo dýrt).........og þegar við flugum síðast frá Dusseldorf kom hann næstum því of seint!!!!! Nei, ég legg ekki í það aftur. Flýg þá bara án hans *hnuss*

Ástæðan fyrir músíkinni í eyrunum er sú að ég var að setja lög frá 9.áratugnum inn í tölvuna og yfir á mp3 spilara sem Seydi keypti í Tyrklandi. Honum, spilaranum sko, er stungið í kveikjarann í bílnum og lögin kom á útvarpsrás. Stella vinkona var búin að tala um svona græjur. Nú get ég haft "mína músík" útum allt, alveg sama í hvaða bíl. Svo framarlega sem það er útvarp í honum. Það er ekki alltaf ef ég þarf að keyra einhverja druslu sem ekki er á skrá. Ekki halda að ég keyri ólöglega, við erum með númer til að nota á óskráða bíla. Eiginlega bara til að nota t.d. ef við kaupum nýjan bíl og hann er óskráður. Stundum stelumst við til að nota prívat ef allir hinir eru í láni eða stendur þannig á. Sumir virðast nú misnota þetta og keyra í tíma og ótíma á þessum númerum en það er þeirra mál.

Nau,nau, ég hef bara helling að segja. Ekkert merkilegt svo sem en þið hafið þá eitthvað að lesa.
Eitthvað á að kólna hérna á næstu dögum. Þessi blessaða lægð sem gekk yfir ykkur fyrir stuttu er á leiðinni hingað. Eða restin af henni. Ég fer að taka upp kuldaskóna og -úlpuna.

Farið vel með ykkur :)

PS. Alva, ef þú lest þetta. Ég get ómögulega kvittað á blog.is hérna heima.....ekki halda að ég lesi aldrei bloggið hjá þér. Knús

Engin ummæli:

Skrifa ummæli