miðvikudagur, 1. október 2008

Miðvikudagur

Ég sit hér eldsnemma á miðvikudagsmorgni, búin að kveikja á Rás 2 og ætla að hripa niður nokkur orð. Breytti líka um útlit til að hafa síðuna svona breiða.

Til hamingju með daginn Eyja mín. Afmæliskveðjur.

Þar sem Julian er í haustfríi þurfum við ekki að vakna eins snemma en um áttaleytið er alveg nóg til að koma Henrik í leikskólann fyrir níu. Í gær var þverhaus litli reyndar svo þreyttur að ég leyfði honum að sofa og sleppa leikskólanum. Það á ekki að gerast aftur í dag. Við ætlum í bókasafnið með Bärbel og Florian og þá er ágætt að vera ekki með alla strákana með. Alveg merkilegt hve það er mikill munur á t.d. Julian þegar hann er einn eða þegar Henrik er í samfleyti, nú eða bara hérna heima........

Í gær t.d. þá fórum við fyrst til IKEA í Duisburg og ekki vildi þverhausinn fara í Småland í pössun, nei nei. Reyndar gerðist slys síðast þegar hann fór í Småland en hann pissaði á sig greyið af því að hann vissi ekki hvar klóið var. Það situr sennilega í honum. Jæja, ég mátti s.s. druslast með hann um alla IKEA, gat ekki skoðan neitt í ró og næði, ekki möguleiki. Fann þó 3 hluti til að kaupa og eftir að hafa náð í Julian keyptum við okkur pylsu, Pollykúlur og kleinuhringi.

Drifum okkur því næst í heimsókn til Seydi en hann er á sjúkrahúsi í Bottrop. Var verið að krukka í "tvíburabróðir" hans! Aftur, en hann fór líka í aðgerð fyrir 5 árum en það gréri ekkert almennilega. Núna tókst allt vel og vonandi lagast þetta alveg. Seydi var allavega hress og glaður að sjá okkur. Hann ætlar að reyna að komast heim á morgun. Okkur er nefnilega boðið í þrítugsafmæli hjá uppáhalds svilkonu minni! Nei, ljótt að segja svona en við eigum bara ekki samleið, þannig er það nú bara. Allt í lagi að hittast annað slagið en fyrir mitt leyti ekki of oft.........mér finnst svo lýjandi að umgangast fólk sem sér ekki eigin galla og finnur allt að öllum öðrum. Nóg um það. Ég ætla að detta í'ða.........eða ekki! Verð alltaf svo andsk.... þunn. Væri best að drekka í hófi (hvað ætli ég hafi sagt þetta oft???) Strákarnir geta sofið hjá dede og babaanne, á bara eftir að segja þeim það :o

Klukkan er núna 5 á Íslandi og einhver þáttur á RUV, örugglega upptaka eða er einhver kominn á fætur svona snemma? Er að hugsa um að skipta um stöð, ekki alveg að fíla þessa músík. Ekkert íslenskt heldur. OK, setti á Bylgjuna. Þeir virðast byrja snemma þar, allavega er verið að spjalla við einhvern. ÖRUGGLEGA um fjármál.........er talað um eitthvað annað á Íslandi? Hér er nú mikið fjallað um þetta í blöðum og fréttum EN hér er "ástandið" í lagi. Svo segir fjármálaráðherra allavega........ég þyrfti að fá svona "krakkaútskýringu" á þessu öllu til að skilja. Hérna eru t.d. alltaf krakkafréttir í TV á hverjum degi þar sem fréttir eru skýrðar út, á skiljanlegan hátt! Svona það mikilvægasta. Ég veit bara að ég ætti auðvitað að skella mér til Íslands og kaupa nokkrar krónur fyrir sterku Evruna mína :)

Eitthvað heyrist innan úr herbergi. Ætli Julian sé ekki að vakna, mér heyrist það. Henrik er meiri svefnpurrka en mér skal takast að koma honum í leikskólann. Nei, nei, kemur ekki litli þverhaus, hálfsofandi samt. Bara eins og kall þegar hann sýgur upp í nebbann og ræskir sig........DÚLLA

Til að halda geðheilsunni verð ég að koma honum í leikskólann. Var svo andlega þreytt í gærkvöld. Henrik var nefnilega líka með læti í íþróttabúðinni sem við fórum í og vildi aftur ekki fara í pössun í Ostermann (risa húsgagnaverslun hér í RE) en mig vantaði dalla fyrir Senseo kaffipokana mína. Julian skemmti sér rosa vel og sagðist hafa fundið strák til að leika við. Hann finnur oftast einhvern til að leika við þegar hann fer svona í pössun. Hann kom því eldrauður og sveittur úr pössuninni og fór beint út í rigninguna og "kuldann".

Já nú er komið haust! Spáð fyrsta hauststorminum í dag. Það rigndi í allan gærdag og laufin gulna og roðna meira og meira. Hitinn er svona um 12°.

Jæja, best að smyrja nesti handa þverhaus, sem er að horfa á barnaefni, og taka til morgunmat. Já og fara í sturtu og klæða mig!

Eigið góðan dag og afsakaði ritgerðina.........

2 ummæli:

  1. nú líst mér vel á litina, svo gott að lesa svartann texta af hvítum bakgrunni...

    vona að seydi hafi það gott, vissi ekki af hans "tvíburamálum" (veit nú svona vart hvað það er, eitthvað tengt rófubeini, er það ekki?)

    haustið er að hellast hratt yfir hjá mér, bara klassísk veðurhegðun, sjóðandi hiti hverfur fyrir skítakulda - samt er bara enn léttjakkaveður...

    bestu kveðjur

    SvaraEyða
  2. Getur fundið hvað tvíburabróðir er á Wikipedia, heitir "Abscess" á ensku. Er nefnilega "ógeðslegra" heldur en maður hélt. Ekki mikið með rófubeinið að gera...... Getur líka séð þetta undir "Fistula". Að hafa svona í afturendanum er ekki þægilegt....need I say more?

    Sól og ský til skiptist hér, frekar svalt og hvasst. Haustið í fullum gangi.

    Kveðja

    SvaraEyða